Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Samúel Karl Ólason skrifar 27. maí 2026 14:14 Til stendur að lenda mönnum á yfirborði tunglsins árið 2028. Það hefur tafist vegna þróunar lendingarfara, sem hefur ekki gengið eftir áætlunum. Til stendur að senda þrjú ómönnuð geimskip til tunglsins á þessu ári. NASA Senda á þrjú ómönnuð geimför til tunglsins á þessu ári og á að nota þau til að leggja grunninn að mönnuðum ferðum þangað og byggingu nýrra bækistöðva á yfirborðinu. Vonast er til þess að þrjú mismunandi lendingarför verði send til tunglsins á árinu og eiga þau að bera tungljeppa og ýmiskonar vísindabúnað þangað.
Lenda á þessum farmi nærri suðurpól tunglsins, þar sem einnig stendur til að reisa bækistöðvar á næstu árum. Forsvarsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) opinberuðu í gær grófa tímalínu um byggingu bækistöðva á tunglinu á næstu árum. Leggja á grunninn að þessum bækistöðvum og frekari ferðum til tunglsins með þremur ómönnuðum lendingum þar á þessu ári. Tveir mánuðir eru síðan geimfarar fóru til tunglsins og til baka, án þess að lenda þar. Næsta mannaða geimferð til tunglsins á ekki að eiga sér stað fyrr en á þarnæsta ári, 2028. Sjá einnig: Fullkomin lending eftir sögulega ferð Þrjár ómannaðar ferðir, sem til stendur að senda af stað á þessu ári, voru opinberaðar í gær. Áætlun þessi ber titilinn Moon Base og kallast fyrsta ferðin Moon Base I. Farið var yfir geimskotin þrjú á blaðamannafundi í gær. Moon Base-I á að senda af stað í haust og stendur til að nota lendingarfar Blue Origin, sem kallast Blue Moon Mark 1 Endurance, til að lenda á yfirborði tunglsins. Þetta geimfar á að flytja sérstaka myndavél til tunglsins en hana á meðal annars að nota til að kanna áhrif þrýstihreyfla á yfirborð tunglsins og hvort þeir komi tunglryki á mikla hreyfingu. Geimfarið á einnig að bera spegil til yfirborðs tunglsins, sem önnur geimför og geimfarar geta notað til að greina nákvæmlega hve langt þeir eru frá yfirborðinu við lendingar. Seinna á árinu stendur til að senda Griffin-lendingarfar fyrirtækisins Astrobotic með mikinn búnað til tunglsins. Þar á meðal er lítill tungljeppi sem nota á til að varpa ljósi á hvernig best sé að hanna tungljeppa framtíðarinnar. Þriðja ómannaða tunglferðin á árinu á að flytja Nova C Trinity-lendingarfar Intuitive Machines til tunglsins. Það á að bera ýmiskonar vísindabúnað til yfirborðsins sem nota á meðal annars til að auka skilning vísindamanna á aðstæðum og þróun yfirborðs tunglsins og kanna hvernig mismunandi efni bregðast við þeim aðstæðum sem finna má þar. Samkvæmt upplýsingum á vef NASA eru þetta fyrstu þrjár tunglferðirnar af fjölmörgum sem opinbera á seinna á árinu. Þessum ferðum er ætlað að afla gagna og bæta öryggi fyrir mannaðar geimferðir til tunglsins. Næsta geimskot í Artemis-áætluninni á að eiga sér stað á næsta ári. Þá eiga geimfarar að vera á braut um jörðina, þar sem þeir munu prófa að fara úr Orion-geimfari yfir í lendingarfar eða lendingarför sem starfsmenn SpaceX og Blue Origin eru að vinna að. Samkvæmt áætlunum NASA á að flytja geimfara til tunglsins með Orion-geimfari en þar eiga geimfararnir að fara um borð í lendingarfar frá annaðhvort SpaceX eða Blue Origin og nota það til að lenda á yfirborði tunglsins. Sjá einnig: Bæta við einu geimskoti og stefna á tunglið 2028- Annar fasi Moon Base-áætlunarinnar á svo að hefjast árið 2029 og standa yfir næstu ár í kjölfarið. Hann felur í sér að byrja á að reisa bækistöðvarnar á tunglinu, innviði og koma þar upp kjarnorkukljúf. Ekki stendur til að byrja að byggja híbýli fyrir menn fyrr en í þriðja fasa áætlunarinnar, seinna á næsta áratug. „Þá munum við geta sagt: „Hei, við erum hér og ætlum ekki að fara,“ sagði Carlos Garcia-Galan, yfirmaður Moon Base-áætlunarinnar, á blaðamannafundi í gær. Ítarlegar upplýsingar um Moon Base-áætlunina og fasa hennar má finna hér á vef NASA.
Tunglið Bandaríkin Artemis-áætlunin Geimurinn Tengdar fréttir Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Jared Isaacman, æðsti yfirmaður Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA), vill að Plútó verði skilgreind sem reikistjarna á ný. Næstum tveir áratugir eru liðnir síðan að himintunglið var svipt titlinum. 2. maí 2026 22:58 Bein útsending: Geimfararnir á heimleið Gremfararnir í Artemis II undirbúa nú komu inn í gufuhvolf jarðar en þeir eiga að lenda í Kyrrahafi um miðnætti í nótt. 10. apríl 2026 23:15 Bein útsending: Artemis II á leiðinni heim Geimfararnir fjórir um borð í Artemis II, sem fóru aftur fyrir tunglið, eru nú á leiðinni heim til jarðarinnar. Enginn hefur farið lengra út í geim heldur en geimfararnir. 8. apríl 2026 07:50 Fjær að heiman en nokkur maður frá upphafi Í nótt fara geimfararnir um borð í Artemis II aftur fyrir tunglið og í um fjörutíu mínútur rofnar allt samband við þá. Sjálft tunglið er fyrir. Í leiðinni verða þeir lengra að heiman en nokkur manneskja frá upphafi. 6. apríl 2026 10:49 NASA deilir myndum af jörðinni: „Treystið okkur, þið lítið æðislega vel út“ Geimferðastofnun Bandaríkjanna, betur þekkt sem NASA, hefur deilt myndum af jörðinni sem áhöfn Orion-geimfarsins, sem er nú á leið til tunglsins, tók úr geimfarinu á fimmtudaginn. 4. apríl 2026 08:44 Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Fleiri fréttir Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Sjá meira
Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Jared Isaacman, æðsti yfirmaður Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA), vill að Plútó verði skilgreind sem reikistjarna á ný. Næstum tveir áratugir eru liðnir síðan að himintunglið var svipt titlinum. 2. maí 2026 22:58
Bein útsending: Geimfararnir á heimleið Gremfararnir í Artemis II undirbúa nú komu inn í gufuhvolf jarðar en þeir eiga að lenda í Kyrrahafi um miðnætti í nótt. 10. apríl 2026 23:15
Bein útsending: Artemis II á leiðinni heim Geimfararnir fjórir um borð í Artemis II, sem fóru aftur fyrir tunglið, eru nú á leiðinni heim til jarðarinnar. Enginn hefur farið lengra út í geim heldur en geimfararnir. 8. apríl 2026 07:50
Fjær að heiman en nokkur maður frá upphafi Í nótt fara geimfararnir um borð í Artemis II aftur fyrir tunglið og í um fjörutíu mínútur rofnar allt samband við þá. Sjálft tunglið er fyrir. Í leiðinni verða þeir lengra að heiman en nokkur manneskja frá upphafi. 6. apríl 2026 10:49
NASA deilir myndum af jörðinni: „Treystið okkur, þið lítið æðislega vel út“ Geimferðastofnun Bandaríkjanna, betur þekkt sem NASA, hefur deilt myndum af jörðinni sem áhöfn Orion-geimfarsins, sem er nú á leið til tunglsins, tók úr geimfarinu á fimmtudaginn. 4. apríl 2026 08:44