Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Samúel Karl Ólason skrifar 20. maí 2026 23:21 Jensen Huang, forstjóri Nvidia. AP/Go Nakamura Sölutekjur Nvidia, verðmætasta fyrirtækis heims, jukust um 85 prósent á síðasta uppgjörsfjórðungi, borið saman við sama tímabil í fyrra. Tekjurnar voru meiri en greinendur gerðu ráð, eða um 3,4 prósentum meiri. Hagnaðurinn var þó 36,5 prósentum meiri en búið var að spá og er það vegna gífurlegrar eftirspurnar eftir tölvuflögum fyrir gervigreind.
Umrætt uppgjör nær yfir febrúar, mars og apríl. Á þessum mánuðum hagnaðist Nvidia um 58,32 milljarða dala. Það samsvarar um 7,2 billjónum króna (tólf núll), eða rúmum sjö þúsund milljörðum. Landsframleiðsla Íslands í fyrra var tæpar fimm billjónir króna. Samhliða uppgjörinu fyrir síðasta ársfjórðung uppfærðu forsvarsmenn Nvidia spár sínar fyrir yfirstandandi ársfjórðung og búast nú við meiri tekjum en áður. Áhugasamir geta virt uppgjörið fyrir sér hér á vef Nvidia. Í samtali við fjárfesta í kvöld sagði Jensen Huang, forstjóri Nvidia, að eftirspurn eftir tölvuflögum frá fyrirtækinu hefði náð nýjum hæðum. Það væri allt vegna aukinnar notkunar gervigreindar en vegna þessa er verið að reisa fjölda gagnavera víðsvegar um heiminn, samkvæmt frétt Wall Street Journal. Nvidia varð í lok október í fyrra fyrsta fyrirtæki heims til að verða meira en fimm billjóna dala virði. Það samsvaraði þá um 615 billjónum króna. Núna er virði hlutabréfa fyrirtækisins metið á rúmlega 5,4 billjónir dala. Alphabet, móðurfélag Google, er næstverðmætasta fyrirtæki heims. Það er metið á 4,7 billjónir dala. Virði hlutabréfa Nvidia hefur hækkað gífurlega í virði á undanförnum árum, samhliða miklum vexti í gervigreindargeiranum. Fyrirtækið framleiðir tölvubúnað sem er einkar vinsæll í gagnaver sem notuð eru til að keyra mállíkön heimsins. Þar er um að ræða örflögur og skjákort, sem eru sérstaklega vinsæl þegar kemur að gagnaverum fyrir gervigreind. Í lok ársins 2022 var virði Nvidia um fjögur hundruð milljarðar dala. Á um það bil þremur og hálfu ári hefur virði fyrirtækisins því aukist um einhverja fimm þúsund milljarða dala. Þessi gífurlega virðisaukning hefur leitt til áhyggja um bólumyndun en sífellt meiri hagnaður Nvidia hefur slegið mjög á þessar áhyggjur. Tekjur Nvidia jukust um 21 prósent frá síðasta uppgjörsfjórðung en heil 92 prósent séu þær bornar saman við sama tímabil í fyrra. Nýr búnaður fyrir gervigreind og aukin samkeppni Á undanförnum mánuðum hafa forsvarsmenn Nvidia opinberað nýjan tölvubúnað sem hefur sérstaklega verið hannaður með gagnaver fyrir gervigreind í huga. Er þar um að ræða nýja vefþjóna og skjáskort, sem hafa mikla reiknigetu. Á næstu mánuðum er von á fleiri slíkum vörum. Í frétt WSJ segir þó að forsvarsmenn annarra tæknirisa, fyrirtækja eins og Amazon og Google, hafi nýverið opinberað áætlanir um aukna framleiðslu á eigin tölvubúnaði fyrir gervigreind. Þá hefur einstaklega mikið verið um samruna og kaup á fyrirtækjum á þessu sviði.
Gervigreind Bandaríkin Mest lesið Fjárfestu í karllægum félögum báðu síðan um fund með forstjóranum Atvinnulíf Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Viðskipti innlent Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Viðskipti innlent Regluleg viðskipti hjá Orkunni skila viðskiptavinum raunverulegum ávinningi Samstarf Elkjøp fær milljónasekt fyrir persónuverndalagabrot Viðskipti erlent Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann Viðskipti innlent Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Viðskipti innlent OpenAI setur einnig stefnuna á hlutafjárútboð Viðskipti erlent Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Viðskipti innlent Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Viðskipti innlent Fleiri fréttir OpenAI setur einnig stefnuna á hlutafjárútboð Elkjøp fær milljónasekt fyrir persónuverndalagabrot Gervigreindariðnaðurinn: Eru með bensíngjöf en vantar bremsu Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Bora eftir jarðhita á Tenerife ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Sjá meira