Gullhúðun að flugvellir þurfi starfsleyfi heilbrigðiseftirlits Kristján Már Unnarsson skrifar 12. maí 2026 12:32 Karl Alvarsson á fundi Flugmálafélags Íslands. Hann er formaður fagráðs um flugmál og fyrrverandi yfirlögfræðingur Isavia. Bjarni Einarsson Karl Alvarsson, formaður fagráðs um flugmál og fyrrverandi yfirlögfræðingur Isavia, segir séríslenska gullhúðun Evróputilskipana hafa átt sér stað þegar flugvöllum á Íslandi var gert að fá starfsleyfi frá heilbrigðiseftirlitum, - slíkt gildi um enga aðra evrópska flugvelli. Þá segir hann Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fara langt út fyrir sínar valdheimildir með því að reyna að þrengja að starfsemi Reykjavíkurflugvallar.
Á fundi Flugmálafélags Íslands fyrir helgi með frambjóðendum flokkanna í Reykjavík flutti Karl Alvarsson erindi. Hann er ráðherraskipaður formaður fagráðs um flugmál sem tók við hlutverki flugráðs. Karl sagði að yfirstandandi deilur um starfsleyfi Reykjavíkurflugvallar hefðu komið til skoðunar hjá fagráðinu. Þá hafi komið í ljós að valdheimildir heilbrigðiseftirlita á Íslandi byggi að mestu leyti á fjölmörgum tilskipunum Evrópusambandsins varðandi mengun frá iðnaði. Frá fundi Flugmálafélags Íslands fyrir helgi með frambjóðendum. Bjarni Einarsson „Það sérstaka við allar þessar tilskipanir og trúið mér, það er mökkur af þeim, að þar er hvergi minnst á flugvelli í þeim tilskipunum. Og samkvæmt upplýsingum fagráðsins er enginn flugvöllur í Evrópu háður starfsleyfi á grundvelli þessara gerða,“ sagði Karl. Enda væru flugvellir á Evrópska efnahagssvæðinu almennt vottaðir af eftirlitsstofnunum á sviði flugmála á grundvelli samræmdra EES-reglna og Samgöngustofa fari með þau mál á Íslandi. „Starfsleyfisskyldan fyrir flugvelli hérna á Íslandi er þá skýrt dæmi um séríslenska gullhúðun á EES-reglum,“ sagði Karl. Segir heilbrigðiseftirlitið fara langt út fyrir valdheimildir Áður var á fundinum búið að rekja deilur fluggeirans við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur um nýjar íþyngjandi kvaðir í drögum að starfsleyfi flugvallarins sem Matthías Sveinbjörnsson, forseti Flugmálafélagsins, lýsti sem dauðadómi yfir stórum hluta af starfsemi vallarins. „Okkur sem að þessum málum koma virðist ljóst að eftirlitið hafi farið langt út fyrir þær valdheimildir, sem þeir hafa, í drögum að starfsleyfinu,“ sagði Karl og bætti við: „Ég held að það sé alveg ljóst að hvorki borgarráð, borgarstjórn né Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fer með þær valdheimildir sem gera þeim kleift að stöðva eða takmarka lendingar loftfara á Reykjavíkurflugvelli. Þær valdheimildir liggja hjá öðrum stofnunum ríkisins,“ sagði Karl Alvarsson, formaður fagráðs um flugmál, á fundi Flugmálafélagsins, en hér má hlýða á hádegisfrétt Bylgjunnar um málið:
Reykjavíkurflugvöllur Flug EES-samningurinn Evrópusambandið Heilbrigðiseftirlit Borgarstjórn Tengdar fréttir „Ég elska þennan flugvöll“ Flugvöllurinn, flugið og flokkarnir er yfirskrift fundar sem hófst nú síðdegis á Hótel Loftleiðum á vegum Flugmálafélags Íslands. Þar voru fulltrúar allra framboða spurðir um afstöðuna sína til flugvallarins. 7. maí 2026 22:20 Hyggst reisa nýja flugstöð og festa flugvöllinn í sessi Innviðaráðherra hyggst festa Reykjavíkurflugvöll í sessi og byggja nýja flugstöð. Forsætisráðherra segir ekki hægt að láta flugvöllinn grotna niður meðan ekki finnist aðrir kostir. Forstjóri Icelandair segir að ekki muni standa á félaginu að fara í samstarf við stjórnvöld um uppbyggingu. 9. desember 2025 20:20 Gangi í berhögg við samninga að festa Reykjavíkurflugvöll í sessi Borgarfulltrúi Samfylkingarinnar segir Samgönguáætlun ganga í berhögg við samninga Reykjavíkurborgar og stjórnvalda um að finna Reykjavíkurflugvelli nýjan stað. Borgin ætli enn að færa æfingaflug, einkaflug og þyrluflug úr Vatnsmýri en nú stendur til að byggja nýja flugstöð á vellinum. 7. desember 2025 07:07 Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Fleiri fréttir Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Sjá meira
„Ég elska þennan flugvöll“ Flugvöllurinn, flugið og flokkarnir er yfirskrift fundar sem hófst nú síðdegis á Hótel Loftleiðum á vegum Flugmálafélags Íslands. Þar voru fulltrúar allra framboða spurðir um afstöðuna sína til flugvallarins. 7. maí 2026 22:20
Hyggst reisa nýja flugstöð og festa flugvöllinn í sessi Innviðaráðherra hyggst festa Reykjavíkurflugvöll í sessi og byggja nýja flugstöð. Forsætisráðherra segir ekki hægt að láta flugvöllinn grotna niður meðan ekki finnist aðrir kostir. Forstjóri Icelandair segir að ekki muni standa á félaginu að fara í samstarf við stjórnvöld um uppbyggingu. 9. desember 2025 20:20
Gangi í berhögg við samninga að festa Reykjavíkurflugvöll í sessi Borgarfulltrúi Samfylkingarinnar segir Samgönguáætlun ganga í berhögg við samninga Reykjavíkurborgar og stjórnvalda um að finna Reykjavíkurflugvelli nýjan stað. Borgin ætli enn að færa æfingaflug, einkaflug og þyrluflug úr Vatnsmýri en nú stendur til að byggja nýja flugstöð á vellinum. 7. desember 2025 07:07