Dýrum stefnt í hættu Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 2. júní 2026 19:31 Jón Magnús Jónsson segir dýrunum hafa verið stefnt í hættu. Vísir/Bjarni Starfsmaður alifuglabús segir dýrum hafa verið stefnt í hættu þegar brotist var inn í búið í vikunni. Aflífa þurfti dýr sem hleypt var út.
Brotist var inn í Reykjabú í Mosfellsbæ aðfaranótt mánudags en þar eru ræktaðir kalkúnar og kjúklingar. Skemmdarverk voru unnin á býlinu en að minnsta kosti einn maður var að verki. „Hann kemur hérna svona upp úr þrjú að nóttu til og fer hérna inn um hurð að framanverðu,“ segir Jón Magnús Jónsson starfsmaður Reykjabús. Hann segir tilganginn væntanlega hafa verið að hleypa fuglunum út en með því að fara inn í húsin hafi allar sóttvarnarreglur verið brotnar. „Það er náttúrulega mikil áhersla lögð á hreinlæti og sóttvarnir. Við erum alltaf að reyna að verjast þessum sjúkdómum sem geta fundist í alifuglum.“ Þegar starfsmaður kemur á svæðið um hálf fjögur hafi sjö eða átta fuglar verið komnir út en á myndbandi sést maðurinn halda nokkrum þeirra út. „Við náttúrulega neyðumst bara til að aflífa þá.“ Sundurtætt skilaboð Skilin var eftir svokölluð stefnuyfirlýsing sem var sams konar og skilin var eftir í innbroti í svínabú Stjörnugríss í upphafi maímánaðar. „Hann skildi eftir skilaboð sem voru reyndar öll sundurtætt en það var eitthvað hægt að ráða í þau. Hann minntist einmitt á Kjalarnes og þetta gæti vel verið sami náunginn og fór þarna inn hjá Stjörnugrís.“ Hann segir að það hafi staðið í skilaboðunum að þetta hafi verið gert í nafni dýraverndar en það að hleypa dýrunum út stefni þeim hins vegar í hættu. „Hann er í raun og veru að setja allan búskapinn í hættu með því að fara svona inn eins og hann gerir.“ Hann segir innbrotið mikið áfall en um fjölskyldufyrirtæki sé að ræða. „Það hefði verið miklu skárra ef að hann hefði tekið bara einhverjar tölvur eða bíla eða eitthvað heldur en að fara svona inn eins og hann gerði þarna. Það er náttúrulega óþægilegra að það sé maður inni hjá hænunum að raska ró þeirra og sé að stofna þeim í hættu í raun og veru.“
Matvælaframleiðsla Lögreglumál Dýr Mosfellsbær Innbrot í kjúklinga-, svína- og minkabú Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Fleiri fréttir Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Sjá meira