Viðskipti innlent

At­vinnu­leysi lækkar en ó­vissa eykst

Sigurgeir Þorkelsson skrifar
Tilkynnt hefur verið um stórar uppsagnir í maímánuði sem ekki eru enn komnar fram í atvinnuleysistölum.
Tilkynnt hefur verið um stórar uppsagnir í maímánuði sem ekki eru enn komnar fram í atvinnuleysistölum. Vísir/Vilhelm

Atvinnuleysi mælist 5,8% en var 3,3% á sama tíma í fyrra. Atvinnuleysi dregst saman milli mánaða en síðasta mæling Hagstofunnar var 6,3%. Atvinnuleysistölur eru birtar mánaðarlega. 

Forstjóri Vinnumálastofnunar sagði í samtali við fréttastofu í gær að greinileg merki væru um kólnun á vinnumarkaði.

Hagstofan birtir mánaðarlega tölur um atvinnuleysi á Íslandi. Tölur Hagstofunnar eru leiðréttar fyrir árstíðabundnum skekkjum, en atvinnuleysi á Íslandi eykst umtalsvert yfir vetrarmánuðina.

Í apríl 2025 mældist atvinnuleysi 3,3% og hefur atvinnuleysi því aukist um tvö komma fimm prósentustig frá því fyrir ári. Alls eru nú 13.500 atvinnulaus á Íslandi samkvæmt Hagstofunni.

Vísir hefur síðustu vikur birt fréttir af stórum uppsögnum. Hjá greiðslulausnafyrirtækinu Rapyd var um fjörutíu sagt upp og á skrifstofum Bláa lónsins tæplega þrjátíu. 

Þá neyddust Berjaya-hótel til að segja tæplega 300 upp. Tengjast uppsagnirnar tilfærslu Natura og Hilton Nordica hótelanna yfir til Íslandshótela. Stjórnendur Íslandshótela hafa sagt að vonir standi til að hægt sé að bjóða öllu starfsfólki áframhaldandi vinnu.

Uppsagnir Bláa lónsins voru umtalsverðar og náðu til um fimmtungs starfsfólks á skrifstofu félagsins. Enn starfa þó tæplega 800 manns fyrir félagið.

Rætt var við Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar í gær vegna uppsagna hjá Bláa lóninu. Hann sagði stöðu innan geirans góða út sumarið en mikil óvissa taki við í haust. Þá væri sólmyrkvinn 12. ágúst næstkomandi mikil búbót fyrir greinina. 

Jóhannes sagði fyrirtæki mörg halda að sér höndum við ráðningar í núverandi ástandi. Þá hefðu sum fyrirtæki einnig gripið til minni uppsagna sem ekki kæmu endilega fram í fréttaflutningi. 

Þá ríkir óvissa í rekstri Icelandair og stendur félagið í rauðglóandi kjaradeilu við flugmenn, auk annarra stétta innan félagsins. Vísir hefur gert málinu skil ítarlega og má finna nýjustu frétt okkar um málið hér að neðan. 


Tengdar fréttir

Uppsagnir hjá Bláa lóninu

Uppsagnir hafa staðið yfir í morgun í Bláa lóninu. 29 stöðugildi verða lögð niður og 55 starfsmenn flytja milli sviða. Forstjóri fyrirtækisins segir markmiðið að skerpa á hlutverki móðurfélags lónsins. 

Sendir flug­mönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“

„Maður mjólkar ekki dauða kú“ segir Marinó Örn Tryggvason, fyrrverandi forstjóri Kviku í innsendri grein í Morgunblaðið um stöðu Icelandair. Félagið hefur verið til mikillar umfjöllunar síðustu vikur, hlutabréfaverð er í ládeyðu og niðurfellingar hafa flugferða hafa verið tíðar. Hafa niðurfellingar verið tengdar við óformlegar aðgerðir flugmanna félagsins sem eiga nú í kjaraviðræðum við Icelandair. Marinó fullyrðir að félagið sé mikilvægasta fyrirtæki landsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×