Enski boltinn

Þrír Arsenal-leik­menn til­nefndir sem leik­maður ársins

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Declan Rice, Gabriel og David Raya eru hér í hópi liðsfélaga sinna þegar Arsenal fagnaði Englandsmeistaratitlinum með stuðningsmönnum sínum.
Declan Rice, Gabriel og David Raya eru hér í hópi liðsfélaga sinna þegar Arsenal fagnaði Englandsmeistaratitlinum með stuðningsmönnum sínum. Getty/Stuart MacFarlane

Declan Rice, Gabriel og David Raya úr Arsenal hafa allir verið tilnefndir til verðlauna Samtaka atvinnuknattspyrnumanna sem leikmaður ársins í ensku úrvalsdeildinni en þeir eru á listanum ásamt Bruno Fernandes úr Manchester United og tvíeykinu Erling Haaland og Rayan Cherki úr Manchester City.

Fyrr í þessum mánuði vann Bruno Fernandes verðlaun Samtaka knattspyrnublaðamanna sem knattspyrnumaður ársins í karlaflokki.

Þau verðlaun gefa oft vísbendingu um hver er líklegastur til að vera útnefndur leikmaður ársins af leikmannasamtökunum.

Portúgalski miðjumaðurinn gaf metfjölda stoðsendinga í ensku úrvalsdeildinni, eða 21 talsins, og hjálpaði United að ná þriðja sætinu.

Miðjumaðurinn Rice, varnarmaðurinn Gabriel og markvörðurinn Raya voru allir lykilmenn hjá Arsenal sem vann ensku úrvalsdeildina í fyrsta sinn í 22 ár.

Framherjinn Haaland skoraði 27 mörk og vann Gullskó deildarinnar á meðan Cherki átti farsælt fyrsta tímabil í ensku úrvalsdeildinni.

Fyrrverandi kantmaður Liverpool, Mohamed Salah, vann verðlaunin í fyrra eftir að hafa skorað 29 mörk og hjálpað Liverpool að vinna ensku úrvalsdeildina.

Verðlaunahafarnir verða heiðraðir þriðjudaginn 25. ágúst á 53. árlegu PFA-verðlaunahátíðinni í Manchester.

Cherki hefur einnig verið tilnefndur sem efnilegasti leikmaður ársins af PFA, ásamt liðsfélaga sínum úr City og enska landsliðsmanninum Nico O'Reilly, sem var útnefndur efnilegasti leikmaður tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni í síðustu viku.

Miðjumaðurinn Kobbie Mainoo úr Manchester United, annar enskur landsliðsmaður, er einnig á meðal hinna tilnefndu eftir að hafa gegnt lykilhlutverki í liði United eftir að Michael Carrick tók við.

Framherjinn Eli Junior Kroupi úr Bournemouth er einnig á listanum eftir að hafa skorað 13 mörk í 33 leikjum á sínu fyrsta tímabili í ensku úrvalsdeildinni.

Max Dowman og Rio Ngumoha, sem hafa leikið fyrir U19-landslið Englands, fullkomna listann yfir tilnefnda unga leikmenn fyrir frammistöðu sína með Arsenal og Liverpool.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×