Boeing 757-þotan lifir lengur hjá Loftleiðum Kristján Már Unnarsson skrifar 19. maí 2026 22:55 Árni Hermannsson, framkvæmdastjóri Loftleiða Icelandic, við líkan af Airbus A321, þotunni sem að öllum líkindum leysir Boeing 757 af hólmi í lúxusflugi Loftleiða. Sigurjón Ólason Flugáhugamenn hrukku margir í kút þegar Icelandair tilkynnti fyrir helgi að félagið myndi um næstu áramót hætta rekstri einnar ástsælustu flugvélar Íslendinga, Boeing 757-þotunnar. Flugnördar þurfa þó ekki að örvænta því líklegt er að þotan fái framhaldslíf hjá systurfélaginu Loftleiðum.
Í fréttum Sýnar var fjallað um þotuna sem skipar einstakan sess í flugsögu Íslendinga. Hún er sú farþegavél sem langlengst hefur þjónað Icelandair, eða í 36 ár. Og mörgum þykir hún bera af þegar kemur að því að metast um fegurð flugvéla. En núna hefur Icelandair tilkynnt að síðustu 757-þoturnar verði teknar úr notkun fljótlega eftir næstu áramót, um ári fyrr en félagið hafði áður áætlað. Boeing 757-þota Loftleiða Icelandic á Suðurskautinu árið 2015.Loftleiðir/Ágúst Håkansson Þoturnar hafa einnig verið nýttar í leiguflugi hjá systurfélaginu Loftleiðum en framkvæmdastjórinn Árni Hermannsson segir þær henta best þeim verkefnum sem félagið sinnir. „Þetta eru langbestu flugvélar sem þú finnur. En því miður þá eru þær að verða svolítið gamlar og eyða of miklu,“ segir Árni hér í frétt Sýnar: Þá vaknar sú spurning: Hvað gera Loftleiðamenn? „Við erum búin að vera á undanförnum mánuðum að leita að arftaka 757 í þessum VIP-flugum. Það er ljóst að við verðum ekki komin með arftakann fyrr en í fyrsta lagi eftir tvö til þrjú ár. Þannig að vissulega myndi það henta okkur betur að vera með 757-urnar áfram í rekstri,“ segir Árni. Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair.Sigurjón Ólason Og líklegt er að Árna verði að ósk sinni um að hafa þær lengur. Um það spurðum við Boga Nils Bogason, forstjóra Icelandair: „Við erum að horfa til þess að reka þær einhver ár áfram hjá Loftleiðum, það er uppleggið okkar,“ svarar Bogi Nils. Þegar kemur að arftakanum horfa Loftleiðamenn einnig á Airbus, eins og Icelandair. Árni Hermannsson, framkvæmdastjóri Loftleiða, ræðir um framtíð 757-þotunnar í rekstri félagsins.Sigurjón Ólason „Það er mjög líklegt að þetta verði einhverjar Airbus-vélar sem munu taka við af þessum vélum. Við erum með þrjár vélar í þessu eingöngu,“ segir Árni Hermannsson, framkvæmdastjóri Loftleiða Icelandic.
Icelandair Boeing Flug Tengdar fréttir Söguðu gat á flugsafn til að stinga inn Boeing 757 Furðulegar tilfæringar mátti sjá á Akureyrarflugvelli í dag þegar gat var sagað á flugskýli til að troða þar inn framhluta flugvélar. 1. október 2025 21:40 Flugnördar heims kveðja fegurstu flugvél Íslands Það er fullyrt að hún sé fegursta flugvél í heimi. Og hún er heimsfræg meðal flugnörda, sem flykktust til Íslands úr öllum heimshornum til að kveðja hana í dag. 12. október 2025 22:12 Hún er sögð með fagrar línur, vel byggð, háfætt og rennileg Hún er sögð falleg á að líta, vel byggð, samsvara sér vel, háfætt, með fagrar línur og rennileg. Í þessu tilviki erum við ekki að tala um manneskju heldur um flugvél. 25. mars 2025 22:44 Sigríður segir Boeing 757 vera uppáhaldsflugvélina Sigríður Einarsdóttir varð fyrst íslenskra kvenna til að gegna störfum atvinnuflugmanns. Þegar hún er spurð, að loknum 38 ára starfsferli sem flugmaður og flugstjóri, hver sé uppáhaldsflugvélin er svarið: Boeing 757. 1. desember 2022 14:14 Mest lesið Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Erlent Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Innlent Maðurinn fundinn Innlent Pútín vildi ekkert fyrir Bandaríkjamann í rússnesku fangelsi Erlent Fjórfalt fleiri lögreglumenn vakta Vestfirði Innlent Umbúðirnar gallaðar og hakkið fer aftur í bakka Innlent Þúsunda saknað og tíminn að renna út Erlent Blaðamenn og aðrir farþegar notaðir sem tálbeita? Erlent Skemmdir á nýrri vatnsleiðslu til Eyja Innlent Fleiri fréttir Vegfarendur gefi sér góðan tíma til ferðalaga í dag Tveir handteknir í tengslum við heimilisofbeldi Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Maðurinn fundinn Fjórfalt fleiri lögreglumenn vakta Vestfirði Skemmdir á nýrri vatnsleiðslu til Eyja Leita svara við aldargamalli ráðgátu sólarinnar Gætu þurft að skila skyndibitaumbúðum Gripinn með stolið kreditkort og handtekinn Hafa borið kennsl á hinn látna Einn um borð þegar eldur kviknaði í fiskibát Kveikt á götulýsingu í sólmyrkva á stofnbrautum Líkfundur við Austurbæjarskóla Hólmbert bjargaði manni úr bíl sem stóð í ljósum logum í Kóreu Umbúðirnar gallaðar og hakkið fer aftur í bakka Gera ráð fyrir óvenjulangri aðalmeðferð í Reykholtsmálinu Tók konu kyrkingartaki nóttina eftir dóm og verður lengur í haldi Segir efnahagsmálin og verðbólguna að þróast í rétta átt Kristrún vísar ásökunum um sinnuleysi á bug Ekki lengur vafi á því hver hinn látni er Yfirlýsing Landskjörstjórnar: „Fullyrðing Morgunblaðsins er alfarið röng“ Vill að vinnu við gerð áhættumats verði flýtt Leita óþekkts árásarmanns á Þjóðhátíð Kæra varðhald þriðja mannsins til Landsréttar Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Þriðji maðurinn úrskurðaður í gæsluvarðhald Líkur á rigningu í Reykjavík þegar almyrkvinn gengur yfir Gæsluvarðhalds krafist yfir þriðja manninum Björgunarsveitir sinntu tveimur slösuðum ferðamönnum Sjá meira
Söguðu gat á flugsafn til að stinga inn Boeing 757 Furðulegar tilfæringar mátti sjá á Akureyrarflugvelli í dag þegar gat var sagað á flugskýli til að troða þar inn framhluta flugvélar. 1. október 2025 21:40
Flugnördar heims kveðja fegurstu flugvél Íslands Það er fullyrt að hún sé fegursta flugvél í heimi. Og hún er heimsfræg meðal flugnörda, sem flykktust til Íslands úr öllum heimshornum til að kveðja hana í dag. 12. október 2025 22:12
Hún er sögð með fagrar línur, vel byggð, háfætt og rennileg Hún er sögð falleg á að líta, vel byggð, samsvara sér vel, háfætt, með fagrar línur og rennileg. Í þessu tilviki erum við ekki að tala um manneskju heldur um flugvél. 25. mars 2025 22:44
Sigríður segir Boeing 757 vera uppáhaldsflugvélina Sigríður Einarsdóttir varð fyrst íslenskra kvenna til að gegna störfum atvinnuflugmanns. Þegar hún er spurð, að loknum 38 ára starfsferli sem flugmaður og flugstjóri, hver sé uppáhaldsflugvélin er svarið: Boeing 757. 1. desember 2022 14:14