Fallegu Dalirnir við þjóðveg 60 Þórunn Magnea Jónsdóttir skrifar 20. maí 2026 14:00 Á leið minni frá Búðardalur til Reykjavík í gær naut ég þess sem margir kalla eina fegurstu akstursleið landsins. Dalirnir skörtuðu sínu fegursta; fjöllin snævi þakin, bjartur himinn og víðáttan sem fær mann til að muna hvers vegna Ísland er einstakt land. En undir þessari náttúrufegurð leynist veruleiki sem stjórnvöld virðast annaðhvort ekki sjá — eða kjósa að horfa fram hjá. Þegar ég kom í bæinn var bíllinn þakinn tjöru, möl og skemmdum eftir ferðina um þjóðveg 60. Hjólaskálar og bretti höfðu fengið að kenna á lausamöl og viðgerðarklessum sem virðast nú orðnar fastur hluti af þessari leið. Þetta eru ekki smávægileg óþægindi heldur raunverulegt tjón sem fólk situr sjálft uppi með. Það sem gerir stöðuna enn alvarlegri er að búið er að eyða miklum peningum í endalausar bráðabirgðaviðgerðir „plástrum“ sem virðast hvorki endast né leysa vandann. Ár eftir ár er almenningi boðið upp á sömu lausnina: að fylla í holur tímabundið, kasta meiri peningum í viðhald sem skilar engu nema áframhaldandi skemmdum á ökutækjum fólks. Á meðan tala stjórnvöld um uppbyggingu innviða og byggðastefnu. En hvað segir það um forgangsröðunina þegar ein helsta samgönguæð Vesturlands er í jafn slæmu ástandi og raun ber vitni. Er stefna innviðaráðherra kannski að fara aftur í malarvegi? Fólk sem býr á landsbyggðinni, atvinnubílstjórar, ferðamenn og fjölskyldur sem ferðast þessa leið eiga betra skilið. Það er ekki eðlilegt að aka þjóðveg og koma heim með tjöruklessur, rispur og grjótkast sem geta kostað hundruð þúsunda í viðgerðir. En stærsta málið er kannski ekki lakkskemmdirnar. Í ágúst mun gríðarlegur fjöldi erlendra ferðamanna leggja leið sína vestur um land til að upplifa almyrkvann 12. ágúst. Ferðaþjónustan og sveitarfélög hafa þegar varað við miklu álagi á innviði og umferð á Vesturlandi og Vestfjörðum. Það vekur því furðu að stjórnvöld skuli enn bjóða bæði Íslendingum og erlendum gestum upp á vegakerfi þar sem lausamöl, holur og bráðabirgðaviðgerðir eru daglegt brauð. Ónýtir vegir stefna öryggi fólks í hættu. Holur, skemmdar vegaxlir og sífelldar bráðabirgðaviðgerðir skapa aðstæður þar sem ökumaður þarf stöðugt að vera á varðbergi. Eitt rangt augnablik, eitt skyndilegt undanbragð eða steinkast getur valdið alvarlegu slysi. Þetta snýst ekki bara um þægindi — þetta snýst líka um öryggi farþega og mannslíf. Dalirnir eru ein af perlum Íslands. En þjóðvegur 60 er orðinn tákn um hvernig stjórnvöld hafa látið mikilvæga innviði sitja á hakanum alltof lengi. Það þarf ekki fleiri plástra - Það þarf alvöru vegi. Höfundur er fjármálastjóri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Dalabyggð Mest lesið Halldór 26.09.2026 Halldór Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun Skoðun Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Að vaxa út úr vandanum Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Árni Sigfússon skrifar Skoðun Gefið með annarri hendinni og tekið með hinni Sigrún Ólafsdóttir,Zophonías O. Jónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar