Það þarf að vera gaman Aldís Ylfa Heimisdóttir skrifar 11. maí 2026 16:31 „Ef það er ekki gaman, og ef þú ert ekki að njóta þess að vera hér, þá þarftu að bakka og finna gleðina aftur áður en þú heldur áfram.“ Þessi orð hef ég tamið mér í þjálfun síðustu ár. Það þarf alltaf að hafa gaman. Íþróttir eru svo miklu meira en keppni, úrslit og titlar. Fyrir flesta eiga þær fyrst og fremst að snúast um gleði, félagsskap, hreyfingu og að tilheyra. Ég hef verið þjálfari, nánar tiltekið knattspyrnuþjálfari, í um þrettán ár. Á þeim tíma hef ég þjálfað alla flokka í knattspyrnu; leikskólaaldur, barna- og unglingaflokka, meistaraflokk, stráka og stelpur og yngri landslið kvenna hjá Íslandi, bæði sem aðstoðarþjálfari og síðasta eina og hálfa árið sem aðalþjálfari. Alltaf hefur markmiðið verið það sama, að hafa gaman. Ef þú spyrð átta ára strák, eða leikmann í U19 ára landsliði kvenna, af hverju þau séu í fótbolta, þá er svarið í flestum tilfellum það sama: vegna þess að það er gaman. Þar liggur kjarninn sem við þurfum að vernda og efla hér á Akranesi. Á Akranesi er sterk íþróttamenning sem samfélagið getur verið stolt af. Hér hafa kynslóðir barna og ungmenna fengið tækifæri til að þroskast í gegnum íþróttir, læra samvinnu, aga og virðingu, læra að tapa, vinna og hafa fyrir hlutunum. Við erum bæjarfélag sem býður upp á fjölbreytt íþróttastarf og við eigum að vera stolt af því. Fjölbreytt íþróttastarf er lykillinn að því að fleiri finni eitthvað við sitt hæfi. Öflugt samfélag þarf að styðja við þessa fjölbreytni svo allir hafi raunverulegt tækifæri til þátttöku. En það er mikilvægt að muna að íþróttastarf á ekki aðeins að snúast um afrek þeirra fáu sem stefna á toppinn. Ég hef þjálfað mörg hundruð börn hér á Akranesi og af þeim hafa kannski 10 leikmenn spilað landsleik en meirihlutinn skilað sér í meistaraflokk félagsins á einn eða annan hátt. En það hefur aldrei verið aðalatriðið. Aðalatriðið er að börnin upplifi gleði, eignist vini, læri að vinna saman og finni að þau tilheyri. Þátttaka í íþróttum má heldur ekki ráðast af efnahag fjölskyldna. Það er mikilvægt að bæjarfélagið haldi áfram að tryggja jafnt aðgengi barna og ungmenna að íþrótta- og frístundastarfi. Í stefnu Viðreisnar á Akranesi, www.xcakranes.is, kemur meðal annars fram að tryggja eigi að öll börn hafi jafnt aðgengi að íþrótta- og frístundastarfi, óháð efnahag fjölskyldu. Sú hugsun skiptir máli fyrir framtíð samfélagsins alls. Við þurfum líka að ræða oftar um andlegu hlið íþróttanna. Pressa, samanburður og árangurskrafa geta stundum tekið yfir gleðina sem átti að vera grunnurinn að þátttökunni. Þess vegna er mikilvægt að við hlustum á börnin og ungmennin sjálf og minnum okkur stöðugt á hvað skiptir mestu máli. Ég ætla að endurtaka það sem ég sagði hér í byrjun: „Ef það er ekki gaman, og ef þú ert ekki að njóta þess að vera hér, þá þarftu að bakka og finna gleðina aftur áður en þú heldur áfram.“ Þessi orð eiga erindi við allt íþróttasamfélagið, iðkendur, foreldra, þjálfara og stjórnendur. Þegar gleðin fær að vera í forgrunni skapast jákvæðara umhverfi þar sem fleiri vilja taka þátt og halda áfram lengur. Ég skipa 8. sæti á lista Viðreisnar á Akranesi fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar, en fyrst og fremst er ég mamma og íþróttastelpa. Mig langar að Akranes verði áfram sá bær sem heillar fjölskyldufólk til búsetu og þar eiga íþróttirnar stóran þátt. Hér á að vera gaman og gott að æfa. Í dag er ég komin aftur heim og starfa hjá KFÍA, knattspyrnufélagi ÍA eftir eitt og hálft ár sem landsliðsþjálfari hjá Knattspyrnusambandi Íslands. Í gegnum allan minn feril hef ég alltaf talað um gleðina. Gleðina sem fylgir íþróttum, samverunni, sigrunum, áskorununum og framförunum. Því þegar gleðin er til staðar verða íþróttirnar að einhverju miklu stærra en bara keppni, þær verða að samfélagi, stuðningi og lífsgæðum. Á Akranesi eigum við að halda áfram að byggja upp samfélag þar sem íþróttir eru fyrir alla. Samfélag þar sem fjölbreytni fær að blómstra, þar sem allir hafa tækifæri til þátttöku og þar sem gleðin, jákvæðnin og samveran eru áfram hjartað í íþróttastarfinu. Væri ekki gaman að setja X við C laugardaginn 16. maí? Höfundur situr í 8.sæti Viðreisnar á Akranesi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“ ? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson skrifar Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson skrifar Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Lágir vextir og lágt vöruverð? Reynir Zoëga skrifar Skoðun Óviss um ESB? Segðu nei Jón Ívar Einarsson skrifar Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson skrifar Sjá meira
„
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar