„Hefðum getað skorað fleiri“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 22. maí 2026 21:54 Ólafur Ingi Skúlason var eðlilega ánægður með leik sinna manna í kvöld. Vísir/Guðmundur Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Breiðabliks, gat leyft sér að fagna vel og innilega eftir öruggan 6-3 sigur liðsins gegn KR í Bestu-deildinni í kvöld. „
Tilfinningin er góð. Ég sagði reyndar fyrir leikinn að það væri alltaf erfitt að vinna leiki ef maður fengi þrjú mörk á sig,“ sagði Ólafur léttur í leikslok. „En ég er bara mjög ánægður með strákana og úrslitin eru auðvitað frábær. Við hefðum getað skorað fleiri og þetta eru kannski klaufaleg mörk sem við erum að fá á okkur, en í svona leik gerist það bara. Heilt yfir var þetta mjög gott.“ En hvað fannst Ólafi sínir menn vera að gera vel í leik kvöldsins? „Við vorum bara mjög aggressívir í maður á mann pressunni. Við stigum á þá og reyndum að halda þeim eins og við gátum frá markinu okkar. Við leyfðum Dóra (Halldóri Snæ Georgssyni, markmanni KR) bara að vera á boltanum. Við gerðum þeim erfitt fyrir, vorum aggressívir og vorum á undan í flesta bolta. Mér fannst við klókir þegar við unnum boltann og komumst í þau svæði sem við vildum. Ákefðin og á sama tíma ró yfir aðstæðum var til fyrirmyndar.“ Hann segir að Blikar hafi beitt svipaðri pressu í öðrum leikjum í sumar, en ekki af sömu ákefð og í kvöld. „Mögulega ekki kannski alveg svona, en jú við höfum alveg stigið á lið og gerum það alveg reglubundið. Þetta er oft vandmeðfarið og við gerðum þetta gríðarlega vel í dag. Bara hrós á strákana fyrir baráttuna og andann í þeim. Það var alveg til fyrirmyndar eins og ég sagði áðan.“ Þá segir hann mikilvægt fyrir Blika að komast aftur á sigurbraut eftir töpuð stig í síðustu leikjum. „Að sjálfsögðu. En þegar við skoðum síðustu tvo leiki þá eru 80 prósent af þeim leikjum bara mjög góð. Frammistaðan að mörgu leyti góð,“ sagði Ólafur. „Ef maður ætlar að fara að hengja sig alltaf á úrslit - þetta er náttúrulega leikur úrslita og við viljum ná góðum úrslitum og safna stigum - þá fannst mér samt síðustu tveir leikir ekkert gefa einhverskonar mynd af því hvernig þetta yrði í dag. En að sjálfsögðu er bara mikilvægt fyrir okkur að komast aftur á sigurbraut, það er klárt,“ sagði Ólafur að lokum.
Íslenski boltinn Besta deild karla Breiðablik KR Mest lesið Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Íslenski boltinn Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Enski boltinn City marði Coventry Enski boltinn Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Enski boltinn Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Enski boltinn Norðmaðurinn fjórði en reif kjaft: „Hvaða lúsera er ég að keppa við?“ Sport Hágrét í bílnum með mömmu Fótbolti Fyrsta tap Mourinho eftir ótrúlega dramatík Fótbolti Fleiri fréttir Raphinha nýr fyrirliði Barcelona Rúst hjá Rosenborg Arbeloa í brasi Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Keflavík - Valur | Hörð barátta um efri hlutann Misjafn árangur Íslendingaliðanna ÍBV - Fram | Nær Fram að losna úr fallbaráttunni? 16 ára gamalt myndskeið af Messi vekur athygli Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Hágrét í bílnum með mömmu Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Fyrsta tap Mourinho eftir ótrúlega dramatík Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Mikael látinn bíða eftir fyrsta stiginu Enrique samþykkti að ná sjö árum hjá PSG Sjóðheitur Ísak skoraði í fyrsta sigrinum Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Erfitt verkefni FH og Breiðablik til Póllands Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Sjá meira