Framsókn vill fjölbreytta uppbyggingu Hafsteinn Gunnarsson skrifar 12. maí 2026 11:03 Húsnæðismál eru eitt það mikilvægasta sem ný borgarstjórn mun takast á við á næsta kjörtímabili. Draumurinn um að eignast heimili fyrir fjölskylduna á að vera raunhæfur, en í dag fjarlægist hann of marga. Þéttingarstefna núverandi meirihluta í borgarstjórn var mörkuð á eftirhrunsárunum. Hugmyndin var skynsamleg í grunninn, að nýta innviði og stofnanir sem þegar voru til staðar. En framkvæmd þéttingar hefur haft sínar hliðarverkanir sem við sjáum birtast og greiðum fyrir í dag. Búið er að þétta byggð í Reykjavík, hvar hún var þéttust fyrir. Þéttingarreitir kosta meira en margir gera sér grein fyrir. Þröngar aðstæður til framkvæmda gera í raun erfiðara fyrir og lengja framkvæmdatíma. Há gjöld vegna uppbyggingar bílakjallara reitanna eykur kostnaðinn enn frekar. Fyrir utan að það má ekki einu sinni eitt bílastæði fylgja hverri íbúð samkvæmt gildandi reglum. Í Reykjavík er stutt niður á klöpp og bergskeringar í grónum hverfum eru dýrar. Undirbúningur lóða er tímafrekt og dýrt ferli. Þessi kostnaður lendir að lokum á kaupanda íbúðarinnar. Lokaafurðin er þekkt. Kassalaga álklædd mannvirki, þröngt á milli húsa og lítið rými fyrir opin eða græn svæði. Lítil mál eins og að keyra úr sínu hverfi, verður að stóru skipulagi til að forðast bílaraðir í lengri tíma og láta hversdaginn ganga upp. Framsókn í Reykjavík lagði til á liðnu kjörtímabili að nýjar íbúðir skyldu hannaðar með að minnsta kosti eitt bílastæði. Núverandi meirihluti felldi þá tillögu. Vandinn er ekki þéttingarreitirnir. Vandinn er að borgin byggir eingöngu á þéttingarreitum. Einstefnan í skipulagsmálum borgarinnar hefur meðal annars leitt til hærri byggingarkostnaðar og óeðlilegrar hækkunar fasteignamats. Ríkisstjórn Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins boðar nú 1.400 íbúðir á lóðum ríkisins en gleymir hvar börn í þessum hverfum eiga að ganga í skóla. Þeim fylgja engin áform um uppbyggingu leik- eða grunnskóla. Eru þetta ekki gömul áform á nýjum glærum? Það þarf jafnvægi milli þéttingar og grænna svæða. Milli nýrrar byggðar og þróunar í grónum hverfum. Borgin á að vera þannig skipulögð að fólk geti byggt upp líf sitt án þess að skuldsetja sig upp í rjáfur og án þess að hækkun opinberra gjalda sé lögmál. Framsókn í Reykjavík gengur til kosninga með skýra stefnu: Tryggjum að lágmarki eitt bílastæði á íbúð Endurskoðum þéttingarstefnu borgarinnar og verndum græn svæði Klárum uppbyggingu og tryggjum grunnþjónustu í nýjum hverfum Tryggjum skipulagðar og byggingarhæfar lóðir fyrir 3.000 íbúðir á ári Við trúum því að Reykjavík geti gert betur. Með nýjum meirihluta í borgarstjórn ætlum við að skila því. Við óskum eftir stuðningi þann 16. maí. Setjum X við B! Höfundur er á lista Framsóknar í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson Skoðun Óviss um ESB? Segðu nei Jón Ívar Einarsson Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson Skoðun Skoðun Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“ ? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahætti kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson skrifar Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson skrifar Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Lágir vextir og lágt vöruverð? Reynir Zoëga skrifar Skoðun Óviss um ESB? Segðu nei Jón Ívar Einarsson skrifar Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Segðu bara nei við sölumanninn Egill Gautason skrifar Skoðun Sagan endurtekur sig Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Viltu hætta á samsekt í þjóðarmorði eða stríðsrekstri fyrir hagnað annarra? Bergljót T. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Í krónuklóm Jón Bragi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Landsvirkjun, „Ísland allt“ og óvissan um ESB-aðild Þorgrímur Sigmundsson skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Viltu hætta á samsekt í þjóðarmorði eða stríðsrekstri fyrir hagnað annarra? Bergljót T. Gunnlaugsdóttir skrifar