Sviðin rafbyssupíla enn í kirkjugarðinum Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 19. maí 2026 20:01 Ísak Berglindarson íbúi í Reykjanesbæ var látin eyða myndbandi sem hann tók af atburðarásinni. Vísir/Bjarni Sjónarvottur gagnrýnir aðgerðir lögreglu í gær þegar rafvarnarvopni var beitt á mann sem hafði hellt yfir sig bensíni. Á vettvangi í dag mátti finna sviðna pílu úr vopninu.
Í gærmorgun þegar Ísak Berglindarson var að ganga meðfram kirkjugarðinum í Keflavík varð hann var við aðgerðir lögreglunnar. „Ég sé að það er maður þarna á nærbuxunum og fullt af löggum þarna í kringum hann og eru að byrja að taka rafbyssuna upp og byrja að segja honum að fara upp með hendur.“ Hann segir manninn ekki hafa verið með vopn en íkveikjuvökva. Þar sem honum þótti lögreglan ganga hart fram ákvað hann að taka upp atburðarásina á símann sinn. „Mér fannst eitthvað skrýtið við þetta og þá bara gerðist það sjálfkrafa að ég byrjaði að taka upp.“ Stuttu síðar skaut lögreglan pílum í manninn úr rafvarnarvopni. „Þá sé ég manninn, það er bara byrjað að kvikna í honum og hann er allur í ljósum loga og það er bara, þetta var alveg rosalegt að sjá þetta og svo bara byrjar meiri og meiri eldur og hann byrjar að öskra og ég veit ekki hvað.“ Maðurinn hafi sjálfur reynt að slökkva eldinn með því að rúlla sér upp úr grasinu en þegar fréttastofa var á staðnum í dag mátti sjá sviðna jörð og svo pílu sem skotið var. Píla úr rafvarnarvopninu lá enn í kirkjugarðinum í dag. Vísir/Bjarni Hann segir lögregluna svo hafa komið til sín og látið hann eyða myndbandinu sem hann tók. „Ég vildi ekkert eyða þessu en ég bara ákvað að nenna ekki að, þú veist, ég vildi bara hlýða. Í tilkynningu sem yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurnesjum sendi vegna málsins segir að lögreglumenn hafi tekið upplýsta ákvörðun þegar þeir ákváðu að beita vopninu. Þá hafi Ísak verið gert að eyða myndbandinu í þágu hagsmuna þess sem beittur var vopninu. Þá kemur einnig fram að maðurinn hafi verið færður á sjúkrahús til aðhlynningar með brunasár víða. Birna Blöndal Sveinsdóttir lögreglufulltrúi hjá Mennta- og starfsþróunarsetri lögreglunnar sér um að kenna lögreglumönnum að nota rafvarnarvopn. Hún segir lögreglumenn á vettvangi taka ákvörðun hverju sinni um hvort að beita eigi vopnunum. „Þetta er í höndunum á lögreglumönnunum sjálfum. Þeir þurfa að vega og meta áhætturnar hverju sinni. Þeir þurfa að vega og meta hvaða tæki hentar best í þeim aðstæðum sem þeir eru. Ef þeir taka hérna tillit til meðalhófs og annarra aðstæðna á vettvangi þá er það í þeirra höndum að vega og meta hvaða tæki henta best.“ Hún segist ekki vita dæmi um að kviknað hafi í fólki þegar vopnin voru notuð. „Þeir Taserar sem við erum með, við erum með tæki sem kallast Taser 10. Þau eru mun lægri í spennu heldur en eldri tæki frá sama framleiðanda.“
Lögreglan Rafbyssur Reykjanesbær Mest lesið „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Tortímir gervigreindin mannkyninu? Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Erlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Innlent Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Innlent Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Innlent Fleiri fréttir „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis Bein útsending: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við „Við erum ekki að byrja á núlli“ Fimm ára dómur Norberts staðfestur Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Sjá meira