Besta byrjun KR í efstu deild síðan árið 1959 Aron Guðmundsson skrifar 10. maí 2026 11:21 Byrjunin frábær hjá KR-ingum en það er nóg eftir af mótinu Vísir/Pawel KR er á blússandi siglingu í Bestu deild karla um þessar mundir og hefur unnið alla fyrstu sex leiki sína á tímabilinu. Er það besta byrjun liðsins í efstu deild síðan árið 1959 en það árið vann KR alla tíu leiki sína og stóð uppi sem Íslandsmeistari. Í samantekt Óskars Ófeigs Jónssonar, blaðamanns Vísis frá árinu 2022 voru dregin fram þau lið sem hafa átt bestu byrjunina og unnið fyrstu sex leiki sína í efstu deild karla í fótbolta hér á landi. Þá voru þau sjö talsins. Tvö lið hafa bæst í þennan föngulega hóp síðan þá. Víkingur Reykjavík bættist við tímabilið 2023 en þá vann liðið fyrstu níu leiki sína í Bestu deildinni og nú hefur KR unnið fyrstu sex leiki sína á yfirstandandi tímabili og gæti bætt fleiri sigurleikjum við í röð. Sjötti sigurinn í röð kom á móti Stjörnunni á föstudaginn síðastliðinn en lærisveinar Óskars Hrafns Þorvaldssonar þurftu að hafa fyrir honum. Eftir að hafa lent 2-0 undir í fyrri hálfleik. KR-ingar sneru stöðunni sér í vil og unnu að lokum 3-2 sigur með sigurmarki frá Ástbirni Þórðarsyni undir lok leiks. Stemningin í Vesturbænum mikil og ekki furða því um bestu byrjun KR í efstu deild er að ræða síðan árið 1959. Það árið vann KR alla tíu leiki sína í deildinni og stóð uppi sem Íslandsmeistari. Eina liðið í sögu efstu deildar sem hefur unnið alla leiki sína á einu og sama tímabilinu. KR-liðið þá, eins og Óskar Ófeigur rakt í grein sinni hér fyrir ofan, var með +24 í markatölu eftir fyrstu sex leiki sína (27 skoruð mörk og aðeins 3 fengin á sig). Núverandi KR lið er með markatöluna +14 (25 skoruð mörk og 11 fengin á sig). Liðið þekkt fyrir blússandi sóknarbolta og líður varnarleikurinn stundum fyrir það. Liðið vinnur leiki og það er það eina sem skiptir máli í hugum stuðningsmanna liðsins. Lið sem hafa unnið fyrstu sex leiki sína á tímabili í efstu deild karla: KR 1959 (Íslandsmeistarar)Keflavík 1973 (Íslandsmeistarar)Valur 1978 (Íslandsmeistarar)ÍA 1995 (Íslandsmeistarar) Keflavík 1997 (enduðu í 6.sæti)FH 2005 (Íslandsmeistarar)Breiðablik 2022 (Íslandsmeistarar) Víkingur R. 2023 (Íslandsmeistarar)KR 2026 (Á eftir að ráðast) Sjö af þeim þeim níu liðum sem hafa unnið fyrstu sex leiki sína á tímabili í efstu deild hafa staðið uppi sem Íslandsmeistarar í lok tímabilsins. Spurning hvort KR liðið verði það áttunda en við því fáum við ekki svör fyrr en í eða undir lok tímabils. KR er það lið sem hefur oftast orðið Íslandsmeistari í karlaflokki, alls 27 sinnum, en liðið varð síðast Íslandsmeistari árið 2019. Byrjun KR á tímabilinu afspyrnu góð en þó eru aðeins tvö stig niður í ríkjandi Íslandsmeistara Víkings Reykjavíkur sem verma annað sætið. Víkingar ekki tapað leik á tímabilinu til þess en gert eitt jafntefli og unnið fimm leiki. Besta deild karla KR Mest lesið Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Fleiri fréttir Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Sjá meira
Í samantekt Óskars Ófeigs Jónssonar, blaðamanns Vísis frá árinu 2022 voru dregin fram þau lið sem hafa átt bestu byrjunina og unnið fyrstu sex leiki sína í efstu deild karla í fótbolta hér á landi. Þá voru þau sjö talsins. Tvö lið hafa bæst í þennan föngulega hóp síðan þá. Víkingur Reykjavík bættist við tímabilið 2023 en þá vann liðið fyrstu níu leiki sína í Bestu deildinni og nú hefur KR unnið fyrstu sex leiki sína á yfirstandandi tímabili og gæti bætt fleiri sigurleikjum við í röð. Sjötti sigurinn í röð kom á móti Stjörnunni á föstudaginn síðastliðinn en lærisveinar Óskars Hrafns Þorvaldssonar þurftu að hafa fyrir honum. Eftir að hafa lent 2-0 undir í fyrri hálfleik. KR-ingar sneru stöðunni sér í vil og unnu að lokum 3-2 sigur með sigurmarki frá Ástbirni Þórðarsyni undir lok leiks. Stemningin í Vesturbænum mikil og ekki furða því um bestu byrjun KR í efstu deild er að ræða síðan árið 1959. Það árið vann KR alla tíu leiki sína í deildinni og stóð uppi sem Íslandsmeistari. Eina liðið í sögu efstu deildar sem hefur unnið alla leiki sína á einu og sama tímabilinu. KR-liðið þá, eins og Óskar Ófeigur rakt í grein sinni hér fyrir ofan, var með +24 í markatölu eftir fyrstu sex leiki sína (27 skoruð mörk og aðeins 3 fengin á sig). Núverandi KR lið er með markatöluna +14 (25 skoruð mörk og 11 fengin á sig). Liðið þekkt fyrir blússandi sóknarbolta og líður varnarleikurinn stundum fyrir það. Liðið vinnur leiki og það er það eina sem skiptir máli í hugum stuðningsmanna liðsins. Lið sem hafa unnið fyrstu sex leiki sína á tímabili í efstu deild karla: KR 1959 (Íslandsmeistarar)Keflavík 1973 (Íslandsmeistarar)Valur 1978 (Íslandsmeistarar)ÍA 1995 (Íslandsmeistarar) Keflavík 1997 (enduðu í 6.sæti)FH 2005 (Íslandsmeistarar)Breiðablik 2022 (Íslandsmeistarar) Víkingur R. 2023 (Íslandsmeistarar)KR 2026 (Á eftir að ráðast) Sjö af þeim þeim níu liðum sem hafa unnið fyrstu sex leiki sína á tímabili í efstu deild hafa staðið uppi sem Íslandsmeistarar í lok tímabilsins. Spurning hvort KR liðið verði það áttunda en við því fáum við ekki svör fyrr en í eða undir lok tímabils. KR er það lið sem hefur oftast orðið Íslandsmeistari í karlaflokki, alls 27 sinnum, en liðið varð síðast Íslandsmeistari árið 2019. Byrjun KR á tímabilinu afspyrnu góð en þó eru aðeins tvö stig niður í ríkjandi Íslandsmeistara Víkings Reykjavíkur sem verma annað sætið. Víkingar ekki tapað leik á tímabilinu til þess en gert eitt jafntefli og unnið fimm leiki.
Lið sem hafa unnið fyrstu sex leiki sína á tímabili í efstu deild karla: KR 1959 (Íslandsmeistarar)Keflavík 1973 (Íslandsmeistarar)Valur 1978 (Íslandsmeistarar)ÍA 1995 (Íslandsmeistarar) Keflavík 1997 (enduðu í 6.sæti)FH 2005 (Íslandsmeistarar)Breiðablik 2022 (Íslandsmeistarar) Víkingur R. 2023 (Íslandsmeistarar)KR 2026 (Á eftir að ráðast)
Besta deild karla KR Mest lesið Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Fleiri fréttir Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Sjá meira