Kærð fyrir að draga sér ríflega tólf milljónir úr dánarbúi Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 2. júní 2026 20:36 Héraðssaksóknara hefur borist kæra Vilhjálms. Vísir/Vilhelm Guðrún Björg Birgisdóttir lögmaður hefur verið kærð fyrir að draga sér á annan tug milljóna króna í störfum sínum sem skiptastjóri dánarbús konu.
Heimildin greindi fyrst frá því að Vilhjálmur H. Vilhjálmsson lögmaður höfðaði mál fyrir hönd tveggja erfingja konunnar sem lést árið 2024. Hún er sögð hafa dregið sér rúmlega 12,5 milljónir króna. Guðrún Björg stofnaði og rak lögmannsstofuna Logia sem var úrskurðuð gjaldþrota í janúar á þessu ári. Samkvæmt því er fram kemur í kæru Vilhjálms mun hún hafa millifært fé sem geymt var á fjárvörslureikningi lögmannsstofu sinnar inn á eigin bankareikning með tíu millifærslum. Alls námu peningarnir 12.571.625 krónum. Tveir af þremur erfingjum konunnar eru brotaþolar í málinu og hafa farið fram á að Vilhjálmur verði skipaður réttargæslumaður þeirra á meðan rannsókn lögreglu á málinu stendur. Féð var í eigu dánarbúsins en geymt í fjárvörslureikningi Logia. Lögmönnum sem halda utan um fé umbjóðanda ber að halda því aðskildu frá eigin fé, í sérstökum fjárvörslureikningi. Sömuleiðis ber honum samkvæmt reglugerð um fjárvörslureikninga, að veita stjórn Lögmannafélags Íslands upplýsingar um vörslufé. Ríkisútvarpið greinir frá því að lögmannsréttindi Guðrúnar Bjargar hafi verið felld niður í ársbyrjun að beiðni Lögmannafélagsins sökum þess að hún hafði ekki skilað fjárvörsluyfirlýsingu en þær eiga að berast 1. október á ári hverju.
Lögmennska Dómsmál Efnahagsbrot Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira