Sjálfstæði frá eigin stefnum – í boði Sjálfstæðisflokksins í Árborg Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar 12. maí 2026 06:51 Þann 8. júní 2020 samþykkti bæjarstjórn Árborgar umhverfisstefnu Árborgar samhljóða. Þar kemur meðal annars fram að Sveitarfélagið Árborg vilji vera í fremstu röð meðal sveitarfélaga á Íslandi í umhverfismálum með sjálfbæra þróun að leiðarljósi og að sveitarfélagið leitist ávallt við að fylgja öllum lögum, reglugerðum og samþykktum. Umhverfisstefnan tilgreinir einnig ástæðu tilveru hennar: „Sveitarfélagið Árborg vinnur að stöðugum úrbótum á eigin frammistöðu í umhverfislegu, efnahagslegu og félagslegu tilliti og hefur þess vegna sett sér eftirfarandi umhverfisstefnu:“. Um er að ræða mjög svo metnaðarfulla umhverfisstefnu sem Sveitarfélagið Árborg á hrós skilið fyrir að hafa sett, undir forystu: Framsóknar, Miðflokksins, Áfram Árborgar og Samfylkingar (með Sjálfstæðisflokkinn einan í minnihluta). En það er ekki nóg að vera bara með ótrúlega flotta stefnu, það þarf líka að fara eftir henni. Af því umhverfisáhrif ráðast ekki af einhverjum orðum á blaði, þau ráðast af aðgerðum, aðgerðum sem Sjálfstæðisflokkurinn, sem handhafi bæjarstjórastólsins síðustu 4 ár, hefur ekki sýnt fram á að hann sé tilbúinn að ráðast í. Um samgöngumál segir umhverfisstefnan: „Öll ökutæki á vegum sveitarfélagsins verði endurnýjuð með því að skipta ökutækjum sem ganga fyrir jarðefnaeldsneyti út fyrir ökutæki sem knúin er af endurnýjanlegri orku. Þessum orkuskiptum verði að fullu lokið fyrir árslok 2025.“ Þessi endurnýjun náðist ekki fyrir árslok 2025, meðal annars vegna þess að sveitarfélagið var með þjónustusamning um akstursþjónustu í sveitarfélaginu, sem gerður var til 5 ára 2019, með möguleika á þremur framlengingum, eitt ár í senn. Sveitarfélagið ákvað að framlengja um eitt ár í ágúst 2025, en í upphafi árs 2026 var tekin ákvörðun af hálfu sveitarfélagsins að samningurinn yrði ekki framlengdur aftur og var verkið því boðið út á nýjan leik. Maður hefði haldið að það hafi verið gert með markmið umhverfisstefnunnar að leiðarljósi, en svo var alls ekki. Krafan til bílanna fór úr því að þeir máttu ekki vera eldri en 10 ára í 2019 útboðinu yfir í það að þeir máttu ekki vera eldri en 15 ára í 2026 útboðinu. Ekki nóg með það að það hafi verið slakað á aldurskröfu bílanna, að þá var ekki gerð nein krafa til bílanna út frá umhverfis sjónarmiðum. Þarna fór Sjálfstæðisflokkurinn í Árborg ekki einungis gegn eigin umhverfisstefnu, heldur braut hann einnig gegn reglugerð varðandi vistvæn ökutæki og í staðinn fyrir að fara eftir yfirlýsingu eigin umhverfisstefnu um að fylgja ávallt reglugerðum þá ákvað Sjálfstæðisflokkurinn að fela sig á bakvið svar Fjársýslunnar að þau þyrftu í raun og veru ekkert að fara eftir samþykktum reglugerðum. Það var ekki fyrr en útboðið var kært að það var ákveðið að fara eftir lögum. En Sjálfstæðisflokkurinn sá sér ekki fært um að fara eftir umhverfisstefnu Árborgar og ákvað því einungis að fara eftir algjöru lágmarki reglugerðarinnar um vistvæn ökutæki. Það voru því engir hvatar gefnir til þess að bjóða rafmagnsbíla í þetta verk, þó svo að ekkert sveitarfélag sé betur í stakk búið fyrir þessi orkuskipti, miðað við þá hleðsluinnviði sem í því eru. Með þessu er Sjálfstæðisflokkurinn að seinka orkuskiptunum til ársins 2031, orkuskiptum sem áttu að eiga sér stað fyrir árslok 2025. Svo blása Sjálfstæðismenn kassann út rétt fyrir kosningar og setja eftirfarandi svar í kosningapróf RÚV: Og ég bara spyr, hvernig getur þetta kallast að efla almenningssamgöngur? Eigum við, sem íbúar Árborgar, bara að taka þessu þegjandi og hljóðalaust? Ljós í enda gangsins Það er þó eitt jákvætt við þetta og það er sú staðreynd að það er uppsagnarákvæði í samningnum sem er hægt að virkja eftir eitt ár. En til þess að það sé virkjað þá þarf flokk í meirihluta sem þorir að ráðast í aðgerðir í þágu umhverfismála og er hæfur um að vinna eftir stefnum sveitarfélagsins. Sjálfstæðisflokkurinn hefur sýnt fram á það að hann er ekki sá flokkur. Fyrir mitt leiti er sá flokkur Framsókn, en ég mun setja x við B næstkomandi laugardag og ég hvet alla íbúa Árborgar sem er annt um umhverfis- og samgöngumál að gera slíkt hið sama. Höfundur er fjármálaverkfræðingur, rekstrarstjóri hópbifreiðafyrirtækis og íbúi í Sveitarfélaginu Árborg. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason Skoðun Skoðun Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson skrifar Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson skrifar Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar