Mygluna burt úr Laugalækjarskóla Stefán Steingrímur Bergsson skrifar 1. júní 2026 14:03 Ég er kennari í unglingaskólanum Laugalækjarskóla í Laugardal, á mínu níunda ári í starfi. Á þessum árum hef ég: - Leitað til læknis vegna slappleika og slens og lítils þreks: mygla. - Borðað hádegismat og kaffi baksviðs í gluggalausu rými: mygluviðgerðir. - Horft upp á samstarfsfólk mitt verða fyrir heilsubresti: mygla. - Horft upp á nemendur verða fyrir heilsubresti: mygla. - Kennt í leigðum sal út í bæ: mygluviðgerðir. Myglan og loftleysið hefur einkennt skólastarfið öll mín kennsluár í Laugalækjarskóla. Ef ekki væri fyrir frábært samstarfsfólk, fróðleiksfúsa nemendur og skynsama foreldra væri ég kannski hættur. Skólinn er góður þó myglan sé slæm. Ástandinu hefur verið mætt með æðruleysi og þolinmæði, því að ýmsar viðgerðir hafa átt sé stað. Hingað hafa valsað inn tugir iðnaðarmanna síðustu árin, eftirlitsmenn, verktakar og maður hefur það á tilfinningunni að allir séu að gera sitt til að laga hlutina. Staðan nú er sú að stjórnendagangur skólans með sex skrifstofurýmum og einu fundarherbergi er grútmyglaður. Þau sem vinna þar finna fyrir einkennum og sjálfur neita ég að stíga fæti inn í fundarherbergið. Verktaki er klár í bátana að laga þetta og það stóð til að gera það og fleira í sumar – enda ógerningur að gera það á skólatíma. EN! „Nú er ekki lengur til peningur og framkvæmdum frestað“ kemur skyndilega frá borginni. Þegar ég heyrði þetta fyrst fylltist ég mikilli reiði, allt að því bræði. Þessi ákvörðun er ekki verjandi, henni verður að hnekkja. Ég, nemendur mínir, samstarfsfólk og stjórnendur skólans verðum að geta unnið í ásættanlegu rými. Það þarf að læra af sögunni: afar farsæll skólastjóri nágranna okkar í Laugarnesskóla, Sigríður Heiða Bragadóttir, hætti fyrir fáeinum árum sökum myglu – að læknisráði eftir að hafa þrjóskast lengi við í starfi. Nú reynir á kjörna fulltrúa nýs meirihluta borgarstjórnar að standa undir loforðum um forgangsröðun verkefna borgarinnar. Til þeirra segi ég: breytið þessu, breytið þessu sem allra fyrst svo verktakinn geti byrjað strax um miðjan júní. Standið undir vígorði kosningabaráttunnar og hnekkið þessari ákvörðun STRAX! Höfundur er kennari í Laugalækjarskóla. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mygla Grunnskólar Reykjavík Mest lesið Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal Skoðun Forréttindafólk sem segir nei Margrét Guðmundsdóttir Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson Skoðun Saga úr heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga Magnea Gunnarsdóttir Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Góðar fréttir af almenningssamgöngum Davíð Þorláksson Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit Skoðun Saga frá Svíþjóð - Lífskjör mælast ekki í vaxtaprósentum Berglind Ragnarsdóttir Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir Skoðun Frekjukallar fyrr og nú Arnar Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir skrifar Skoðun Réttarríki fyrir lengra komna Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað er að því að vera heimsborgari? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Þegar sauðfé verður á vegi okkar Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Það skiptir máli að velja rétta séreign Harpa Jónsdóttir skrifar Skoðun Svartir svanir á Reykjanesi Böðvar Tómasson skrifar Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit skrifar Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Með vinnuna í vasanum? Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Saga úr heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga Magnea Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson skrifar Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal skrifar Skoðun Góðar fréttir af almenningssamgöngum Davíð Þorláksson skrifar Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Getur Evrópusinni af hugsjón sannfært hrædda þjóð? Sigurjón Ólafsson skrifar Skoðun Frekjukallar fyrr og nú Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Forréttindafólk sem segir nei Margrét Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Saga frá Svíþjóð - Lífskjör mælast ekki í vaxtaprósentum Berglind Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Ekki nóg að telja milljarðana: Árangur verður að mælast Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Ljósmyndarinn á öld gervigreindar Kristján Logason skrifar Skoðun Þegar skattfé velur búsetu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Afmarkað vald er ekki endilega lítið vald Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Suðurland í sókn en Vegagerðin sker niður landsbyggðarstrætó skrifar Skoðun Þjóðarsjóðurinn okkar heitir Landsvirkjun. Erum við að ávaxta hann? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Lýðræði í skugga sérhagsmuna – sjálfseyðingarbarátta íslensks samfélags Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Björgum okkur frá þeim sem ætla að bjarga þjóðinni frá sjálfri sér Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Kristján Loftsson og stalínistarnir Arngrímur Stefánsson skrifar Skoðun Ríkisstjórnir og fjölmiðlar Evrópu – sameinaðir í stuðningi við þjóðarmorð Hlynur Már Ragnheiðarson skrifar Skoðun Að þýða texta er ekki það sama og að búa til námsefni Bogi Ragnarsson skrifar Sjá meira
Ég er kennari í unglingaskólanum Laugalækjarskóla í Laugardal, á mínu níunda ári í starfi. Á þessum árum hef ég: - Leitað til læknis vegna slappleika og slens og lítils þreks: mygla. - Borðað hádegismat og kaffi baksviðs í gluggalausu rými: mygluviðgerðir. - Horft upp á samstarfsfólk mitt verða fyrir heilsubresti: mygla. - Horft upp á nemendur verða fyrir heilsubresti: mygla. - Kennt í leigðum sal út í bæ: mygluviðgerðir. Myglan og loftleysið hefur einkennt skólastarfið öll mín kennsluár í Laugalækjarskóla. Ef ekki væri fyrir frábært samstarfsfólk, fróðleiksfúsa nemendur og skynsama foreldra væri ég kannski hættur. Skólinn er góður þó myglan sé slæm. Ástandinu hefur verið mætt með æðruleysi og þolinmæði, því að ýmsar viðgerðir hafa átt sé stað. Hingað hafa valsað inn tugir iðnaðarmanna síðustu árin, eftirlitsmenn, verktakar og maður hefur það á tilfinningunni að allir séu að gera sitt til að laga hlutina. Staðan nú er sú að stjórnendagangur skólans með sex skrifstofurýmum og einu fundarherbergi er grútmyglaður. Þau sem vinna þar finna fyrir einkennum og sjálfur neita ég að stíga fæti inn í fundarherbergið. Verktaki er klár í bátana að laga þetta og það stóð til að gera það og fleira í sumar – enda ógerningur að gera það á skólatíma. EN! „Nú er ekki lengur til peningur og framkvæmdum frestað“ kemur skyndilega frá borginni. Þegar ég heyrði þetta fyrst fylltist ég mikilli reiði, allt að því bræði. Þessi ákvörðun er ekki verjandi, henni verður að hnekkja. Ég, nemendur mínir, samstarfsfólk og stjórnendur skólans verðum að geta unnið í ásættanlegu rými. Það þarf að læra af sögunni: afar farsæll skólastjóri nágranna okkar í Laugarnesskóla, Sigríður Heiða Bragadóttir, hætti fyrir fáeinum árum sökum myglu – að læknisráði eftir að hafa þrjóskast lengi við í starfi. Nú reynir á kjörna fulltrúa nýs meirihluta borgarstjórnar að standa undir loforðum um forgangsröðun verkefna borgarinnar. Til þeirra segi ég: breytið þessu, breytið þessu sem allra fyrst svo verktakinn geti byrjað strax um miðjan júní. Standið undir vígorði kosningabaráttunnar og hnekkið þessari ákvörðun STRAX! Höfundur er kennari í Laugalækjarskóla.
Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Þjóðarsjóðurinn okkar heitir Landsvirkjun. Erum við að ávaxta hann? Sigvaldi Einarsson skrifar
Skoðun Lýðræði í skugga sérhagsmuna – sjálfseyðingarbarátta íslensks samfélags Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Björgum okkur frá þeim sem ætla að bjarga þjóðinni frá sjálfri sér Þórður Snær Júlíusson skrifar
Skoðun Ríkisstjórnir og fjölmiðlar Evrópu – sameinaðir í stuðningi við þjóðarmorð Hlynur Már Ragnheiðarson skrifar