Trump verður að leita samþykkis þingsins fyrir aðgerðum í Íran Hólmfríður Gísladóttir skrifar 4. júní 2026 06:47 Niðurstöður atkvæðagreiðslunnar virðast benda til þess að Trump geti ekki lengur reitt sig á skilyrðislausan stuðning þingmanna. Getty/Kevin Carter Fulltrúadeild Bandaríkjaþings samþykkti í gær tillögu um að Donald Trump Bandaríkjaforseti þyrfti annað hvort að sækja heimildar frá þinginu til að halda áfram stríðsrekstri sínum gegn Íran, eða kalla herinn heim.
Fjórir Repúblikanar greiddu atkvæði með Demókrötum en andstaða gegn hernaðaraðgerðunum hefur varið sívaxandi, á meðan vinsældir forsetans hafa dalað. Höggið verður að teljast þungt fyrir Trump, sem hefur gengið mjög hart fram í því að taka ákvarðanir án þess að leita samþykkis þingsins eða bandamanna. Þá kemur það beint í kjölfar þess að þrýstingur frá öldungadeildinni neyddi forsetann til að falla frá milljarð dala fjárveitingu vegna veislusalarins umdeilda og stofnun margumrædds skaðabótasjóðs. Alls greiddu 215 fulltrúadeildarþingmenn atkvæði með tillögunni en 208 á móti. Hún fer nú fyrir öldungadeildina en óvíst er um örlög hennar þar. Þá eru sérfræðingar ekki á einu máli um það hvort þingið getur skipað forsetanum að kalla hermenn heim, jafnvel þótt það geti skikkað hann til að leita heimildar fyrir hernaðaraðgerðum. Mike Johnson, forseti fullrútadeildarinnar, varaði þingmenn við því að samþykkja tillöguna, þar sem það myndi grafa undan getu forsetans til að semja um frið við Íran. Þess ber þó að geta að Trump sagði fyrr í vikunni að hann væri búinn að fá leið á viðræðunum og gaf í skyn að honum væri í raun sama hvernig færi.
Bandaríkin Donald Trump Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Mest lesið „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Innlent Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Innlent „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Innlent Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Wolt kærir hótanir til lögreglu Innlent Fleiri fréttir Rannsaka hvort konum var smyglað í sumarbúðir konungsfjölskyldunnar „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Sjá meira