Viðskipti innlent

Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum fé­lögum

Agnar Már Másson skrifar
Ný skýrsla varpar ljósi á eignarhald í sjávarútvegi.
Ný skýrsla varpar ljósi á eignarhald í sjávarútvegi.

Tuttugu stærstu fiskiútgerðir Íslands eiga yfir 400 milljarða króna í öðrum félögum, aðallega í öðrum útgerðum en einnig í íslenskum og erlendum fyrirtækjum sem ekki tengjast sjávarútvegi.

Ný skýrsla sem Hagfræðistofnun Háskóla Íslands vann fyrir atvinnuvegaráðuneytið að beiðni Dags B. Eggertssonar, þingmanns Samfylkingarinnar, og annarra meirihlutaþingmanna varpar ljósi á eignarhald 20 stærstu útgerðarfélaga landsins, og svokallaðra „tengdra aðila“, í íslensku atvinnulífi.

Þar má sjá hvernig stórir aðilar í sjávarútvegi, t.d. Brim, Samherji eða Síldarvinnslan svo eitthvað sé nefnt, hafa með beinni eignatöku, dótturfélögum og svokölluðum krosseignatengslum komið sér upp eins konar eignarhaldsvef.

Raunar hafa stærstu kvótaeigendur kastað neti sínu langt út fyrir sjávarútveginn sjálfan, og eiga sumir með beinum eða óbeinum hætti hlut í fasteignafélögum, matvælaframleiðslu og jafnvel flugfélagi.

Félög Guðmundar eiga mest

Samkvæmt skýrslunni áttu samstæður tuttugu stærstu útgerðanna í lok árs 2024 eignir að andvirði 406,3 milljarða króna, þar af 228 milljarða króna í öðrum útgerðum, 129 milljarða í öðrum íslenskum fyrirtækjum (sem ekki eru í sjávarútvegi), og 50 milljarða í erlendum félögum.

Fjárfestingar þessara tuttugu félaga frá 2014-2024 námu 240 milljörðum hvort sem um ræðir útgerðir og íslensk félög eða erlend.

Þorri þessara eigna er hjá fjórum stærstu félögunum: Brim á um 73 milljarða samtals, Útgerðarfélag Reykjavíkur um 66 milljarða, Fisk Seafood á um 64 milljarða og Síldarvinnslan 63.

Sömu eigendur?

Þrátt fyrir að yfirlýst markmið skýrslunnar hafi verið að kortleggja „raunverulegt eignarhald“ í sjávarútvegi virðast mörg þessara félaga vera í eigu sama fólks en samt listuð hvert í sínu lagi.

Athygli vekur til dæmis að Brim og Útgerðarfélag Reykjavíkur séu hér skilgreind sem sitt hvort félagið en ÚR er allt í eigu Guðmundar Kristjánssonar, forstjóra Brims, sem er svo stærsti eigandinn í Brim (49,5 prósent). Þessi tvö félög eiga samtals um þriðjung af téðum 400 milljarða króna eignum sem skýrslan fjallar um.

Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brim.Vísir/Vilhelm

Sömuleiðis má benda á að Síldarvinnslan eigi allan hlut í útgerðarfélaginu Vísi ehf. og Bergi-Hugin ehf. Öll þessi þrjú félög eru skráð sem sitt eigið félag og rata öll á lista yfir 20 stærstu útgerðirnar. Síldarvinnslan er að stærstum hluta í eigu Samherja annars vegar og Brims hins vegar.

Í skýrslunni er tekið fram að aðeins sé horft á fjárfestingar þeirra tuttugu tilteknu félaga sem fengu kvótann úthlutaðan, en ekki fjárfestingar samstæðnanna í heild. Hver sjálfstæður leyfishafi, t.d. útgerð með eigið einkennisnúmer og kvóta, er greindur út af fyrir sig.

Kasta út breiðu neti

Stærstu kvótaeigendurnir eiga gjarnan fjölbreytt safn félaga í öðrum rekstri, hvort sem um ræðir fasteignir eða matvælaframleiðslu svo eitthvað sé nefnt.

Brim á til dæmis fasteignafélagið Breiðina ehf. Félagið á einnig fjölda dótturfélaga erlendis, svo sem félögin S-13 Holding, Icelandic Japan og Icelandic China HoldCo. Einnig rekur Brim flutningafyrirtækið Brim Shipping.

Skinney-Þinganes á útgerðirnar Hvanney og Vigur en einnig kúabúið Selbakka. Félagið á svo fjárfestingafélagið Þingey, sem á svo byggingarfélagið Miðhöfn og einnig hlut í Icelandair.

Augljósasta dæmið er líklegast FISK Seafood en það er að fullu í eigu Kaupfélags Skagfirðinga (KS), sem meðal annars á Mjólkursamsöluna og Kjarnafæði Norðlenska. 

Síldarvinnslan á einnig útgerðir erlendis í gegnum Arctic Fish á Noregi og Ísfélagið á erlendar útgerðir í gegnum Austur Holding.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×