„Þess vegna líður okkur svona vel í Laugardalnum“ Þorsteinn Hjálmsson skrifar 16. maí 2026 17:43 Jelena Tinna Kujundzic (lengst til hægri) og stöllur hennar í Þrótti eru komnar í átta liða úrslit Mjólkurbikars kvenna. vísir/diego „Við mættum bara miklu ákveðnari. Það vantaði smá upp á í hinum leikjunum í deildinni, þannig að við ákváðum bara aðeins að koma grimmar til leiks og það skilaði sínu,“ sagði Jelena Tinna Kujundzic, varnarmaður Þróttar, eftir glæstan 3-2 sigur á Íslands- og bikarmeisturum Breiðabliks á AVIS-vellinum í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins.
Mikið húllumhæ var í Laugardalnum. Verið var að selja sér hannaðar Bríetar treyjur á leiknum sem Þróttarar léku í ásamt því að söngkonan steig á stokk í hálfleik. Frábær mæting var á þennan leik. En hvernig leið Jelenu á vellinum? „Bara mjög vel. Það var æðislegt að fá alla þessa Köttara [stuðningsmenn Þróttar], fá Bríeti til að vera með okkur í liði og þetta bara gerir svo mikið. Þess vegna líður okkur svona vel í Laugardalnum. Við þurftum að skila sigri.“ Jelena var aldrei stressuð þrátt fyrir að Þróttur leiddi með aðeins einu marki á lokakafla leiksins. „Þótt þær náðu að ná okkur í 2-1 að þá fannst mér við ná að halda okkar tempói og ég var aldrei neitt stressuð að tapa leiknum. Þannig að bara flott hjá okkur að ná að halda haus og klára leikinn.“ Aðspurður hvort það hafi ekki verið sætt að sjá boltann í netinu þegar Sigríður Guðmundsdóttir skoraði þriðja mark Þróttar og kom stöðunni í 3-1 á 85. mínútu, þá jánkaði Jelena því. „Já, það var sætt.“ Eftir 16-liða úrslitin eru tvö sigursælustu félög í sögu bikarkeppninnar fallin úr leik, Breiðablik og Valur. Hvert er markmið Þróttar í bikarnum, sérstaklega miðað við þessa staðreynd? „Við viljum taka þetta og við höfum komist í úrslit en höfum ekki unnið, en það eru svo ógeðslega mörg sterk lið og hver leikur skiptir máli. Þannig að við verðum bara að mæta alltaf grimmar til leiks og klára leikina,“ sagði Jelena að lokum, en Þróttarar hafa aðeins komist einu sinni í bikarúrslit og var það árið 2021.
Mjólkurbikar kvenna Þróttur Reykjavík Mest lesið Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Fleiri fréttir Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Sjá meira