Viðræður virðast stranda á kjarnorkumálunum Hólmfríður Gísladóttir skrifar 11. maí 2026 07:01 Trump er síður en svo ánægður með gagntillögur Írana. Getty/Chip Somodevilla Tillögur Írana um forsendur fyrir viðræðum um varanlegan frið eru sagðar fela í sér afléttingu hafnbanns Bandaríkjanna á Hormuz-sundi, afléttingu allra refsiagerða gegn Íran og tryggingu fyrir því að ekki verði gerðar frekari árásir á landið. Þá segir Wall Street Journal tillögurnar fela í sér skammvinnra bann gegn auðgun úrans en Bandaríkjamenn höfðu lagt til og útflutning aðeins hluta birgða Írana af auðguðu úrani.
Íranir eru einnig sagðir hafa hafnað tillögu Bandaríkjanna um niðurrif allra þeirra staða þar sem unnið hefur verið að kjarnorkuáætlun landsins. Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur þegar brugðist við gagntillögum Írana og sagt þær algjörlega óásættanlegar. Bandaríkjamenn eru sagðir hafa krafist þess að Íranir skuldbittu sig til að láta af auðgun úrans í 20 ár. Þess ber að geta í þessu samhengi að Trump er ekki aðeins undir þrýstingi um að binda enda á yfirstandandi átök, heldur þarf hann að ná fram betri samningi við Írani en Obama gerði á sínum tíma til að „halda andlitinu“. Það var Trump sem ógilti samkomulagið (JCPOA) sem áður var í gildi. Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, sagði í samtali við fréttaskýringaþáttinn 60 Minutes um helgina að árásum yrði haldið áfram á meðan Íranir ættu enn birgðir af mikið auðguðu úrani. Birgðirnar eru sagðar telja um 440 kg og áætlað er að um helmingur þeirra sé grafin djúpt í jörðu undir miðstöð kjarnorkuáætlunar Írana í Isfahan. Netanyahu sagði við 60 Minutes að Trump hefði lýst yfir áhuga á að ráðast í aðgerðir til að ná í úranið en áður hefur verið greint frá því að þær aðgerðir hefðu útheimt töluverðan mannafla og viðveru í landinu í vikur ef ekki mánuði. Trump segist nú telja nóg að fylgjast með því að ekki sé hreyft við birgðunum í gegnum gervihnattaeftirlit. Þess má geta að Vladimir Pútín Rússlandsforseti er sagður hafa lagt til að úranið verði flutt til Rússlands til varðveislu.
Íran Bandaríkin Donald Trump Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Ísrael Mest lesið Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira