„FH er bara á sinni vegferð“ Kolbeinn Kristinsson skrifar 14. maí 2026 17:29 Heimir Guðjónsson fer vel af stað í Árbænum en annað er sagt um eftirmann hans hjá FH. Vísir / Hulda Margrét Heimir Guðjónsson þjálfari Fylkis var ánægður með frammistöðu sinna manna eftir 5-0 sigur á FH í Mjólkurbikar karla í Árbænum í dag.
Fylkir sló þar FH úr leik og tryggði sér sæti í átta liða úrslitum keppninnar. Heimir sagði samstöðuna í liðinu hafa skipt miklu máli. „Bara frábær samstaða hjá liðinu. Menn voru tilbúnir að koma inn á völlinn og berjast hver fyrir öðrum,“ sagði Heimir eftir leik. „Við náðum að setja þá undir svolitla pressu í byrjun og það hjálpaði okkur að komast inn í leikinn. Svo fannst mér við bara spila vel, boltinn gekk hratt á milli manna og þegar við náðum að fara út á vængina og fá fyrirgjafir þá vorum við að skapa hættu.“ Heimir sagði frammistöðuna hafa verið góða á báðum endum vallarins. „Heilt yfir varnarlega og sóknarlega bara fín frammistaða.“ Horfir ekki lengra en á ÍR á mánudag Fylkir er nú komið í átta liða úrslit bikarsins en Heimir vildi ekki horfa of langt fram á veginn. Næsta verkefni liðsins er leikur gegn ÍR í deildinni á mánudaginn. „Þetta er bara önnur keppni. Svo tekur við næsti leikur í deild og við höfum erfiðan leik á móti ÍR á mánudaginn,“ sagði Heimir. „ÍR-ingarnir eru vel skipulagðir og með gott lið. Við þurfum bara að undirbúa okkur. Auðvitað þurfum við að koma þessum leik í burtu en það verður dregið og við vonum bara að við fáum heimaleik og eigum möguleika á að komast áfram.“ Kom frammistaða FH á óvart? Heimir var spurður hvort frammistaða FH hefði komið honum á óvart eða hvort fyrst og fremst bæri að hrósa Fylki fyrir sterka frammistöðu. „Ég held að það sé beggja blands. Þeir eiga náttúrulega erfiðan leik í deildinni á sunnudaginn á móti KA heima og það kom mér svolítið á óvart að Flóki og Tobias væru ekki í liðinu,“ sagði Heimir. „Engu að síður var FH-liðið sem spilaði þennan leik vel mannað. Ég held að það hafi spilað inn í að við vorum á okkar degi og líka að við náðum að svara fyrir leikinn í Njarðvík á föstudaginn.“ Mikilvægt að ná sér niður á jörðina Heimir sagði mikilvægt að Fylkismenn héldu ró sinni eftir sannfærandi sigur. „Nú þurfum við bara að koma okkur niður á jörðina og halda áfram.“ Heimir þekkir vel til FH eftir langa veru hjá félaginu og var spurður út í þær mannabreytingar sem hafa orðið í Kaplakrika. Hann vildi ekki tjá sig mikið um það en talaði af hlýju um sitt gamla félag. „FH er bara á sinni vegferð. Ég eyddi tuttugu árum af ævinni minni í FH og FH er frábær klúbbur. Hann gerði margt fyrir mig og ég skilaði einhverju til baka,“ sagði Heimir. „Ég ber mikla virðingu fyrir FH og ég ætla bara að vona að þeim gangi vel.“
Mjólkurbikar karla Fylkir FH Mest lesið Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Fleiri fréttir Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Sjá meira