Hversu lengi nennir þú að bíða? Alma Ýr Ingólfsdóttir skrifar 15. maí 2026 13:21 Á morgun verður gengið til kosninga og má segja að kosningar séu ein áhrifaríkasta leiðin til þess að gera samfélagið okkar móttækilegra og betra. Sveitarfélögin fara með framkvæmd á lögbundinni þjónustu fatlaðs fólks. Áður en lengra er haldið er gott að árétta það að fatlað fólk er bara fólk, ósköp venjulegt fólk, börn, foreldrar og eldra fólk. Fólk sem hefur meðal annars áhuga á samfélagslegri þátttöku, íþróttastarfi, menntun, menningu, atvinnulífi og stjórnmálum. Fólk sem kýs. Aftur á móti þá virðist hafa skapast einhverskonar ómenning um biðlista sem gera fatlað fötluðu fólki mun erfiðara að tekið taka þátt í samfélaginu. Við erum ekki að tala um biðlista eftir miða á tónleika, heldur lögbundinni þjónustu. Það eru alls ekki nógu margir sem átta sig á stöðunni sem fatlað fólk er sett í og því miður hefur kosningabaráttan í aðdraganda þessa sveitarstjórnarkosninganna verið frekar hljóðlaus og lágstemmd, ágætis stefnur hjá flestum framboðum en ósköp fáir sem hafa kveðið sér sérstaklega hljóðs. Í mínum huga skýtur það skökku við þar sem sveitarfélögin hafi verið óspör á að tala um málaflokkinn sem kostnaðarsamasta útgjaldaliðinn í bókhaldinu og mögulega ástæðu þess að þau séu korter í gjaldþrot. Það hefði t.d. verið gott að velta upp af hverju? Ekki það að fatlað fólk er langþreytt á að heyra að það kosti of mikið og það kemur þeim hreinlega ekki við. Í nóvember á síðasta ári var samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks lögfestur. Mjög háværar raddir voru um að í kjölfar lögfestingarinnar gætu sveitarfélögin illa sinnt lögbundinni þjónustu sökum ríkari skyldna og krafna. Það gleymdist samt í þeirri umræðu að þjónustan var þegar lögbundin en það hefur hingað til þótt „allt í lagi” að verða ekki við henni. Þá komum við aftur að biðlistum. Vissir þú að fólk sem þarf á notendastýrðri persónulegri þjónustu (NPA) að halda, sem er þeim lífsnauðsynleg, þarf að bíða í þrjú til fimm ár? Vissir þú að fólk hefur dáið á meðan það bíður eftir lögbundinni þjónustu? Vissir þú að fatlað fólk þarf að bíða árum saman eftir húsnæði? Vissir þú að fötluð börn hafa færri tækifæri til þátttöku í íþrótta- og tómstundastarfi? Vissir þú að fötluð börn og bíða mánuðum og árum saman eftir þjónustu? Myndir þú vilja að bíða? Langar þig að bíða eftir því að almenningssamgöngur verði aðgengilegar? Langar þig að bíða úti á meðan aðrir komast inn? Langar þig að komast leiðar þinna án endalausra hindrana? Við vitum að það er hægt að bregðast við og gera betur. Við vitum líka að stefna ein og sér dugir ekki til ef hún er ekki framkvæmd. Við vitum líka að viðbrögðin við þjónustuleysi og þessari sögulegu bið væru allt önnur ef um væri að ræða ófatlað fólk. Við krefjumst þess að þau ykkar sem taka við keflinu næstu fjögur árin hafi fatlað fólk með í öllu því sem þið eruð að móta og gera. Byrjið á því að hugsa hvort stefnan, deiliskipulagið, uppbyggingin, kerfið, reglugerðirnar, verklagsreglurnar, tómstundastarfið, djúpgámarnir, almenningssamgöngurnar, borgarlínan, umsóknavefirnir, leiksvæðin, sundlaugarnar, stjórnsýslushúsin, og samfélagið sé aðgengilegt fjölbreyttum hópi fólks. Fatlað fólk er orðið hundleitt á því að bíða á endalausum biðlistum og bíða eftir því að vera hluti af samfélaginu. Höfundur er formaður ÖBÍ réttindasamtaka Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Alma Ýr Ingólfsdóttir Mest lesið Halldór 26.09.2026 Halldór Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson Skoðun Skoðun Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Að vaxa út úr vandanum Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Árni Sigfússon skrifar Skoðun Gefið með annarri hendinni og tekið með hinni Sigrún Ólafsdóttir,Zophonías O. Jónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar