Athugasemdir við villandi samanburði Viðskiptaráðs um sorphirðu Guðmundur B. Friðriksson skrifar 8. maí 2026 16:00 Viðskiptaráð birti 7. maí sl. samantekt með villandi samanburði sem þörf er á að leiðrétta. Eftirfarandi eru nokkur atriði sem vert er að vekja athygli á varðandi samanburð Viðskiptaráðs um sorphirðu: ·Í samanburði Viðskiptaráðs á kostnaði er verið að bera saman heimili á höfuðborgarsvæðinu með tvær tvískiptar tunnur – aðra fyrir pappír og plast og hina fyrir blandaðan úrgang og matarleifar. oEingöngu um 7,5% heimila í Reykjavík eru með þessa tunnusamsetningu, um 4500 tvískiptar tunnur fyrir pappír og plast eru við heimili í Reykjavík en íbúðir í Reykjavík eru um 60.200. Þessi tunnusamsetning er eingöngu við sérbýlishús og lítinn hluta þeirra og gefur því enga mynd af samanburði hirðukostnaðar sveitarfélaga sem borin eru saman. oÍ Reykjavík eru tvískipt sorpílát verðlögð um 20% hærra en önnur ílát af sömu stærð þar sem tímafrekt er að losa þau – sorpið situr gjarnan fast í þeim og eingöngu er hægt að losa eitt ílát í einu. Þessi verðlagning er í samræmi við leiðbeiningar sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um ákvörðun hirðugjalda. Reykjavík er hins vegar eina sveitarfélagið sem leggur á í samræmi við leiðbeiningarnar. Viðskiptaráð velur því hér að bera saman lítinn hluta hirðugjalda sem er villandi samanburður. Árlegur meðalkostnaður á heimili í Reykjavík vegna sorphirðu við heimili og á grenndar- og endurvinnslustöðvum er um 60.800 kr. en ekki 85.000 kr. eins og Viðskiptaráð heldur fram. Reykjavíkurborg er með þéttasta net grenndargáma af sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu. Íbúar vilja hafa gámana nærri sér og sveitarfélaginu ber að hafa þá í nærumhverfi skv. lögum um meðhöndlun úrgangs. Þjónustustig grenndargáma er því hærra í Reykjavík en öðrum sveitarfélögum. Viðskiptaráð ber það ekki saman, eingöngu kostnað. Fákeppni ríkir á markaði sorphirðu. Um nokkurt skeið voru eingöngu tvö fyrirtæki sem buðu í sorphirðu sveitarfélaga höfuðborgarsvæðinu. Hirða heimilisúrgangs er skylduverkefni sveitarfélaga skv. lögum um meðhöndlun úrgangs. Óskynsamlegt að færa alla hirðu í útboð á þannig markaði. Reykjavíkurborg bauð út hirðu á pappírstunnum árið 2007 en fékk verkefnið aftur í fangið við bankahrunið þar sem verktakinn treysti sér ekki til að sinna því. Sama hefur gerst hjá sveitarfélögum erlendis, nýlega í Osló þegar tveir þjónustuaðilar fóru í þrot á skömmum tíma og sveitarfélagið neyddist til að taka við þjónustunni. Osló ætlar ekki að bjóða alla hirðuna út að nýju. Í Svíþjóð eru æ fleiri sveitarfélög að hefja rekstur eigin sorphirðu, m.a. til að auka gæði þjónustunnar og sveigjanleika í sífellt flóknara rekstrarumhverfi úrgangsstjórnunar. Að bjóða út alla hirðu við heimili í Reykjavík og glata þekkingunni sem hefur skapast á verkefninu væri óskynsamlegt. Reykjavíkurborg býður út hirðu frá stofnunum og starfstöðum Reykjavíkurborgar og borgin skiptir sér ekki af hirðu hjá atvinnurekstri enda ekki verkefni sveitarfélagsins. Þjónusta við grenndargáma – leiga og losun, er einnig boðin út. Það er því ekki þannig að öll hirða í borginni sé á höndum borgarinnar. Í samantekt Viðskiptaráðs heldur ráðið því fram að hirðukostnaður á Akureyri hafi stórlækkað við útvistun á sorphirðu. Varasamt er að álikta sem svo að lækkunin hafi eingöngu stafað af útvistun þjónustunnar. Meðal annars fór Akureyrarbær í umfangsmikla kerfisbreytingu á sorphirðu samhliða útvistuninni – hirðutíðni var breytt, hirða með sorptunnum og grenndarstöðvar komu í stað pokahirðu og framhlaðningsgámar voru settir við fjöleignarhús í stað sorppoka. Könnun sem Viðskiptaráð vitnar til og Vísir birtir í frétt ásamt mynd af fullum sorpílátum í Reykjavík er frá árinu 2023 þegar verið var að gera umfangsmiklar breytingar á sorphirðu í borginni. Nýleg könnun sýnir að 62% íbúa eru ánægðir með sorphirðu í Reykjavík, 12% óánægðir. Íbúar virðast því almennt ánægðir með sorphirðu í borginni, þjónustustigið er gott og kostnaður á hvert heimili er síst hærri í Reykjavík en nágrannasveitarfélögum. Höfundur er umhverfisverkfræðingur og starfar sem skrifstofustjóri skrifstofu umhverfisgæða hjá Reykjavíkurborg. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sorphirða Mest lesið Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson Skoðun Minna kerfi, betri þjónusta Róbert Ragnarsson Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir skrifar Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir skrifar Skoðun Netöryggi snýst líka um að þora að segja frá Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen skrifar Skoðun Getur maður verið rasisti án þess að gera sér grein fyrir því? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia skrifar Skoðun Minna kerfi, betri þjónusta Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar