Setjum X við D Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar 16. maí 2026 07:51 Gleðilegan kjördag. Í dag kjósum við hvernig við viljum hafa nærsamfélög okkar næstu fjögur árin. Við kjósum um hvaða áherslur við viljum sjá í okkar nánasta umhverfi. Ég hef undanfarna daga hitt sjálfstæðisfólk um allt land sem leggur allt í að rækta samfélag sitt. Fólk sem vill með eigin framtaki byggja upp sterk sveitarfélög á grundvelli ábyrgðar og raunhæfra lausna. Það er einmitt þar sem Sjálfstæðisflokkurinn stendur sterkastur – í trú á fólkinu og í þeirri sannfæringu að öflug sveitarfélög byggist á traustum rekstri og góðri þjónustu við íbúana. Sjálfstæðisflokkurinn býður nú fram í 34 sveitarfélögum um allt land og við ætlum okkur að treysta stöðu okkar áfram sem stærsta aflið á sveitastjórnarstiginu. Reynslan talar sínu máli. Þar sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur fengið traust til að leiða hefur það skilað sér í ábyrgari rekstri, betri þjónustu og skýrari forgangsröðun. Í Kópavogi hefur tekist að létta álögum af heimilum og taka framfaraskref í leikskólamálum sem hafa gjörbreytt stöðunni fyrir barnafjölskyldur í bænum. Í Ölfusi hefur öflug uppbygging atvinnulífs og íbúabyggðar skapað aðstæður sem hafa skilað sér í blómlegra og sístækkandi sveitarfélagi. Í Árborg hefur tekist að snúa við erfiðri stöðu af ábyrgð og raunsæi. Í Fjallabyggð hefur verið sýnt fram á mikilvægi þess að halda vel utan um reksturinn í minni samfélögum, forgangsraða rétt og horfa til framtíðar. Kjósum breytingar í Reykjavík Reykjavík skiptir þó sérstöku máli enda er hún höfuðborg okkar allra. Það sem gerist í Reykjavík hefur áhrif langt út fyrir borgarmörkin. Tími breytinga er runninn upp. Reykjavík þarf aftur forystu sem setur daglegt líf borgarbúa í fyrsta sæti. Í þessari kosningabaráttu hafa allir flokkar talað um þörfina fyrir breytingum og einnig þeir flokkar sem hafa haldið um stjórnartaumana í áraraðir. Fyrsta skrefið er að viðurkenna vandann. En kjósendur vita líka að raunverulegar breytingar koma ekki af sjálfu sér og verða ekki með nýjum slagorðum um stefnu vinstriflokkana sem litlu hefur skilað. Reykjavík þarf forystu sem hefur skýra sýn og þor til að framkvæma hana. Þar þarf að taka föstum tökum á rekstrinum, fjölga lóðum, lækka álögur, bæta þjónustu við barnafjölskyldur og gera borgina aftur að stað þar sem framtíðarsýn og framkvæmdakraftur fara saman. Sjálfstæðisflokkurinn ber einfaldlega meiri virðingu fyrir fólkinu sem býr í Reykjavík og stendur undir borginni á hverjum degi. Hildur Björnsdóttir og sterkur listi Sjálfstæðisflokksins hafa alla burði til að gera Reykjavík að þeirri borg sem við vitum að hún getur orðið. Þess vegna skiptir máli að Sjálfstæðisflokkurinn nái aftur forystu í Reykjavík. Það skiptir máli fyrir Reykvíkinga, en það skiptir einnig máli fyrir landið allt. Sjálfstæðisflokkurinn tekur afstöðu með heimilunum, fyrirtækjunum og fólkinu sem vill vinna, skapa, byggja upp og láta gott af sér leiða. Í dag bið ég um stuðning við Sjálfstæðisflokkinn, hvar sem þú býrð á landinu. Það er okkur öllum til hagsbóta. Setjum X við D. Kjósum Sjálfstæðisflokkinn. Höfundur er formaður Sjálfstæðisflokksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Guðrún Hafsteinsdóttir Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadótti skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar