„Okkur þykir vænt um svæðið og við höfum áhyggjur af því“ Freyja Þórisdóttir skrifar 30. maí 2026 19:10 Stefán Georgsson er skráður fyrir undirskriftasöfnun sem ber yfirheitið Hvaleyrarvatn - ekki byggja í Vatnshlíð. Vísir/Arnar/Aðsend Ríflega þúsund hafa þegar skrifað undir undirskriftalista sem ber yfirheitið Hvaleyrarvatn - ekki byggja í Vatnshlíð en í tillögu að nýju Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2025-2040 er gert ráð fyrir íbúðabyggð við vatnið. Á vef Hafnarfjarðar segir að „Hvaleyrarvatn og umhverfi sé eitt það fallegasta á höfuðborgarsvæðinu" og eru þar fjölmargar gönguleiðir. Stefán Georgsson er skráður ábyrgðarmaður undirskriftalistans en hann segir marga standa að baki honum með sér. „Ég er sjálfur hlaupari og fer þarna um mjög reglulega en við erum mörg sem þykir vænt um staðinn og höfum áhyggjur af þessu,“ segir hann í samtali við blaðamann Vísis og bætir við að áður hafi það verið í skipulagi að byggja skuli á svæðinu. „Hafnarfjörður á ekki nógu góða sögu í skipulagi hingað til, þegar það var byggt á Hamranesi fengu verktakar til dæmis hver sína lóð til umsjónar og þar átti að reisa alls um fimmtán hundruð íbúðir en þær urðu ríflega þrjú þúsund,“ segir Stefán einnig. Hann kemur inn á það að þarna verði mögulega reistar fimm hæða blokkir en segir að það gæti allt eins verið að þær verði hærri. „Það gerðist í Hamranesi að það var leyfi fyrir fimm hæða blokkum en svo byggðu verktakarnir sex hæða háar blokkir á reitunum,“ útskýrir Stefán. Þá segir hann að það væri strax betra ef þarna yrðu byggð lágreist íbúðarhús en að „auðvitað væri best að fá þetta annars staðar“. Myndi hafa slæm áhrif á líðan fjölmargra Íslendinga Svæðið er sem fyrr segir vinsælt meðal göngu- og hlaupafólks og segist Stefán finna fyrir því að það sé eins og hann sé kominn út í sveit þarna við vatnið, þrátt fyrir hversu stutt það sé fyrir hann að fara. Hér fyrir neðan má sjá það sem stendur á vef island.is við undirskriftalistann. Athugasemdir vegna tillögu að nýju aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2025-2040, mál nr.1446/2025 Í tillögu að nýju Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2025-2040 er gert ráð fyrir íbúðabyggð í og við Vatnshlíð, svæði merkt ÍB12. Þetta svæði, sérstaklega svæðið næst Hvaleyrarvatni er mikið notað útivistarsvæði og tengist beint stígakerfinu við Hvaleyararvatn. Þá er Vatnshlíðin ofan Hvaleyrarvatns mjög áberandi í heildarásýnd svæðisins. Svæðið kringum Hvaleyrarvatn er ómetanleg perla fyrir Hafnfirðinga og aðra sem njóta þess. Það að geta notið útivistar í ósnortinni náttúru er mikils virði og hefur góð áhrif á andlegt og líkamlegt heilbrigði. Þá er svæðið aðgengilegt og því geta flestir notið þessarar náttúruperlu í nágrenni við þéttbýlið. Á heimasíðu Hafnarfjarðarbæjar segir um svæðið: “Hvaleyrarvatn og umhverfi er eitt það fallegasta á höfuðborgarsvæðinu." Farið er fram á að skipulagi verði breytt þannig að fyrirhuguð byggð muni ekki sjást frá Hvaleyrarvatni. Þá skrifar Anna Sigríður Sveinbjörnsdóttir umsögn á vef skipulagsgáttar þar sem hún tekur undir með Stefáni og ítrekar að „hvers konar íbúðabyggð, hvað þá háreistar byggingar, allt að fimm hæðir, niður undir miðja Vatnshlíð, myndi hafa veruleg neikvæð áhrif á gæði útivistarsvæðisins við Hvaleyrarvatn og þannig hafa slæm áhrif á líðan fjölmargra Íslendinga“.Hún skrifar þar einnig að það að geta „notið útivistar í ósnortinni náttúru fjarri ys og þys Borgarbyggðar sé mikils virði og hafi góð áhrif á andlegt og líkamlegt heilbrigði. Einstök veðursæld sé á svæðinu sem ekki sé að finna annars staðar í upplandi Hafnarfjarðar. Þess vegna sæki fólk þangað nánast allan ársins hring“. Hafnarfjörður Skipulagsmál Mest lesið Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Stórfelldur niðurskurður fyrirhugaður í vegagerð Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Fleiri fréttir Braut reglur þegar hann minntist Steins Stórfelldur niðurskurður fyrirhugaður í vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft „Við erum að laga Ísland“ Útgjöldin mikil en niðurstaðan rýr Bein útsending: Stefnuræða forsætisráðherra Dæmdir fyrir að sprengja heimagerða sprengju í Múlagöngum Ríkisstjórnin í mun veikari stöðu eftir erfitt sumar Skora á yfirvöld að taka SÁÁ til skoðunar „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ Sjá meira
Stefán Georgsson er skráður ábyrgðarmaður undirskriftalistans en hann segir marga standa að baki honum með sér. „Ég er sjálfur hlaupari og fer þarna um mjög reglulega en við erum mörg sem þykir vænt um staðinn og höfum áhyggjur af þessu,“ segir hann í samtali við blaðamann Vísis og bætir við að áður hafi það verið í skipulagi að byggja skuli á svæðinu. „Hafnarfjörður á ekki nógu góða sögu í skipulagi hingað til, þegar það var byggt á Hamranesi fengu verktakar til dæmis hver sína lóð til umsjónar og þar átti að reisa alls um fimmtán hundruð íbúðir en þær urðu ríflega þrjú þúsund,“ segir Stefán einnig. Hann kemur inn á það að þarna verði mögulega reistar fimm hæða blokkir en segir að það gæti allt eins verið að þær verði hærri. „Það gerðist í Hamranesi að það var leyfi fyrir fimm hæða blokkum en svo byggðu verktakarnir sex hæða háar blokkir á reitunum,“ útskýrir Stefán. Þá segir hann að það væri strax betra ef þarna yrðu byggð lágreist íbúðarhús en að „auðvitað væri best að fá þetta annars staðar“. Myndi hafa slæm áhrif á líðan fjölmargra Íslendinga Svæðið er sem fyrr segir vinsælt meðal göngu- og hlaupafólks og segist Stefán finna fyrir því að það sé eins og hann sé kominn út í sveit þarna við vatnið, þrátt fyrir hversu stutt það sé fyrir hann að fara. Hér fyrir neðan má sjá það sem stendur á vef island.is við undirskriftalistann. Athugasemdir vegna tillögu að nýju aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2025-2040, mál nr.1446/2025 Í tillögu að nýju Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2025-2040 er gert ráð fyrir íbúðabyggð í og við Vatnshlíð, svæði merkt ÍB12. Þetta svæði, sérstaklega svæðið næst Hvaleyrarvatni er mikið notað útivistarsvæði og tengist beint stígakerfinu við Hvaleyararvatn. Þá er Vatnshlíðin ofan Hvaleyrarvatns mjög áberandi í heildarásýnd svæðisins. Svæðið kringum Hvaleyrarvatn er ómetanleg perla fyrir Hafnfirðinga og aðra sem njóta þess. Það að geta notið útivistar í ósnortinni náttúru er mikils virði og hefur góð áhrif á andlegt og líkamlegt heilbrigði. Þá er svæðið aðgengilegt og því geta flestir notið þessarar náttúruperlu í nágrenni við þéttbýlið. Á heimasíðu Hafnarfjarðarbæjar segir um svæðið: “Hvaleyrarvatn og umhverfi er eitt það fallegasta á höfuðborgarsvæðinu." Farið er fram á að skipulagi verði breytt þannig að fyrirhuguð byggð muni ekki sjást frá Hvaleyrarvatni. Þá skrifar Anna Sigríður Sveinbjörnsdóttir umsögn á vef skipulagsgáttar þar sem hún tekur undir með Stefáni og ítrekar að „hvers konar íbúðabyggð, hvað þá háreistar byggingar, allt að fimm hæðir, niður undir miðja Vatnshlíð, myndi hafa veruleg neikvæð áhrif á gæði útivistarsvæðisins við Hvaleyrarvatn og þannig hafa slæm áhrif á líðan fjölmargra Íslendinga“.Hún skrifar þar einnig að það að geta „notið útivistar í ósnortinni náttúru fjarri ys og þys Borgarbyggðar sé mikils virði og hafi góð áhrif á andlegt og líkamlegt heilbrigði. Einstök veðursæld sé á svæðinu sem ekki sé að finna annars staðar í upplandi Hafnarfjarðar. Þess vegna sæki fólk þangað nánast allan ársins hring“.
Athugasemdir vegna tillögu að nýju aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2025-2040, mál nr.1446/2025 Í tillögu að nýju Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2025-2040 er gert ráð fyrir íbúðabyggð í og við Vatnshlíð, svæði merkt ÍB12. Þetta svæði, sérstaklega svæðið næst Hvaleyrarvatni er mikið notað útivistarsvæði og tengist beint stígakerfinu við Hvaleyararvatn. Þá er Vatnshlíðin ofan Hvaleyrarvatns mjög áberandi í heildarásýnd svæðisins. Svæðið kringum Hvaleyrarvatn er ómetanleg perla fyrir Hafnfirðinga og aðra sem njóta þess. Það að geta notið útivistar í ósnortinni náttúru er mikils virði og hefur góð áhrif á andlegt og líkamlegt heilbrigði. Þá er svæðið aðgengilegt og því geta flestir notið þessarar náttúruperlu í nágrenni við þéttbýlið. Á heimasíðu Hafnarfjarðarbæjar segir um svæðið: “Hvaleyrarvatn og umhverfi er eitt það fallegasta á höfuðborgarsvæðinu." Farið er fram á að skipulagi verði breytt þannig að fyrirhuguð byggð muni ekki sjást frá Hvaleyrarvatni.
Hafnarfjörður Skipulagsmál Mest lesið Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Stórfelldur niðurskurður fyrirhugaður í vegagerð Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Fleiri fréttir Braut reglur þegar hann minntist Steins Stórfelldur niðurskurður fyrirhugaður í vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft „Við erum að laga Ísland“ Útgjöldin mikil en niðurstaðan rýr Bein útsending: Stefnuræða forsætisráðherra Dæmdir fyrir að sprengja heimagerða sprengju í Múlagöngum Ríkisstjórnin í mun veikari stöðu eftir erfitt sumar Skora á yfirvöld að taka SÁÁ til skoðunar „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ Sjá meira