Fólkið fyrst í Hafnarfirði Ágúst Bjarni Garðarsson skrifar 13. maí 2026 20:21 Á laugardaginn kjósum við um framtíð Hafnarfjarðar. Framsókn hefur á síðustu árum sýnt það í verki að flokkurinn stendur með fólkinu í bænum, styður við fjölskyldur og atvinnulíf og stendur við gefin fyrirheit. Hljóð og mynd fara saman. Hér hafa álögur á fjölskyldufólk verið lækkaðar, innviðir byggðir upp og fjölskylduvænt samfélag styrkt, samhliða stöðugri og kröftugri uppbyggingu íbúðarhúsnæðis um allan bæ á síðustu árum. Undir forystu Valdimars Víðissonar hefur Hafnarfjörður tekið mikilvæg skref fram á við. Valdimar hefur gegnt embætti bæjarstjóra af krafti og fagmennsku og býr yfir þeim eiginleikum sem skipta mestu máli í slíku starfi. Skrifstofan hans er opin, hann hlustar á fólk og hann framkvæmir. Það skiptir máli. Bæjarbúar finna að þeim er sýnd virðing og að þeirra hagur skiptir raunverulegu máli. Framboðslisti Framsóknar í Hafnarfirði er skipaður öflugu og samhentu fólki með fjölbreytta reynslu og þekkingu. Þar er breitt aldursbil og ólíkur bakgrunnur, sem er nauðsynlegt til að byggja upp samfélag sem endurspeglar alla bæjarbúa. Sýnin er skýr: Hafnarfjörður á að vera staður þar sem gott er að alast upp, gott fyrir ungt fjölskyldufólk að búa og gott að eldast og njóta efri áranna. Við verðum að halda áfram á þeirri vegferð og byggja upp samfélag fyrir alla. Valdimar er mér ekki aðeins góður vinur heldur hefur hann einnig verið traustur samstarfsmaður í gegnum tíðina og ég veit að hann gefur ekkert eftir í því verkefni að byggja hér upp réttlátt og sanngjarnt samfélag fyrir fólk og fyrirtæki. Með hann í forystu verður bæjarstjórn Hafnarfjarðar áfram öflug, ábyrg og með fókusinn þar sem hann á að vera, á fólkinu í bænum. Framsókn hefur góða sögu að segja eftir átta ár við stjórn bæjarins. Menningar- og atvinnulíf bæjarins blómstrar, íþróttalífið stendur sterkt, bærinn er vel rekinn, snyrtilegur og fallegur. Uppbygging íbúðarhúsnæðis er á góðum stað og leikskólamálin standa sterkum fótum. Við eigum ekki að hægja á þeirri vegferð núna. Ég styð Valdimar Víðisson heilshugar áfram til góðra verka á næsta kjörtímabili og treysti honum til að leiða Hafnarfjörð áfram af ábyrgð, festu og metnaði. Höldum áfram að byggja upp fjölskylduvænt og öflugt samfélag til framtíðar hér í Hafnarfirði. Höfundur er frv. formaður bæjarráðs í Hafnarfirði og frv. þingmaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ágúst Bjarni Garðarsson Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Spánverjar vilja íslenskan sjávarútveg Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Fólkið eða peningarnir? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Stöndum vörð um...hvað? Ingibjörg Rósa Björnsdóttir skrifar Skoðun Hvaða ákvæði læknasamningsins voru mistök? Steinunn Þórðardóttir skrifar Skoðun Fullveldi hvað Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Nei er ókei Ágúst Valves Jóhannesson skrifar Skoðun Hvað ef? Pétur B. Sveinsson skrifar Skoðun Húsnæðisvextir lækka ekki sjálfkrafa með evru Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Við erum í partíinu en megum ekki velja lag Árni Páll Jónsson skrifar Skoðun Með öllum mjalla? Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Fyrsti steinninn úr múrnum – af hverju ég segi já Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Til hvers var þá barist? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Skynsamleg röð hlutanna Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Græða fyrirtæki á verðbólgu? Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Sjá meira
Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar