Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Samúel Karl Ólason skrifar 26. maí 2026 12:57 Ein kvennanna og börn hennar við komuna til Ástralíu í morgun. AP/Christopher Hopkins, AAP Fleiri ástralskar konur, sem gengu á árum áður til liðs við Íslamska ríkið, og börn þeirra hafa ferðast til Ástralíu. Um er að ræða sex konur og þrettán börn sem lentu í Sydney og í Melbourne í morgun. Þær hafa ekki verið ákærðar enn en lögreglan segir það til skoðunar. Þrjár af fjórum konum sem sneru aftur til Ástralíu fyrr í mánuðinum hafa verið ákærðar fyrir þrælahald og hryðjuverkastarfsemi og sitja nú í gæsluvarðhaldi.
Enginn var handtekinn en konurnar eru til rannsóknar hjá lögreglunni. „Þetta er fólk sem tók þá hræðilegu ákvörðun að ganga til liðs við hættuleg hryðjuverkasamtök og að setja börn þeirra í ólýsanlega stöðu,“ sagði Tony Burk, innanríkisráðherra, í yfirlýsingu. Hann ítrekaði að ef einhver í hópnum hefði brotið lög, yrði viðkomandi refsað. Hann segir að konurnar hafi enga aðstoð fengið frá ríkisstjórninni til að komast aftur til Ástralíu. Ástralska ríkisútvarpið hefur eftir lögreglunni að leitað hafi verið í eigum kvennanna og barna þeirra og að gögn á símum þeirra og öðrum tækjum hafi verið afrituð. Konurnar eru allar ástralskir ríkisborgarar. Þetta er annar hópurinn sem ferðast til Ástralíu úr þeim búðum. Eitt barnanna í hópnum er nýorðið átján ára. Þá var einni konu meinað að ferðast snúa aftur til Ástralíu í bili vegna lögbanns. Eitt barn hennar varð eftir með henni. Í einhverjum tilfellum eru meira en tíu ár síðan konurnar fóru frá Ástralíu. Þegar vígamenn Íslamska ríkisins fóru eins og stormsveipur um stóra hluta Sýrlands og Írak árið 2014 og stofnuðu í kjölfarið kalífadæmi þeirra þar, ferðaðist fjöldi fólks til Sýrlands með því markmiði að ganga til liðs við samtökin. Þar á meðal voru margar konur en þegar þær komu til Sýrlands urðu þær yfirleitt fljótt giftar vígamönnum. Þess vegna hafa þær í gegnum árin verið kallaðar „brúðir ISIS“. Systir einnar þeirra sem lentu í Ástralíu í morgun sagði í samtali við 7News að hún hefði í raun verið fórnarlamb tælingar. Hún hafi verið fjórtán ára þegar hún fór frá Ástralíu til að giftast manni sem gekk síðar til liðs við ISIS. Getur verið erfitt að dæma ISIS-liða Frá falli kalífadæmisins hafa sýrlenskir Kúrdar haldið þúsundum erlendra vígamanna ISIS og fjölskyldna þeirra í fangabúðum. Í heildina eru þeir taldir hafa haldið um 55 þúsund konum og börnum í nokkrum búðum í Sýrlandi þar sem aðstæður hafa talist verulega slæmar. Kúrdar höfðu lengi kvartað yfir því að sitja uppi með erlenda vígamenn og fjölskyldur þeirra. Ríkisstjórnir heimaríkja þeirra hafa ekki viljað taka við þeim og því hafa þessar konur og börnin þeirra setið föst í búðunum um árabil. Þá hafa lengi verið uppi áhyggjur af mikilli öfgavæðingu í búðunum þar sem gildi Íslamska ríkisins eru sögð hafa að miklu leyti haldið velli. ABC ræddi við lækni sem hefur lengi barist fyrir því að þessar konur og börn fái að snúa aftur til Ástralíu. Hann segir að honum og öðrum hafi tekist að sannfæra nýja ríkisstjórn Sýrlands um að sleppa þeim. Það hafi meðal annars verið gert með því að benda á að ef konurnar hefðu brotið af sér yrði þeim refsað samkvæmt áströlskum lögum. Í mörgum tilfellum þar sem erlendir vígamenn ISIS hafa snúið aftur til síns heima hefur reynst erfitt að sakfella þá fyrir dómstólum, þar sem lítið hefur verið um raunveruleg sönnunargögn um að þeir hafi gengið til liðs við hryðjuverkasamtökin. Í flestum ríkjum var ekki ólöglegt að ferðast til Sýrlands, ef yfirhöfuð var hægt að sanna að viðkomandi hefði farið til Sýrlands. Þetta er stór ástæða þess að sýrlenskir Kúrdar hafa setið uppi með þetta fólk í gegnum árin. Í Ástralíu var það gert ólöglegt að ferðast til Sýrlands á þessum tíma. Þar hafa lögregluþjónar einnig reynt að afla upplýsinga um það hvort konurnar og aðrar hafi brotið alþjóðalög eða brotið gegn mannréttindalögum eins og til dæmis með þrælahaldi, sem var algengt í kalífadæmi ISIS á árum áður.
Ástralía Sýrland Hryðjuverkastarfsemi Mest lesið Kæra sautján ára Íslendings varð að einu umtalaðasta kynferðisbrotamáli Ítalíu Innlent Matthías kominn á áfangaheimili Innlent Efast um að fólk í undirheimunum pæli í tuftvélinni Innlent Fimmtíu myndaðir og fimm handteknir í alþjóðlegum aðgerðum gegn vændi á Íslandi Innlent Björguðu lambinu sem vildi ært komast til frænda sinna Innlent Ríflega 75 hafa afbókað gistingu á Hótel Breiðavík í aðdraganda almyrkva Innlent Tyrkir neita skipi fullu af hommum um að leggja að bryggju Erlent Nord Stream skemmdarverkin: Yfirvofandi réttarhöld gætu orðið bandamönnum erfið Erlent Sex slasaðir í rútuslysi í Suðursveit Innlent Gönguljósin á Miklubraut: Bráðalausn eða bið eftir stokknum? Innlent Fleiri fréttir Úkraínumenn uppiskroppa með loftvarnarflugskeyti Rússar ógnuðu bresku herskipi sem siglir við Ísland Hvetur leiðtoga Nató til að taka afgerandi ákvarðanir Telja gestinn úr öðru sólkerfi mun eldri en sólin okkar Vilja nýja rannsókn á Farage vegna gjafa frá sakamanni Tyrkir neita skipi fullu af hommum um að leggja að bryggju Kínverjar gera tilraunir með langdræga eldflaug á Kyrrahafi Nord Stream skemmdarverkin: Yfirvofandi réttarhöld gætu orðið bandamönnum erfið Tíu látnir í árásum Rússa á Kænugarð Enn besta lausnin að kaupa Grænland Mætti ekki í útför föður síns Tugþúsundir mótmæltu í Tirana Ræddi við bæði Pútín og Selenskí Hitabylgja skekur Bandaríkin á 250 ára afmælisdaginn Gerðu umfangsmiklar árásir á olíuinnviði Rússa Vikulöng jarðarför Khameini hafin Dauðsföllum fjölgaði um tugi prósenta í hitabylgjunni Ný þungunarrofslög taka gildi í Færeyjum Afhjúpa alþjóðlegt net manna sem byrla og brjóta gegn konum Trump sparkar í bandamenn í aðdraganda Nató-fundar í Ankara Fyrrum Ólympíufari ákærður fyrir að skemma laugina við Lincoln-minnismerkið Gary Glitter ákærður fyrir kynferðisbrot eina ferðina enn Að minnsta kosti átján látnir eftir umfangsmiklar árásir „Antonio hefur með eigin augum séð byggingar hrynja“ Páfagarður bannfærir alla presta og fylgjendur bræðralagsins Ellefu ára drengur lést eftir að hafa vaknað með leðurblöku á andlitinu Verða líklega bannfærðir eftir vígslu gegn vilja páfa Þrettán látnir hið minnsta eftir stóra drónaárás Rússa Paradís Kushner ógn við aðildarviðræður Albaníu og ESB Klifu á topp Empire State-byggingarinnar Sjá meira