Eyrir fjárfestir í hollensku landeldisfyrirtæki og verður stærsti hluthafinn
Nýtt félag sem Eyrir sem hefur stofnað, með áherslu á fjárfestingar í landeldisfyrirtækjum á síðari stigum sprotaþróunar eða á fyrstu vaxtarskeiðum sínum, hefur klárað sína fyrstu fjárfestingu í hollenska fiskeldisfyrirtækinu Kingfish. Félag Eyris, leitt af Árna Odda Þórðarsyni, hefur skuldbundið sig til að leggja fyrirtækinu til um fimmtán milljónir evra samhliða víðtækri fjárhagslegri endurskipulagningu og verður í framhaldinu stærsti hluthafinn.
Tengdar fréttir
Feðgarnir nú aftur einu hluthafarnir í Eyri Invest
Á aðalfundi Eyri Invest hf. í gær samþykktu allir hluthafar félagsins tillögu stjórnar um lækkun hlutafjár með greiðslu til hluthafa. Endurgjald lækkunarinnar er í formi hlutabréfa í JBT Marel Corporation og Fræ Capital hf. Feðgarnir Þórður Magnússon og Árni Oddur Þórðarson, stofnendur félagsins, eru nú einu hluthafar félagsins með jafnan eignarhlut.