Fyrirkomulag flugrekstrarins stærsta deiluefnið Birgir Olgeirsson skrifar 19. maí 2026 12:14 Jón Þór Þorvaldsson, formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna, Ástráður Haraldsson, ríkissáttasemjari og Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair. Ástráður segir kjaradeilu flugstétta og Icelandair snúna en þó þokast áfram. Samninganefnd Icelandair fundaði annars vegar með Félagi íslenskra atvinnuflugmanna og hins vegar með samninganefnd flugvirkja hjá ríkissáttasemjara í gær og eru fundir í báðum deilum fyrirhugaðir á fimmtudag.
Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari er með það verkefni að reyna að fá þessar fylkingar til að semja um kaup og kjör en hann segir stærsta deiluefnið snúa að mismunandi framtíðarsýn samningsaðila á þessa atvinnugrein. Hann segir deiluna snúna en að hún þokist áfram og séu fyrirhugaðir fundir með samninganefndum Icelandair og Félagi íslenskra atvinnuflugmanna annars vegar og svo samninganefndum Icelandair og flugvirkja hins vegar á fimmtudag til marks um það. Icelandair hefur opinberlega sagt að félagið leitist við að geta skotið fleiri stoðum undir reksturinn til að geta brugðist við árstíðarsveiflum og breytingum á samkeppnisumhverfi en núverandi kjarasamningar leyfa. Stéttarfélög flugmanna og flugvirkja hafa hins vegar goldið varhug við slíkum hugmyndum því þau vilja vernda þau réttindi sem fólgin eru í samningum þeirra. Blautleiga og forgangsákvæði til umræðu Samkvæmt heimildum fréttastofu eru þær breytingar sem Icelandair hefur talað fyrir að opnað verði fyrir samninga við önnur flugfélög um svokallaða blautleigu, þar sem Icelandair myndi leigja flugvél með áhöfn til að sinna flugi fyrir félagið. Þá er einnig kallað eftir rýmri heimildum atvinnurekenda til að stjórna starfsfyrirkomulagi með tilliti til hvíldartíma og lengdar fluga. Að auki er Icelandair í viðræðum um mögulega kaup á 49% hlut í maltneska félaginu Play Europe og fá þar með flugrekstrarleyfi á Möltu. Félag íslenskra atvinnuflugmanna er með forgangsréttarákvæði í öll flug sem flogin eru á vegum Icelandair hvar sem er í heiminum. Verði það svo áfram þyrfti Icelandair ávallt að leita notast við starfsmenn Icelandair sem eru hjá FÍA til að fljúga þeim flugvélum sem reknar eru á maltneska flugrekstrarleyfinu. Hefur félagið kallað eftir breytingum á því fyrirkomulagi til að geta skotið fleiri stoðum undir reksturinn í harðnandi samkeppnisumhverfi. Eins og fyrr segir eru deilurnar snúnar og við það bætist að forstjóri Icelandair hefur farið hörðum orðum um það sem hann kallar „samstilltar aðgerðir“ flugmanna síðustu vikur, en Icelandair hefur þurft að aflýsa eða seinka áætlunarferðum vegna manneklu. Formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna, Jón Þór Þorvaldsson, hefur hafnað því að um samstilltar aðgerðir sé að ræða. Mikilvægt sé að gera greinarmun á því hvað séu verkfallsaðgerðir og hvenær fólk hafi ekki tök á því að hlaupa til vinnu úr fríi eða orlofi. Þá hefur Jón Þór sagt opinberlega að Icelandair áformi að færa hluta starfsemi flugfélagsins út fyrir íslenska kjarasamninga ef félagið kaupi nær helmingshlut í maltneska félaginu Fly Play Europe. „Það gefur þessum vísbendingum byr undir báða vængi að FÍA hefur óskað eftir skýrum svörum frá stjórnendum Icelandair um hvort starfsmenn félagsins hér á landi geti fengið forgang að störfum innan nýrrar starfsemi á Möltu en við því hafa stjórnendur ekki viljað verða," sagði Jón Þór í aðsendri grein sem hann birti á Vísi.
Icelandair Kjaramál Mest lesið Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Viðskipti innlent Fyrirkomulag flugrekstrarins stærsta deiluefnið Viðskipti innlent „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Viðskipti innlent „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Viðskipti innlent Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Viðskipti erlent Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Viðskipti erlent Engar hópuppsagnir í apríl Viðskipti innlent Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Viðskipti innlent Eðlilegt að fólk vinni minna mánudag eftir kosningar Atvinnulíf Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Fyrirkomulag flugrekstrarins stærsta deiluefnið Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst María nýr stjórnarformaður SVEIT Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Ráðinn forstjóri Nathan Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Fyrsti ársfjórðungur hafi verið góður í rekstri Kviku banka Úr Símanum í rörin Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Telur forstjórann reyna að fara fram hjá stéttarfélaginu „Ekki einhverjir krúttlegir krakkar að leika sér í tölvum“ Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Icelandair grunar flugmenn um græsku Hæstiréttur tekur mál Kvikutoppanna ekki fyrir Bakkavararbróðir kaupir í Kviku fyrir milljarða Gengi Alvotech tekur kipp Alvotech stóðst úttekt FDA Sláandi hve mikið skattarnir hafi hækkað Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Sjá meira