„Ég er búinn að vera að bíða lengi eftir þessu tækifæri“ Kolbeinn Kristinsson skrifar 8. maí 2026 21:52 Gils stóð svo sannarlega sína vakt fyrir FH í kvöld og skoraði tvö mörk. Vísir Gils Gíslason var hetja FH-inga um stund í 3-3 jafntefli liðsins gegn Breiðabliki í 6. umferð Bestu deildar karla á Kópavogsvelli í kvöld.
FH lenti 2-0 undir í fyrri hálfleik en kom af miklum krafti inn í þann síðari. Gils minnkaði muninn snemma eftir hlé, Kjartan Kári Halldórsson jafnaði úr vítaspyrnu og Gils kom FH svo í 3-2 með sínu öðru marki áður en Blikar jöfnuðu metin úr vítaspyrnu. Aðspurður hvernig þessi mikli rússíbanaleikur hefði blasað við honum sagði Gils FH hafa tekið skref fram á við, þrátt fyrir að sigurinn hafi ekki komið. „Mér fannst við sterkari varnarlega en í síðustu leikjum og ég held að það sé eitthvað sem við þurfum að byggja upp á,“ sagði Gils. Gils skoraði tvö mörk í leiknum og viðurkenndi að hann hefði beðið lengi eftir slíku tækifæri. „Ég er búinn að vera að bíða lengi eftir þessu tækifæri og þetta datt loksins í dag. Ég er bara feginn að hafa skorað tvö mörk,“ sagði hann. Seinna markið kom á stórri stundu þegar FH fullkomnaði viðsnúninginn og komst í 3-2. Gils lýsti markinu á einfaldan hátt. „Ég tek hlaupið þarna í gegn og klára bara niðri í horninu,“ sagði Gils. Geta gert miklu betur FH hefur enn ekki unnið leik eftir sex umferðir í Bestu deildinni en Gils segir stemninguna í hópnum áfram góða. „Hún er held ég bara jákvæð. Við vitum alveg að við getum miklu betur en þetta,“ sagði Gils.Hann benti jafnframt á að FH-liðið væri ungt og enn í mótun. „Við erum með ungan hóp og ég held að það séu sex annars flokks leikmenn í hópnum. Reynslan er ekki mikil þótt við séum með aðeins eldri stráka sem mér finnst stíga gríðarlega vel upp,“ sagði Gils. „Þetta er eitthvað sem við þurfum að byggja upp og byrja að finna sigrana og klára leikina almennilega,“ bætti hann við.
Besta deild karla FH Mest lesið „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Engin uppalin spilaði með Fram Íslenski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Fleiri fréttir Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Sjá meira