Maðurinn enn í lífshættu og á gjörgæslu Lovísa Arnardóttir skrifar 30. maí 2026 11:20 Vilhjálmur Vilhjálmsson er lögmaður mannsins sem fluttur var með sjúkraflugi til Noregs 20. maí. Vísir/Vilhelm og aðsend Karlmaðurinn sem var fluttur til Noregs með brunasár í kjölfar lögregluaðgerða í Reykjanesbæ er enn í lífshættu og á gjörgæslu. Mál mannsins er til rannsóknar hjá embætti héraðssaksóknara. Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, lögmaður mannsins, segir stöðuna enn grafalvarlega. „
Staðan er enn grafalvarleg, hann er enn í lífshættu og enn á gjörgæslu, en það er farið að létta á svæfingunni á honum. Hann er kominn aðeins til meðvitundar,“ segir Vilhjálmur í samtali við fréttastofu. Um er að ræða Íslending á fimmtugsaldri. Lögreglan á Suðurnesjum hafði afskipti af manninum í síðustu viku þar sem hann var í kirkjugarðinum í Keflavík. Maðurinn hafði hellt yfir sig íkveikjuvökva og beitti lögreglan rafbyssu. Sjónarvottur lýsti því í kvöldfréttum Sýnar hvernig kviknað hefði í manninum. Lögregla segir manninn hafa kveikt eldinn sjálfur með kveikjara en ekki er hægt að útiloka að eldurinn hafi kviknað út frá rafbyssunni. Sjá einnig: Ekkert sem bannar upptökur af lögregluaðgerðum á almannafæri Vilhjálmur segir að við komu til Noregs hafi maðurinn þurft að fá barkaþræðingu til að geta andað. Hann sé með lungnabólgu og sé mikið brunninn og því sé enn töluverð sýkingarhætta. „Hann er enn á gjörgæslu og verður það áfram og lengi,“ segir Vilhjálmur og að hann verði áfram í Noregi á meðan staðan sé svo alvarleg. Vilhjálmur sagði í samtali við Vísi fyrr í mánuðinum að lögregla hefði stórskaðað manninn og gengið of harkalega fram þegar rafvarnarvopni var beitt eftir að maðurinn hafði hellt yfir sig eldfimum vökva.
Reykjanesbær Rafbyssur Lögreglumál Lögreglan Noregur Tengdar fréttir „Ég treysti því að lögreglan muni skoða þetta mjög rækilega“ Framkvæmdastjóri Geðhjálpar segir samtökin hafa bent á að svo virðist sem þekkingarleysi sé innan lögreglunnar þegar hafa þarf afskipti af fólki sem glímir við andleg vandamál. Hann segir óhugnanlegt þegar rafbyssum er beitt líkt og gert var við handtöku í Reykjanesbæ í gær. 19. maí 2026 16:30 „Get fullyrt að þetta mun ekki valda neinum réttarspjöllum“ Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir að beiting rafvarnarvopns við aðstæður sem uppi voru við handtöku í Keflavík í gær sé varasöm og fullyrðir að engin réttarspjöll verði þó vitni að atvikinu hafi verið gert að eyða myndbandi af handtökunni. 19. maí 2026 12:29 Lögreglu hafi stafað hætta af manninum Yfirlögregluþjónn Lögreglunnar á Suðurnesjum segir lögreglumenn hafa tekið upplýsta ákvörðun þegar þeir ákváðu að beita rafvarnarvopni gegn manni sem þakinn var íkveikivökva í morgun. Þá hafi manni verið gert að eyða myndefni af atvikinu í þágu hagsmuna þess sem beittur var rafvopninu, enda hafi hann verið án fata. 18. maí 2026 16:59 Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira
„Ég treysti því að lögreglan muni skoða þetta mjög rækilega“ Framkvæmdastjóri Geðhjálpar segir samtökin hafa bent á að svo virðist sem þekkingarleysi sé innan lögreglunnar þegar hafa þarf afskipti af fólki sem glímir við andleg vandamál. Hann segir óhugnanlegt þegar rafbyssum er beitt líkt og gert var við handtöku í Reykjanesbæ í gær. 19. maí 2026 16:30
„Get fullyrt að þetta mun ekki valda neinum réttarspjöllum“ Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir að beiting rafvarnarvopns við aðstæður sem uppi voru við handtöku í Keflavík í gær sé varasöm og fullyrðir að engin réttarspjöll verði þó vitni að atvikinu hafi verið gert að eyða myndbandi af handtökunni. 19. maí 2026 12:29
Lögreglu hafi stafað hætta af manninum Yfirlögregluþjónn Lögreglunnar á Suðurnesjum segir lögreglumenn hafa tekið upplýsta ákvörðun þegar þeir ákváðu að beita rafvarnarvopni gegn manni sem þakinn var íkveikivökva í morgun. Þá hafi manni verið gert að eyða myndefni af atvikinu í þágu hagsmuna þess sem beittur var rafvopninu, enda hafi hann verið án fata. 18. maí 2026 16:59