Börn og kennarar geta ekki beðið lengur Róbert Ragnarsson skrifar 10. maí 2026 09:01 Við vitum hvað þarf að gera. Hugmyndirnar liggja fyrir, tillögurnar eru til, fagþekkingin er til staðar. Það sem vantar er pólitískur vilji til að klára málin. Það er einfaldlega óásættanlegt að ár eftir ár ræðum við sama úrræðaleysið í skólakerfinu án þess að gripið sé til raunverulegra aðgerða. Treystum fagfólkinu Kennarar eru grunnstoðin í skólakerfinu. Hlutverk stjórnmálanna er að skapa þeim góðan ramma og starfsaðstæður til að veita börnunum okkar framúrskarandi menntun. Það er ekki hlutverk stjórnmálamanna að skipta sér af því sem fagfólkið er best til að leysa. Við sem erum í pólitík eigum þvert á móti að treysta fagfólkinu til að finna lausnir út frá gagnreyndum aðferðum, innan þess ramma sem aðalnámskrá markar. Það er afar brýnt að bæta starfsaðstæður kennara til að halda þeim í starfi, og laða að nýtt fólk. Í því felst m.a. að laga húsnæði, styðja við stjórnendur og ekki síst að færa aðra fagþjónustu inn í skólana. Hér erum við t.d. að tala um náms- og starfsráðgjöf, sálfræðiþjónustu og félagsráðgjöf. Reykjavíkurborg á að vera í forystu hvað þetta varðar. Stígum inn í raunveruleikann Skóli án aðgreiningar hefur haft gríðarlega jákvæð áhrif. Hann hefur rofið félagslega einangrun barna með fötlun, aukið þátttöku þeirra og bætt lífsgæði margra fjölskyldna. Hugmyndafræðin er mikilvæg og rétt, en hún dugar ekki fyrir öll börn, alltaf. Raunveruleikinn er að sum börn þurfa mjög sérhæfða þjónustu sem verður ekki veitt innan almenns skólastarfs, jafnvel þótt viljinn sé fyrir hendi. Foreldrar barna með sérþarfir verja ómældum tíma og orku í að berjast fyrir grunnþjónustu. Tíma sem ætti að fara í að styðja börnin sín og vera fjölskylda. Ég hef hitt forsvarskonur biðlisti.is sem hafa skýra sýn á hvernig megi bæta þjónustuna. Við verðum að hlusta á notendur og leyfa fagfólki að útfæra lausnir byggðar á bestu þekkingu og reynslu. Klettaskóli og Brúarskóli eru löngu sprungnir, biðlistar langir og eftirspurn langt umfram framboð. Árið 2022 vann ég tillögur fyrir skóla- og frístundasvið þar sem m.a. var lagt til að breyta Korpuskóla í annan sérskóla. Það var samþykkt nú á dögunum. Fjórum árum seinna og korter í kosningar! Snúum þessu við Viðreisn er frjálslyndur flokkur sem treystir fólki og vill veita þeim frelsi til að finna bestu lausnirnar hverju sinni. Í stað miðstýrðra lausna kerfis- og biðlistaborgarinnar viljum við snúa þessu við og setja starfsumhverfi kennara og þjónustu við börn í raunverulegan forgang. Höfundur skipar annað sæti á lista Viðreisnar í Reykjavík Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Róbert Ragnarsson Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Þegar smiðirnir sjálfir biðja um að hægja á vélinni Sigvaldi Einarsson Skoðun Tvær þjóðir í sama landi? Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson Skoðun Hafrannsóknarstofnun á villigötum Gunnlaugur Stefánsson Skoðun Það sem ég vildi að foreldrar mínir vissu… Aðalheiður Ásdís Boutaayacht Skoðun Erlendi ferðamaðurinn - einn besti skattgreiðandi landsins? Þórir Garðarsson Skoðun Af hverju talarðu ensku við mig þegar ég tala íslensku? Valerio Gargiulo Skoðun Bókin er betri! Sigþrúður Gunnarsdóttir Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer Skoðun Skattgreiðendur á TikTok Jens Garðar Helgason Skoðun Skoðun Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Það sem ég vildi að foreldrar mínir vissu… Aðalheiður Ásdís Boutaayacht skrifar Skoðun Í sporum kindarinnar Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Þurfum við að óttast gervigreind? Óttar G. Birgisson skrifar Skoðun Skattgreiðendur á TikTok Jens Garðar Helgason skrifar Skoðun Betri borg fyrir börn Bára Birgisdóttir skrifar Skoðun Bókin er betri! Sigþrúður Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Tvær þjóðir í sama landi? Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson skrifar Skoðun Börnin eru þrautseig. Kerfið hefur brugðist grunnfærninni Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hafrannsóknarstofnun á villigötum Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Af hverju talarðu ensku við mig þegar ég tala íslensku? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Þegar smiðirnir sjálfir biðja um að hægja á vélinni Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Viltu vita hvað virkar? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Erlendi ferðamaðurinn - einn besti skattgreiðandi landsins? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hvaða lærdóm má draga af ferðavenjukönnun 2025? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Þversögn íslenskra varna Arnór SIgurjónsson skrifar Skoðun Stjórnarformaður RÚV bregður sér í gervi Ragnars Reykás Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun PISA: Þegar allir þurfa létti, hver heldur þá utan um barnið? Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Hver ver æru hins látna? Theódór Skúli Halldórsson skrifar Skoðun DARVO: Sálfélagslegur glundroði Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun Menntakerfið pólitískur leikvöllur? Anna Kristín Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvað er til ráða? Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað þarf að laga á Íslandi – hver ber ábyrgð? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar andstæðingum eru eignuð orð Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Foreldrar, hjálpum börnum að verða lesendur Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Síðan hvenær er ég enginn? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Af bíómiðum og baðlónum María Rut Ágústsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar
Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar