Gefum íbúum rödd í Fjarðabyggð Hjördís Helga Seljan skrifar 15. maí 2026 12:47 Það er oft talað um samráð við íbúa. En of oft er það þannig að samráðið kemur of seint eða hefur lítil áhrif á þær ákvarðanir sem teknar eru. Þá verður það að formsatriði en ekki raunverulegu samtali. Við viljum breyta því. Margir þekkja tilfinninguna að fá að tjá sig þegar ákvörðunin er í raun þegar tekin. Það er ekki samráð. Virkt samráð snýst um að hlusta og leyfa sjónarmiðum að hafa áhrif. Íbúar þekkja sitt nærumhverfi best og hafa dýrmæta þekkingu á því hvað virkar. Í fræðunum er oft talað um að lýðræði sé ekki bara kosningar heldur þátttaka. Það byggir á því að fólk taki virkan þátt í mótun samfélagsins og hafi raunveruleg áhrif á ákvarðanir sem snerta það. Það gerist ekki að sjálfum sér því að lýðræði þarf að rækta. Það þarf að æfa það, það þarf að gera ráð fyrir því í daglegum vinnubrögðum. Í Fjarðabyggð, með sína ólíku byggðarkjarna, er þetta sérstaklega mikilvægt. Án samtals skapast óánægja og vantraust en með þátttöku eykst skilningur og samheldni. Það felur í sér betri upplýsingagjöf, reglulega íbúafundi og aðgengilegar leiðir til áhrifa, bæði stafrænt og á staðnum. Einnig að færa ákvarðanir nær fólkinu. Raunverulegt samráð þýðir líka að hlusta á starfsfólk á gólfinu. Án þess missum við mikilvæga sýn á hvað virkar og hætta er á að ákvarðanir nái ekki markmiðum sínum og traust rofni. Eitt skýrasta dæmið um þetta eru breytingar á fræðslumálum í Fjarðabyggð. Þar sem ákvarðanir voru teknar án nægs samráðs við starfsfólk, foreldra og skólasamfélagið allt. Ég tók sjálf afstöðu gegn þessum breytingum eins og fór ekki framhjá neinum. Ég gerði það vegna samráðsleysis og að ég tel ekki rétt að byrja á því að veikja faglegt stoðkerfi inni í skólunum. Ég hef ekki séð starfsfólk í leik- og grunnskólum sveitarfélagsins sitja aðgerðalaust. Þvert á móti er þetta fólk lykillinn að daglegu starfi skólanna og mikilvægt fyrir bæði börn og starfsfólk. Málið sýndi líka hversu mikilvægt gagnsæi og raunverulegt samráð eru. Þegar stórar ákvarðanir eru teknar án þess að fólk upplifi að á það sé hlustað skapast óánægja og vantraust. Það er lærdómur sem við verðum að taka með okkur áfram, ekki bara í fræðslumálum heldur í stjórnsýslu sveitarfélagsins almennt. Heimastjórnir eru lykilþáttur í þessari uppbyggingu. Með því að koma á heimastjórnum í öllum byggðarkjörnum, skipuðum fulltrúum íbúa og sveitarfélagsins, skapast vettvangur til að ræða málefni nærsamfélagsins, móta forgangsröðun og hafa raunveruleg áhrif á ákvarðanir. Með heimastjórnum færast ákvarðanir nær fólkinu, þekking á staðbundnum þörfum nýtist betur og traust og samráð milli íbúa og stjórnvalda styrkist. Þetta er sérstaklega mikilvægt í sveitarfélagi eins og Fjarðabyggð þar sem aðstæður og þarfir eru ólíkar milli byggðarkjarna. En það krefst líka hugarfarsbreytingar. Að við sem tökum þátt í stjórnmálum séum tilbúin að hlusta, líka þegar það er óþægilegt. Vera tilbúin að breyta um stefnu ef íbúar benda á betri leið. Samráð er ekki veikleiki. Það er styrkur. Við trúum því að sterkasta samfélagið sé það þar sem fólk upplifir að það hafi áhrif, þar sem ákvarðanir eru teknar með fólki en ekki bara fyrir það. Þannig byggjum við Fjarðabyggð með fólkinu. Höfundur er í 2. sæti á lista Samfylkingarinnar og annars félagshyggjufólks í Fjarðabyggð. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadótti skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar