Áskorun um opnun þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar um einhverfu Telma Sigtryggsdóttir skrifar 20. maí 2026 13:30 Undanfarin misseri hefur mikil umræða átt sér stað um stöðu einhverfs fólks, meðal annars í kjölfar umfjöllunar Kveiks og Kastljóss sem varpaði skýru ljósi á alvarlegt úrræðaleysi í þjónustu við einhverft fólk. Þessi staða ætti ekki að koma stjórnvöldum á óvart. Á síðustu tveimur árum hafa komið út tvær skýrslur sem fjalla um þjónustu við einhverft fólk: Hvert á ég að leita? Skýrsla á vegum heilbrigðisráðuneytisins frá nóvember 2024. Málefni fullorðinna einhverfa. Skýrsla starfshóps á vegum félagsmálaráðuneytisins frá september 2025. Það er sammerkt með báðum skýrslum að þjónusta við einhverft fólk er ómarkviss, ósamræmd og aðeins aðgengileg hluta hópsins. Sérstaklega er bent á alvarlegan skort á þjónustu fyrir fullorðið einhverft fólk. Einhverfa tengist óvenjulegum taugaþroska og fylgir fólki alla ævi. Áhrif hennar á daglegt líf eru margþætt og einstaklingsbundin. Áætlað er að á Íslandi séu að minnsta kosti 8.000 fullorðinna einstaklinga með einhverfu. Stór hluti þeirra hefur hvorki fengið skimun né greiningu, meðal annars vegna þess að aðgengi að slíkri þjónustu eftir 18 ára aldur er mjög takmarkað. Skortur á skimun og greiningu getur leitt til þess að einhverft fólk verði ósýnilegt í kerfinu og fái ekki aðgang að viðeigandi stuðningi, þjónustu og réttindum. Þekkingarleysi og ósamræmd þjónusta Kortlagning á þjónustu við einhverft fólk sýnir að þjónusta við þennan hóp er víða til staðar á pappír, en í reynd er oft ómarkviss, ósamræmd og aðeins aðgengileg hluta hópsins. Þjónustu- og fagaðila skortir oft á tíðum næga þekkingu á þörfum einhverfs fólks, ekki síst fullorðinna. Þegar skoðað er þjónusta við einhverfa kemur í ljós að skortur er á samhæfingu milli heilbrigðisþjónustu, félagsþjónustu, menntakerfis og vinnumarkaðar. Þá mætir opinbert rými, vinnuumhverfi og þjónustukerfi oft illa þörfum fólks með einhverfu sem þarf fyrirsjáanleika, skýra umgjörð, aðgengileg samskipti eða tillit til skynræns næmis. Undanfarið hefur jafnframt verið dregið úr þjónustu við einhverft fólk með niðurlagningu mikilvægra úrræða. Það hefur valdið miklum óróa meðal einhverfs fólks og aðstandenda. Tillögur til úrbóta Í báðum skýrslum voru lagðar fram tillögur til að bæta aðgengi einhverfs fólks að þjónustu, atvinnu og upplýsingum og draga úr þeim hindrunum sem mæta einhverfu fólki í samfélaginu. Eftirfarandi tillögur voru lagðar fram til að bæta þjónustu við einhverft fólk: Samstarf heilbrigðis-, félags-, vinnumarkaðs-, mennta- og barnamálaráðuneyta um að bæta þjónustu við einhverft fólk. Opnuð verði þjónustu- og þekkingarmiðstöð um einhverfu. Meginverkefni miðstöðvarinnar verði greining á einhverfu, fræðsla og ráðgjöf fyrir einhverft fólk og aðstandendur þeirra, auk fræðslu, stuðnings og ráðgjafar við þá sem veita einhverfu fólki þjónustu. Geðheilbrigðisþjónusta fyrir einhverft fólk verði þróuð og útfærð á öllum þjónustustigum til framtíðar. Einhverfumiðuð nálgun verði lögð til grundvallar í allri þjónustu við einhverft fólk. Vitundarvakning um einhverfu verði efld til að auka þekkingu, skilning og virðingu í garð einhverfs fólks. Málastjóri í félagsþjónustu verði tryggður þar sem þörf er á, til að styðja einhverft fólk til virkni og þátttöku. Gerðar verði breytingar á lögum og reglugerðum í þágu einhverfs fólks, svo tryggja megi þjónustu við hæfi. Einhverft fólk hafi ákveðinn tengilið í heilsugæslu. Þá verði uppfærsla á sjúkdómskerfinu úr ICD-10 í ICD-11 nýtt til að bæta yfirsýn yfir stöðu einhverfs fólks í samfélaginu. Á vinnumarkaði verði lögð áhersla á framboð á fjölbreyttum atvinnutækifærum fyrir einhverft fólk og sveigjanleika í starfi, meðal annars hlutastörf, fjarvinnu og aðgengileg vinnurými með tilliti til skynræns næmis. Tryggja aðgengi fullorðinna að skimun og/eða fullnaðargreiningu vegna einhverfu. Það er forsenda þess að fólk fái viðeigandi stuðning, þjónustu og réttindi. Nú þarf framkvæmd F.h. heilbrigðishóps ÖBÍ Réttindasamtaka vil ég hvetja ráðherra félags- og heilbrigðismála að standa saman að stofnun þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar fyrir einhverfa svo hægt verið að bæta þjónustu við þá sem og aðstandur og fagaðila. Vinna við stofnun hennar þarf að hefjast án tafar og miðstöðin þarf að verða að veruleika innan árs. Slík miðstöð er nauðsynleg. Hún þarf að sinna greiningu, fræðslu, ráðgjöf og stuðningi við einhverft fólk, aðstandendur og fagaðila. Hún þarf einnig að stuðla að betri samhæfingu þjónustu og skýrari leiðum fyrir fólk sem í dag lendir milli kerfa. Nauðsynlegt er að Einhverfusamtökin eigi sæti við borðið þegar þessi vinna fer af stað. Allar breytingar á þjónustu við einhverft fólk verða að fara fram í raunverulegu samráði við einhverft fólk og aðstandendur þeirra. Nú þarf að færa málið úr skýrslum yfir í framkvæmd. Það þarf pólitískan vilja, skýra ábyrgð, fjármögnun og raunverulegar aðgerðir. Ekkert um okkur án okkar, Höfundur er formaður Heilbrigðishóps ÖBÍ Réttindasamtaka. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Málefni fatlaðs fólks Mest lesið Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadótti skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar