Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Jón Þór Stefánsson skrifar 25. maí 2026 12:55 Frá vettvangi í gær. Vísir/Lýður Karlmaður um fertugt hefur verið úrskurðaður í fjögurra daga gæsluvarðhald vegna máls sem kom upp í Kársnesi í Kópavogi í gær. Þá hefur verið lagt hald á skotvopn.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu. Héraðsdómur Reykjaness féllst á varðhaldskröfu lögreglu á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Í tilkynningu lögreglu er málinu lýst sem „alvarlegu atviki í vesturbæ Kópavogs“ sem kom upp um hádegisbilið í gær. „Þar leitaði karlmaður á sextugsaldri í bakarí í hverfinu illa á sig kominn, en hann var með skotsár,“ segir í tilkynningunni, en greint var frá því í gær að um bakaríið Brikk væri að ræða. Fram kemur að maðurinn hafi verið fluttur á Landspítalann og gengist undir aðgerð í gær. Hann er ekki í lífshættu. Lögreglan hafi verið með mikinn viðbúnað vegna málsins og hafi spjót hennar fljótlega beinst að íbúð skemmt frá bakaríinu. Þar fannst maðurinn sem nú hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald. „Lögreglan var með mikinn viðbúnað í ljósi alvarleika málsins, en böndin beindust fljótt að íbúð fjölbýlishúss steinsnar frá því þar sem slasaði maðurinn fannst. Þar innandyra var karlmaður um fertugt handtekinn í þágu rannsóknarinnar og færður á lögreglustöð.“ segir í tilkynningunni. Lögreglan var með mikinn viðbúnað vegna málsins og naut aðstoðar sérsveitarinnar.Vísir/Lýður Lögreglan segir rannsókn málsins umfangsmikla, en að henni miði ágætlega. Hún hefur lagt hald á skotvopn, en rannsóknin beinist meðal annars að því hvort það hafi verið notað í málinu. Fram kom í gær að við aðgerðirnar í gær naut Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu aðstoðar sérsveitar ríkislögreglustjóra.
Lögreglumál Kópavogur Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Nóg sé komið af Trump Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira