„Varð að martröð“ Agnar Már Másson skrifar 9. maí 2026 19:23 Dóra Björt var kjörin sem borgarfultrúi Pírata en hefur nú skipt yfir í Samfylkingu. Hún hlaut þó ekki sæti á lista flokksins í Reykjavík fyrir komandi kosningar. Samsett Mynd Dóra Björt Guðjónsdóttir borgarfulltrúi segir tölvupóstasamskipti milli sín og annarra ráðamanna í Reykjavíkurborg staðfesta það að hún hafi aldrei verið hlynnt „Græna gímaldinu“ sem risið hefur við Álfabakka. Hún segir framkvæmdina hafa breyst í „martröð.“
Dóra bregst þarna við frétt Morgunblaðsins frá því í dag sem er meðal annars unnin upp úr tölvupóstasamskiptum frá júní 2024 milli kjörinna fulltrúa í Reykjavík, embættismanna og forsvarsmanna Eignabyggðar ehf., þ.e. framkvæmdaaðila sem byggði vöruskemmuna við Álfabakka 2a. Dóra Björt mun hafa sent Einari Þorsteinssyni, þá borgarstjóra, skeyti þar sem fram hafi komið að vöruhúsið við Álfabakka 2a væri ekki hlýlegt viðmót fyrir hverfið. Það væri „eins og þessi starfsemi kæmi hverfinu ekki við“ og hún hafi farið fram á álit borgarhönnuðar þar sem unnið yrði með „skaðaminnkun“. Um hálfu ári seinna rataði byggingin í fjölmiðla, þegar hún var þegar risin í miklu návígi við nærliggjandi íbúðarhúsnæði. Dóra, sem var kjörin inn í borgarstjórn sem fulltrúi Pírata en færði sig nýlega yfir í Samfylkinguna, hefur áður lýst því að hún hafi ekki setið undir áreiti vegna hins svokallaða græna gímalds, þrátt fyrir að hún hafi sjálf setið í skipulagsráði þegar það skipulag var samþykkt enda hafi hún verið í fæðingarorlofi á þeim tíma. „Ég er ánægð með að þessir tölvupóstar hafi komið fram, því þeir staðfesta það sem ég hef sagt frá upphafi: Ég hef aldrei verið hlynnt græna gímaldinu. Þótt deiliskipulagið hefði verið samþykkt í minni fjarveru og möguleikar mínir takmarkaðir, gerði ég allt sem í mínu valdi stóð til að koma í veg fyrir að það risi með þessum hætti, því Breiðholt á betra skilið.“ Þegar hún hafi fyrst séð teikningar fyrir húsnæðið hafi hún ekki einu sinni vitað hve nálægt byggingin yrði íbúabyggð, þar sem það kæmi ekki skýrt fram í þeim gögnum sem hún hafði þá undir höndum. „Eitthvað sem ég hélt að yrði sómi fyrir Breiðholtið og var því spennt fyrir, að fá til sín glæsilegar höfuðstöðvar stórfyrirtækis, varð að martröð,“ skrifar hún. Þrátt fyrir að hendur hennar hafi að verulegu leyti verið bundnar af deiliskipulagi sem hafi verið samþykkt í hennar fjarveru, hafi hún gert það sem hún gat til að knýja fram betri lausn fyrir svæðið. Skipulagsfulltrúi og byggingarfulltrúi hafi jafnvel sagt við hana að hún væri komin út fyrir hlutverk sitt sem formaður skipulagsráðs. „Mér hefur víða verið kennt um þetta mál, meðal annars vegna þess að ég fór ekki í felur þegar gagnrýnin kom fram. Ég reyndi að útskýra stöðuna og sýna borgarbúum að mér stóð ekki á sama, jafnvel þótt ég bæri ekki ábyrgð á deiliskipulaginu sjálfu,“ skrifar Dóra. Kveðst hún hafa fengið umhverfis- og skipulagssvið til að funda með uppbyggingaraðilum um breytingar á húsinu, aukinn gróður og meira uppbrot í ásýnd byggingarinnar. Þegar henni hafi fundist sú vinna ekki ganga nægilega langt hafi hún óskað eftir fundi með uppbyggingaraðilum til að þrýsta á frekari úrbætur. „Ég gleymi aldrei þeim fundi með uppbyggingaraðilum þar sem ég þrýsti af hörku á meira uppbrot, betri ásýnd og meiri gæði í hönnun byggingarinnar svo hún yrði Breiðholtinu til sóma. Svörin sem komu sýndu hins vegar hversu hamlandi takmarkaðir skilmálar deiliskipulagsins voru gagnvart samningsstöðunni,“ skrifar hún.
Vöruskemma við Álfabakka Borgarstjórn Reykjavík Skipulagsmál Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Fleiri fréttir Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Sjá meira