Bæjarfulltrúi sagst vilja taka hann „bak við húsvegg og skjóta“ Eiður Þór Árnason skrifar 12. maí 2026 16:06 Hjörtur Magnús Guðbjartsson er í öðru sæti á lista Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ. Samsett/Samfylkingin/Þorgils Jónsson Sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs Reykjanesbæjar segir að bæjarfulltrúi og frambjóðandi Samfylkingarinnar hafi lýst því yfir að hann vildi helst fara með hann „bak við húsvegg og skjóta“. Orðin hafi Hjörtur Magnús Guðbjartsson látið falla í heimsókn til ónefnds verktakafyrirtækis í Reykjanesbæ en hann er í öðru sæti á lista Samfylkingarinnar.
Hjörtur hafi síðar haft samband við Guðlaug Sigurjónsson sviðsstjóra og beðist afsökunar. Mbl.is greindi fyrst frá. Málið kom Guðlaugi mjög í opna skjöldu. „Sérstaklega af því að þetta er fulltrúi meirihlutans, þannig að ég er að vinna með þessu fólki,“ segir hann í samtali við Vísi. Guðlaugur heyrði af atvikinu eftir fundinn og upplýsti í kjölfarið yfirmann sinn. „Ég sendi á bæjarstjórann og oddvita meirihluta og tilkynnti þeim um þetta og að mér þætti þetta frekar viðurstyggilegt.“ Samfylkingin situr í meirihluta í bæjarstjórn Reykjanesbæjar ásamt Framsóknarflokknum og Beinni leið. Hjörtur er einn þriggja fulltrúa Samfylkingarinnar. Telur málinu lokið Guðlaugur segir að málinu sé lokið af hans hálfu eftir að Hjörtur hringdi í hann og baðst afsökunar. „Þetta er bara gleymt og grafið.“ Hann gerir athugasemd við að slík harka birtist í sveitarstjórnarumræðunni. „Mér finnst það svona fulllangt gengið. Það eru aðrar leiðir til að losna við mann ef svo er, annað en að hóta skoti.“ „En þetta er bara eins og þegar menn blasta einhverju út og eru kannski ekki alveg með filterinn á, svona kaffistofuspjall. Þannig að maður skilur það svo sem líka,“ bætir Guðlaugur við. „Við eigum svo sem í fínu samstarfi, það er ekkert að því.“ Liti öðruvísi út ef um fulltrúa minnihluta væri að ræða Guðlaugur vildi ekki nefna hjá hvaða verktakafyrirtæki atvikið átti sér stað. „Auðvitað er þetta verra þegar fulltrúi meirihluta er að segja þetta. Ég myndi alveg skilja ef þetta væri nýr flokkur að koma sér inn og ætla sér í einhverjar hreinsanir, það væri svolítið annað.“ Ekki náðist í Hjört við vinnslu fréttarinnar. Fréttin hefur verið uppfærð.
Reykjanesbær Samfylkingin Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Innlent Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Innlent „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Tortímir gervigreindin mannkyninu? Innlent Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Eftirlitið fellur á herðar foreldra Innlent Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Erlent Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Innlent Fleiri fréttir Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Sjá meira