Óraunhæft endurkaupaverð ógnar framtíð Grindavíkur Telma Sif Reynisdóttir skrifar 15. maí 2026 11:22 Endurreisn Grindavíkur er eitt stærsta samfélagslega verkefni sem íslensk stjórnvöld standa frammi fyrir. Vilji er til staðar hjá mörgum fyrrverandi íbúum til að snúa aftur heim þegar aðstæður leyfa. Nú hefur hins vegar komið í ljós að gildandi lagarammi veldur verulegum vanda við endurkaup fasteigna, sem gæti gert fólki erfitt, eða jafnvel ómögulegt, að endurheimta eigin heimili á sanngjörnum kjörum. Vorið 2024 voru sett sérstök lög sem miðuðu að því að verja fjárhagslega stöðu Grindvíkinga í kjölfar náttúruhamfara. Með lögunum fékk ríkisfélagið Fasteignafélagið Þórkatla ehf. heimild til að kaupa íbúðarhúsnæði í Grindavík á verði sem nam 95% af brunabótamati eignanna. Þetta var neyðarúrræði sem skapaði mikilvægt fjárhagslegt öryggi við afar erfiðar aðstæður. Jafnframt var gengið út frá því að fyrrverandi eigendur hefðu forgang til að endurkaupa eignir sínar síðar, ef aðstæður leyfðu endurkomu til bæjarins. Nú blasir hins vegar við að framkvæmd laganna gæti leitt til ósanngjarnrar og ófyrirséðrar niðurstöðu. Brunabótamat og takmarkanir þess Brunabótamat hefur ákveðinn og afmarkaðan tilgang. Það er ætlað til að meta endurbyggingarkostnað fasteignar ef hún verður fyrir altjóni, til dæmis vegna bruna. Matið tekur fyrst og fremst mið af byggingarkostnaði og hækkar sjálfkrafa í takt við vísitölu byggingarkostnaðar. Brunabótamat endurspeglar hins vegar ekki raunverulegt markaðsverð fasteigna. Markaðsverð ræðst af fjölmörgum þáttum, svo sem eftirspurn, staðsetningu, ástandi eignar, ástandi samfélagsins og framtíðarhorfum þess. Þessir þættir eru sérstaklega mikilvægir í Grindavík í ljósi þeirra fordæmalausu aðstæðna sem þar ríkja. Þessi grundvallarmunur skapar nú alvarlegt vandamál. Á meðan brunabótamat eigna hækkar sjálfkrafa vegna vísitöluhækkana, hefur raunverulegt ástand margra fasteigna staðið í stað eða jafnvel versnað, enda hefur í mörgum tilvikum aðeins verið sinnt lágmarksviðhaldi af hálfu Þórkötlu. Afleiðingin er sú að Grindvíkingar sem vilja kaupa heimili sín aftur standa frammi fyrir því að þurfa að greiða verulega hærra verð fyrir eignirnar en þeir fengu greitt við söluna. Í sumum tilvikum nemur þessi hækkun mörgum milljónum króna á innan við tveimur árum, þrátt fyrir að eignirnar séu í sama eða jafnvel lakara ástandi en áður. Slík niðurstaða getur vart hafa verið tilgangur laganna. Lagabreyting er nauðsynleg Núverandi fyrirkomulag er ekki í samræmi við þau markmið sem lögin höfðu í upphafi. Markmiðið var að verja Grindvíkinga og skapa raunhæfan möguleika á að endurreisa samfélagið þegar aðstæður leyfðu. Það var aldrei ætlunin að fyrrverandi eigendur þyrftu að kaupa heimili sín aftur á verði sem hefur hækkað sjálfkrafa án tengsla við raunverulegt ástand eignanna eða markaðsvirði þeirra. Því er nauðsynlegt að endurskoða lagaákvæðin og skapa sanngjarnari grundvöll fyrir endurkaupum. Slík breyting gæti til dæmis tekið mið af raunverulegu ástandi fasteigna og sanngjörnu mati á verðmæti þeirra, með hliðsjón af raunverulegum markaðsaðstæðum, í stað sjálfvirkra vísitöluhækkana brunabótamats. Slík breyting myndi ekki aðeins gagnast einstaklingunum sem í hlut eiga heldur einnig samfélaginu í heild. Það er allra hagur að eignir í Grindavík séu í notkun og fái eðlilegt viðhald. Ef hús standa mannlaus og grotna niður í eigu ríkisfélags er það ekki aðeins skaðlegt fyrir bæjarfélagið heldur einnig óþörf byrði á skattgreiðendum. Það er því hagsmunamál samfélagsins alls að eignirnar séu seldar aftur til fyrri eigenda. Samfélagslegt hlutverk Þórkötlu Fasteignafélagið Þórkatla var ekki stofnað sem hefðbundið hagnaðardrifið fasteignafélag. Félagið var sett á laggirnar til að sinna samfélagslegu neyðarhlutverki við fordæmalausar aðstæður. Mikilvægt er að framkvæmd laganna og starfsemi félagsins endurspegli áfram þau samfélagslegu markmið sem að var stefnt í upphafi. Endurreisn Grindavíkur mun að stórum hluta ráðast af því hvort fólki verði gert kleift að snúa aftur heim á réttlátum og raunhæfum forsendum. Ef raunverulegur vilji er til þess að endurreisa Grindavík þarf lagaramminn að styðja við það markmið, ekki vinna gegn því. Við megum ekki missa sjónar á því að lögin eru mannanna verk. Nú er brýn þörf á lagabreytingu og stjórnvöld þurfa að sýna í verki að þau ætli ekki að standa í vegi fyrir endurreisn Grindavíkur. Höfundur er lögmaður hjá Novum lögfræðiþjónustu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadótti Skoðun Skoðun Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadótti skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar