„Annars verður ekkert eftir af þeim“ Agnar Már Másson skrifar 17. maí 2026 22:35 Ekkert bólar á samkomulagi. Getty/Roberto Schmidt Donald Trump Bandaríkjaforseti segir varar við því að „ekkert verði eftir“ af Írönum ef þeir hafa ekki fljótar hendur við í friðarviðræðum. Viðræður milli Írana og Bandaríkjamanna dregist verulega á langinn og líkur eru á því að stríð brjótist aftur út.
Bandaríkin og Íran hafa eldað grátt silfur í samningaviðræðum um að binda enda á stríðið frá því að vopnahlé náðist í byrjun apríl. Bandaríkin halda áfram hafnarbanni á íranskar hafnir, á meðan Íran hefur lokað Hormússundi frá upphafi átakanna í lok febrúar. „Klukkan tifar hjá Írönum. Þeir ættu að drífa sig, HRATT, annars verður ekkert eftir af þeim,“ skrifar Trump um Írani á samfélagsmiðlinum Truth Social. „TÍMINN ER DÝRMÆTUR!“ Trump ræddi við Benjamín Netanjahú í dag, sunnudag. Færsla Trumps Fyrr í vikunni sagði Trump að vopnahléð milli Írans og Bandaríkjanna héngi á bláþræði eftir að Íranir svöruðu tillögum Bandaríkjamanna með eigin tillögum sem féllu ekki í kramið vestanhafs. Tillögur Írana fólust meðal annars í því að Íranir héldu áfram stjórn Hormússunds, að refsiaðgerðir gegn Íran yrðu felldar niður og að Bandaríkjamenn létu af hverkví gegn Íran, svo eitthvað sé nefnt. Klerkastjórnin vildi ekki samþykkja kröfur Bandaríkjamanna um kjarnorkuáætlun ríkisins. Trump sagði að svörin væru gjörsamlega óásættanleg og íranskir fjölmiðlar greindu frá því um helgina að Bandaríkjamenn hefðu enn ekki sýnt nokkurn áhuga á að gefa eftir í neinum málum. Hálfríkisrekna fréttaveitan Mehr í Íran skrifar að samningaviðræðum gæti stefnt í ógöngur ef engar framfarir verði í viðræðunum. Íranski miðillinn Fars hefur aftur á móti eftir heimildum að stjórnvöld í Washington hafi þó svarað Írönum og sett þeim fimm skilyrði í nýjustu tillögum, sem meðal annars gangi út á að Íranir reki einvörðungu eina kjarnorkuaðstöðu og flytji út sínar birgðir af auðguðu úrani til Bandaríkjanna. Á föstudag gaf Trump aftur á móti í skyn að hann hefði áhuga á að samþykkja tuttugu ára hlé á kjarnorkuverkefnum Írana. Færsla Trumps í dag, þ.e. að „ekkert verði eftir“ af Írönum, er í takt við hótanir sem hann gaf út í byrjun apríl, þegar hann hótaði að útrýma „heilli siðmenningu“ í Íran, en skömmu síðar var samið um vopnahlé.
Donald Trump Bandaríkin Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira