Vara við fölsuðu Xanax í dreifingu Samúel Karl Ólason skrifar 15. maí 2026 13:11 Lyfin fölsuðu eru í hvítum samsettum hylkjum. Lögreglan Lögreglan og heilbrigðisráðuneytið vara við því að hættulegt efni sé í umferð. Þar er um að ræða falsað Xanax eða Alprazólma, sem er kvíðalyf, og hefur verið sett á gul viðvörun vegna þessa.
Slíkar viðvaranir eru gefnar út varðandi lyf eða fíkniefni sem geta ógnað lífi og heilsu fólks. Þetta lyf hefur verið selt í hylkjaformi, í samsettum hvítum hylkjum, en Xanax eru töflur. Þá er falsaða lyfið sagt innihalda medetomidín, sem er mjög sterkt slævandi lyf. Það er sagt um tvö hundruð sinnum sterkara en xýlazín sem notað er sem dýralyf hér á landi. Falsaða lyfinu fylgir mikil hætta á ofskömmtun og önnur áhrif en þau sem búast má við af raunverulegu Xanax. Falsaða lyfið getur einnig valdið lækkuðum hjartslætti, lágum blóðþrýstingi, svima, skertri hreyfigetu, ruglástandi, ógleði, minnisleysi, syfju og skertri meðvitund í langan tíma. „Áhrif medetómidíns geta valdið því að það hægist á öndun og hjartslætti, sem gerir ofskömmtun hættulega og flókna í meðferð. Medetómidín getur sérstaklega verið hættulegt fyrir hjartað, en efnið hægir á hjartslætti og lækkar blóðþrýsting. Þetta falsaða Xanax hylki inniheldur hvorki efnið alprazólam né neitt annað bensódíazepín. Þótt falsaðar Xanax-töflur innihaldi oft bensódíazepín, reyndist virka efnið í þessu tilfelli vera eingöngu medetómidín,“ segir á vef ráðuneytisins. Fólk sem telur sig hafa neytt þessara lyfja er hvatt til að leita sér hjálpar og vera ekki eitt.
Lögreglumál Lyf Mest lesið Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Innlent Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða Innlent Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Erlent „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Innlent Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Erlent Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Innlent „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Innlent Fleiri fréttir Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Mögulegar rafmagnstruflanir í stórhríðinni Lægðin hefur alla burði til að verða söguleg Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Synjað um heimilisuppbót vegna sameiginlegrar þvottavélar og snyrtingar Vona að ágreiningur liti ekki þing ASÍ Háskólarnir verði betur tengdir með breyttri strætóleið Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Undirmönnun hjúkrunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Sinntu útkalli þar sem grindverk hafði fokið fyrir akbraut Dómurinn segi ekki alla söguna Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Leita enn að einum eftir alvarlega líkamsárás Sjá meira