Mikið álag á Messi en ekki alvarleg meiðsli Ágúst Orri Arnarson skrifar 26. maí 2026 10:30 Messi ætti að vera orðinn klár í slaginn fyrir HM og Íslendingar vona að hann verði tilbúinn fyrir það. Leonardo Fernandez/Getty Images Lionel Messi er ekki að glíma við alvarleg meiðsli en mikið álag hefur sett strik í reikninginn, skömmu fyrir heimsmeistaramótið í fótbolta.
Messi fór meiddur af velli í mögnuðum 6-4 sigri Inter Miami gegn Philadelphia Union á sunnudag. Hann hélt um lærið þegar hann gekk af velli á 73. mínútu. Staðan var þá 4-4 en Luis Suárez og Rodrigo De Paul skoruðu tvö mörk sem tryggðu Inter Miami sigurinn. Guillermo Hoyos, þjálfari Inter Miami, gerði lítið úr meiðslunum þegar hann spurður um þau eftir leik. Messi fór svo í frekari skoðanir í gær og þar var ekkert alvarlegt að hrjá hann. „Eftir frekari rannsóknir á mánudag bendir bráðabirgðagreining til vöðvaþreytu vegna ofálags í vinstri lærisvöðva,“ segir í yfirlýsingu félagsins en ekki kemur fram hversu langan tíma það mun taka Messi að jafna sig. 🩺 Injury Update presented by @BaptistHealthSFfor Leo Messi.Details: https://t.co/NPZn2mE33V pic.twitter.com/Atg3JpAORd— Inter Miami CF (@InterMiamiCF) May 25, 2026 Argentínumenn eru sagðir bjartsýnir á að Messi muni spila á HM og taka fullan þátt í undirbúningi liðsins fyrir mótið. Argentína spilar fyrsta leik sinn á HM þann 16. júní en áður mun liðið spila tvo æfingaleiki, gegn Hondúras þann 6. júní og gegn Íslandi þann 9. júní. Þetta er annað HM í röð þar sem Messi meiðist rétt áður. Hann mætti á HM 2022 með bólgna sin eftir að hafa fengið högg í leik með PSG. Messi endaði hins vegar á því að spila hverja einustu mínútu á mótinu og stóð uppi sem heimsmeistari. Messi er tvíríkjandi verðmætasti leikmaður MLS deildarinnar og hefur skorað 13 mörk og gefið 7 stoðsendingar í 16 leikjum á þessu tímabili.
HM 2026 í fótbolta Bandaríski fótboltinn Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Biður kínversku þjóðina afsökunar Fótbolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Bikar-Ísak skoraði í stórsigri „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sjáðu mark Júlíusar sem uppskar stig Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Sjá meira