Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 22. maí 2026 16:33 Þórdís Jóna Sigurðardóttir, forstjóri miðstöðvar menntunar- og skólaþjónustu, Berglind og Óðin sem standa að verkefninu Sveitasæla og Jóhann Gunnarsson formaður Heimilis og skóla. Verkefnið Sveitasæla hlaut Foreldraverðlaun Heimilis og skóla í ár. Verkefnið býður nemendum á unglingastigi tækifæri til að taka þátt í daglegum bústörfum á bænum Hrafnagili og þar kynnast nemendur íslenskum landbúnaði af eigin raun, taka þátt í fjölbreyttum verkefnum og öðlast dýrmæta reynslu af ábyrgð, samvinnu og tengingu við nærumhverfi sitt.
Þetta kemur fram í tilkynningu. Þar segir að verðlanin hafi verið afhent við hátíðlega athöfn í Herkastalanum í gær, 21. maí. Verðlaunin eru veitt árlega fyrir framúrskarandi foreldrastarf eða verkefni sem stuðla sérstaklega að öflugu samstarfi heimila og skóla. Þar segir jafnframt að Fanný Guðbjörg, formaður foreldrafélags Hörðuvallaskóla, hafi verið útnefnd Dugnaðarforkur Heimilis og skóla 2026. Viðurkenningin er veitt einstaklingi sem hefur lagt fram sérstaklega mikið og óeigingjarnt starf í þágu nemenda og foreldra. Tekið var við tilnefningum frá almenningi og fór sérstök dómnefnd yfir innsendar tilnefningar áður en niðurstaða var ákveðin. Þórdís Jóna Sigurðardóttir, forstjóri miðstöðvar menntunar- og skólaþjónustu, Fanný Guðbjörg Jónsdóttir Dugnaðarforkur Heimilis og skóla 2026 og Jóhann Gunnarsson formaður Heimilis og skóla. Þórdís Jóna Sigurðardóttir, forstjóri Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu, ávarpaði samkomuna og afhenti verðlaunin ásamt Jóhanni Gunnarsyni, formanni stjórnar Heimilis og skóla. Þá fluttu einnig ávörp Linda Hreiðarsdóttir, skrifstofustjóri í mennta- og barnamálaráðuneytinu, og Sigurður Sigurðsson, framkvæmdarstjóri Heimilis og skóla. Við athöfnina söng Hallfríður Helga Arnórsdóttir, sigurvegari Söngvakeppni Samfés 2026. Segir í tilkynningunni að Heimili og skóli óski öllum þeim sem hlutu tilnefningu og verðlaunahöfum innilega til hamingju og þakki fyrir þeirra mikilvæga framlag til skólasamfélagsins. Markmið Foreldraverðlauna Heimilis og skóla sé að vekja athygli á því fjölbreytta og öfluga starfi sem fram fer innan leik-, grunn- og framhaldsskóla landsins og þeim fjölmörgu verkefnum sem stuðla að jákvæðu samstarfi heimila, skóla og samfélags. Verðlaunin minni jafnframt á þann kraft sem felst í samvinnu og virkri þátttöku foreldra og skólasamfélagsins alls. Hópurinn sem fékk verðlaun.
Skóla- og menntamál Börn og uppeldi Eyjafjarðarsveit Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira