Guðjón Valur pollrólegur yfir stöðunni Sindri Sverrisson skrifar 20. maí 2026 08:32 Guðjón Valur Sigurðsson hefur náð mjög eftirtektarverðum árangri með Gummersbach. Getty/Michael Hundt Forráðamenn Gummersbach hafa verið hvattir eindregið til þess að gera nýjan langtímasamning við Guðjón Val Sigurðsson áður en einhverjir af handboltarisum Evrópu ná að krækja í þjálfarann sem komið hefur Gummersbach úr öskustónni og í hóp bestu liða Þýskalands.
Sjálfur segist Guðjón Valur pollrólegur yfir stöðunni en núgildandi samningur hans við Gummersbach rennur út sumarið 2027. „Hann er með samning til 2027 og það er ekkert meira sem ég get sagt á þessari stundu,“ sagði Christoph Schindler, framkvæmdastjóri Gummersbach, við Handball-World. Guðjón Valur tók við Gummersbach í 2. deild árið 2020, eftir að hafa lagt skóna á hilluna, en hafði einnig verið leikmaður liðsins mörgum árum áður. Hann kveðst kunna afar vel við sig hjá félaginu og nýtur þess að þjálfa liðið sem nú er í 4. sæti þýsku 1. deildarinnar, fyrir ofan lið á borð við stórveldið Kiel og Rhein-Neckar Löwen. Önnur evrópsk stórlið gætu farið að bera víurnar í Guðjón Val, og eru hugsanlega byrjuð að gera það, en hann hefur nú tjáð sig um stöðuna í First 7 hlaðvarpinu og sagst í góðu sambandi við Schindler. „Og það er ekki eins og að ég sé á förum. Það eru ekki nein vandamál hjá okkur. Við tilkynnum þetta þegar rétti tímapunkturinn finnst. Ég og mín fjölskylda kunnum verulega vel við okkur hér í Gummersbach. Svo sannarlega. Við erum líka stolt af því sem við höfum byggt upp hérna,“ sagði Guðjón Valur samkvæmt Handball-World og kvaðst ánægður að geta unnið með leikmönnum og Schindler. „Við höldum áfram að tala saman. Ég veit ekki enn hvenær og það er algjörlega ekkert stress á mér. Né heldur á Christoph. Hvort ég verð hérna í eitt eða fimm ár enn – ég veit það ekki enn,“ sagði hinn 46 ára gamli Guðjón Valur.
Þýski handboltinn Mest lesið „Gríðarlega særandi að hlusta á þetta“ Sport Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Handbolti Koma Eiðs vendipunktur: „Hafa ofurtrú á því sem hann kemur fram með“ Íslenski boltinn Jóhann Berg pirraður eftir agabrot landsliðsmanna Fótbolti Sammála mati Finns: „Börn eiga að fá að vera börn“ Körfubolti Félag Hákonar hótar lögsóknum eftir mikið áfall Fótbolti Benedikt birtir mynd frá slysstað Handbolti Skotflaug Húta setti strik í reikninginn hjá Ronaldo Fótbolti Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Enski boltinn Glódís heldur spilunum þétt að sér: „Get ekki gefið það upp hér“ Fótbolti Fleiri fréttir Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sjá meira