Er borgarlínan bókstafsins virði? Ævar Örn Jóhannsson skrifar 14. maí 2026 18:12 Hvað vitum við í raun um það hvað verður í framtíðinni? - Lítið sem ekkert.Hvað vitum við um það hvað við viljum í framtíðinni? - Vonandi eitthvað.Hvað er eitt mesta hitamálið fyrir þessar kosningar? - Það vitum við, borgarlínan.Hvernig má það þá vera að eini flokkurinn hér í Kópavogi sem heldur uppi heiðri mikils meirihluta fólks sem er á móti henni, sé Miðflokkurinn?Yfir 50% er á móti henni! Sú tölfræði ein og sér ætti að segja allt sem segja þarf út frá lýðræðislegu sjónarmiði.Það má vel vera að hugmyndin um borgarlínuna hafi verið góð pæling á sínum tíma, hugsuð sem bættar almenningssamgöngur og umferðin gerð skilvirkari.Nú hefur hins vegar langur tími liðið og eins og allir vita þá breytist ýmislegt í áranna rás.Lagðar hafa verið fram breyttar áherslur á borgarlínu sem bjóða upp á enn skilvirkari umferð og haldið ykkur nú fast, fyrir umtalsvert minni kostnað fyrir fólkið okkar.Hljómar það illa? Af hverju er þá svona erfitt fyrir flokka að endurhugsa svona stórt mál með svona miklum útgjöldum?Kannski er það þrjóska. Kannski er það skortur á upplýsingum. Eða kannski er það bara vani.Vani getur verið ansi varasamur.Af hverju gerum við þetta svona? Af því svona höfum við alltaf gert þetta.Þangað til breyting hefur átt sér stað og hægt er að líta til baka og segja:Af hverju gerðum við þetta eiginlega svona? Af því við vissum ekki betur.En nú vitum við það og getum því brugðist við.Viljinn virðist þó ekki vera fyrir hendi, nema hjá Miðflokknum.Eitt er þó alltaf jafn áhugavert og það er hvað gerist fyrir kosningar. Kjörtímabilið á enda og kjörnir fulltrúar rísa upp á afturlappirnar og hefja upp raust sína um hvað skal sko gera næstu fjögur árin. Til í að gera og segja hvað sem er til að tryggja viðveru sína áfram. Líta svo til baka og blása upp það sem gert hefur verið á kjörtímabilinu.Upp hrannast viljayfirlýsingar og loforð um að skoða hitt og þetta korter í kosningar.Merkilega við þessi loforð, af hverju eru þau ekki bara uppfyllt á því tímabili sem setið er við stjórnartaumana?Það líkist því að verið sé að rúlla á undan sér verkefnum eins og vísaskuld, afvegleiða fólk í að hugsa um eitthvað sem skiptir jafnvel minna máli.Aukin útgjöld er eitthvað sem fæstir vilja og það væri glapræði að halda að þessir 130 milljarðar sem borgarlínan á að kosta komi annars staðar frá en úr okkar vasa, á einn eða annan hátt.Og hver ætlar svo að nota hana, ert það þú?Setjum ekki x- við eitthvað bara út af gömlum vana. Skoðum málefnin og fylgjum því sem brennur helst á okkur.Borgarlínan? Nei takk.Þétting byggðar? Komið gott.Vélmennavæðing barna í skólum með spjaldtölvum og dvínandi námsárangri? Alveg ómögulega.Meirihlutinn ræður hins vegar og vonandi sigrar lýðræðið í þessum málum en eitt er víst að til þess að stöðva þessi áform núverandi bæjarstjórnar, þá þurfum við að kjósa það 16. maí.Setjum x við M þann 16. maí.Höfundur er í 6. sæti á lista Miðflokksins í Kópavogi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadótti Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadótti skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar