It's complicated: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Stefanía K. Ásbjörnsdóttir skrifar 30. maí 2026 07:01 Að velja sér gjaldmiðil er engin einföld spurning. Ný skýrsla, pöntuð af ríkisstjórn í ESB leiðangri, svarar engu þar um en við því var heldur ekki að búast. Almennt er viðtekin sú skoðun að opið hagkerfi geti aðeins búið við tvennt af þrennu: fast gengi, frjálst fjármagnsflæði og sjálfstæða peningastefnu. Sjálfstæð peningastefna og frjálst flæði fjármagns parast þannig ekki með föstu gengi. Fast gengi krefst þess að öðru hvoru sé fórnað: frjálsu fjármagnsflæði eða sjálfstæðri peningastefnu. Með upptöku evru má segja að gengið sé fest. Þá er ekki í boði að takmarka fjármagnsflæði milli landa enda eitt skilyrði fjórfrelsisins. Sjálfstæðri peningastefnu er því fórnað. Það tengja ekki allir við peningastefnuna. Hún er framkvæmd í Seðlabankanum af okkar færustu hagfræðingum, stundum svolítið langt frá hversdagsleika fólks. En hún er mikilvægur öryggisventill í okkar hagkerfi. Þegar áföll dynja á er hægt að bregðast við þeim, dempa áhrifin og flýta bata með því að aðlaga vexti að aðstæðum. Þá getur gengi krónunnar gefið eftir sömuleiðis. Allt til þess að fallið að auðvelda viðspyrnu, tryggja atvinnu og stöðugleika á ný. Þegar sjálfstæðrar peningastefnu er ekki til að dreifa og gengið er fast er eina leiðin til aðlögunar að jafnvægi á ný aukið atvinnuleysi og / eða lækkun launa. Lönd ESB þekkja þetta vel. Fórnarskiptin eru því í einföldu máli þessi: í stað verðbólgu og gengissveiflna kemur atvinnuleysi (ég leyfi mér að fullyrða að nafnlaunalækkanir komi aldrei til skoðunar hér á landi). Kostnaður efnahagsáfalla lendir þá á herðum fárra óheppinna í stað þess að dreifast yfir samfélagið í heild. Viðspyrnan er erfiðari og tímafrekari, kostnaðurinn er einnig ósýnilegur að hluta enda verður andlegt álag við langvarandi atvinnuleysi ekki metið til fjár. Þetta er meðal lykilspurninga sem svara þarf. Eru þetta skipti sem við sem samfélag sættum okkur við? Teljum ákjósanleg? Niðurstaða nýrrar skýrslu um valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum er þessi: “On balance, the stabilisation value of the floating ISK appears more limited than the standard argument implies. The CBI has an effective monetary policy instrument, and 2008 shows that the exchange rate can facilitate adjustment during severe crises, but during normal times the costs of ISK volatility may exceed its absorbing effects. Whether the benefits of euro adoption can be realised will depend on complementary reforms, in particular to wage-setting institutions.” Það er: kostnaður vegna krónunnar gæti verið meiri en ábatinn. Breytingar eru nauðsynlegar hvort heldur sem er. Sjálfstæður gjaldmiðill í litlu opnu hagkerfi hefur sína kosti og galla. Það var vitað fyrir fram, eins og það að svona skýrsla gæti ekki skorið úr um fyrir fullt og allt hvort halda eigi krónunni eða taka upp annan gjaldmiðil. Höfundur er hagfræðingur og framkvæmdastjóri þingflokks Sjálfstæðisflokksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sjálfstæðisflokkurinn Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Halldór 12.09.2026 Halldór Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Magnús Guðmundsson Skoðun Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks Rósa Líf Darradóttir Skoðun Foreldrar, hjálpum börnum að verða lesendur Guðmundur Engilbertsson Skoðun Síðan hvenær er ég enginn? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Hvað verður minna þegar ríkið tekur meira? Íris Ósk Gísladóttir Skoðun Af bíómiðum og baðlónum María Rut Ágústsdóttir Skoðun Hvað þarf að laga á Íslandi – hver ber ábyrgð? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Áður en við greinum barn þurfum við að skilja allt barnið Tara Khoshkhoo Skoðun Sögulegt skref fyrir dýr í Danmörku Linda Karen Gunnarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað þarf að laga á Íslandi – hver ber ábyrgð? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar andstæðingum eru eignuð orð Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Foreldrar, hjálpum börnum að verða lesendur Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Síðan hvenær er ég enginn? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Af bíómiðum og baðlónum María Rut Ágústsdóttir skrifar Skoðun Hvað verður minna þegar ríkið tekur meira? Íris Ósk Gísladóttir skrifar Skoðun Hver er okkar Napóleon Bónaparte? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Samfélagsumræðan og nunnan Ingibjörg Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun 0,01% er ekki undanþága frá ábyrgð Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Óréttlæti lífeyriskerfisins gagnvart ungu fólki Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við erum froskar í vatni sem nálgast suðu Isla Sweet,Jóhanna Malen Skúladóttir skrifar Skoðun Sögulegt skref fyrir dýr í Danmörku Linda Karen Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Áður en við greinum barn þurfum við að skilja allt barnið Tara Khoshkhoo skrifar Skoðun Samfélagslegt samtal er forsenda inngildingar í skólastarfi Helga Þórey Júlíudóttir,Sædís Ósk Harðardóttir skrifar Skoðun Þegar tengsl geta skipt sköpum Steinunn Bergmann,María Björk Ingvadóttir skrifar Skoðun Háskólamenntun á útsölu! Tombóluprís – allt á að seljast. Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Má þjóðin aðeins fá að anda? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun EES er ekki eina leiðin og kannski ekki sú skynsamlegasta lengur Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Hver fær að skilgreina hvað þjóðin sagði? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Fjórfrelsið og EES fyrir Ísland Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Já heilbrigðisráðherra - sóknarfærin eru mörg þegar kemur að lýðheilsu barna Halla Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Að PISA upp í vindinn – getur gervigreind þýtt námsefni fyrir börn? Steinþór Steingrímsson skrifar Skoðun Öldungaráð Reykjavíkurborgar tekið úr sambandi Viðar Eggertsson skrifar Skoðun Stöðugleiki á leigumarkaði Benedikt S. Benediktsson skrifar Skoðun Hálfsársuppgjör staðfestir áhyggjur af fjármálum Seltjarnarness Kristinn Ólafsson skrifar Skoðun 5,2% gjaldahækkanir – skýr skilaboðin inn á vinnumarkaðinn Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Hvað gætum við gert fyrir 112 milljarða? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hamingjuóskir til allra sem sögðu nei Einar Helgason skrifar Sjá meira
Skoðun Samfélagslegt samtal er forsenda inngildingar í skólastarfi Helga Þórey Júlíudóttir,Sædís Ósk Harðardóttir skrifar
Skoðun Háskólamenntun á útsölu! Tombóluprís – allt á að seljast. Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar
Skoðun Já heilbrigðisráðherra - sóknarfærin eru mörg þegar kemur að lýðheilsu barna Halla Þorvaldsdóttir skrifar
Skoðun Að PISA upp í vindinn – getur gervigreind þýtt námsefni fyrir börn? Steinþór Steingrímsson skrifar
Skoðun Hálfsársuppgjör staðfestir áhyggjur af fjármálum Seltjarnarness Kristinn Ólafsson skrifar