Reykjavík töluð niður svo hægt sé að selja eignir hennar Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar 8. maí 2026 12:30 Reykjavíkurborg er vel rekið sveitarfélag. Hún er það núna og hefur verið það lengi. Það er þó með rekstur borgarinnar eins og rekstur annarra skipulagsheilda að það má alltaf gera betur, þetta vitum við í Samfylkingunni. Síðastliðin ár hefur mikið verið fjárfest í innviðum Reykjavíkur og hér er haldið uppi öflugri menningarstarfsemi sem nýtist öllu landinu. Reykjavík ber uppi félagslega þjónustu á áhrifasvæði sínu en skilar samt af sér betri rekstri ár eftir ár en öll nágrannasveitarfélögin. Borgin er til að mynda eina sveitarfélagið á höfuðborgarsvæðinu sem var með nægjanlega miklar tekjur úr rekstri sínum til að geta greitt útistandandi skuldir sem gjaldfalla á árinu 2026 án þess að selja eignir eða taka yfirdrátt. Þetta skiptir máli. Einkavæðingin á eignum borgarbúa Hægri flokkarnir í Reykjavík, sem hamra sífellt ranglega á því að rekstur borgarinnar sé í molum, vilja fara aðra leið til að reka höfuðborgina. Þeir vilja selja eignir borgarinnar, eignir sem nýtast okkur borgarbúum gríðarlega vel og eru í raun eignir borgarbúa. Þetta sést til að mynda vel í stefnuskrá Sjálfstæðisflokksins. Hann vill selja: Mörg þúsund félagslegar íbúðir í eigu borgarinnar sem veita lágtekjufólki og viðkvæmum hópum þak yfir höfuðið Bílastæðahús í eigu borgarinnar sem bjóða upp á ódýrari bílastæði en samkeppnisaðilarnir, og hækka þannig bílastæðagjöld í miðborginni Malbikunarstöðina Höfða sem sér um meginþorra malbikunarframkvæmda í Reykjavík og tryggir virka samkeppni á markaði Mikilvæg fyrirtæki út úr samstæðu Orkuveitu Reykjavíkur eins og loftslagsverkefnið Carbfix og grunninnviðafyrirtækið Ljósleiðarann Sjálfstæðisflokkurinn á landsvísu hefur líka boðað stórtæka einkavæðingu á orkufyrirtækjum eins og Landsneti, Rarik og Orkubúi Vestfjarða. Auk þess hefur formaður flokksins áður sagt að hún vildi að íslenska ríkið myndi selja 30-40% í Landsvirkjun. Það er því ljóst að samfélagslegt eignarhald á Orkuveitu Reykjavíkur verður aldrei tryggt á meðan Sjálfstæðisflokkurinn stýrir ríki eða borg. Þetta boðar Sjálfstæðisflokkur á sama tíma og hann talar bæði borgina og eignirnar niður. Það er ljóst að hægri flokkarnir, Sjálfstæðisflokkur, Miðflokkur og Viðreisn ásamt Framsókn, ætla að auka einkavæðingu og einkarekstur með tilheyrandi arðsemiskröfu víða í borgarkerfinu. Til dæmis í velferðarþjónustu, sorphirðu, samgöngum og vistun barnanna okkar. Það er lykilatriði að við stöndum vörð um þau miklu verðmæti sem eru í eigu borgarinnar og til þess að koma í veg fyrir að þau verði seld á tombóluverði þarf Samfylking að hljóta sterkt umboð í borgarstjórnarkosningum 16. maí. Höfundur skipar 6. sæti á lista Samfylkingarinnar fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Samfylkingin Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Tvær þjóðir í sama landi? Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson Skoðun Hafrannsóknarstofnun á villigötum Gunnlaugur Stefánsson Skoðun Þegar smiðirnir sjálfir biðja um að hægja á vélinni Sigvaldi Einarsson Skoðun Það sem ég vildi að foreldrar mínir vissu… Aðalheiður Ásdís Boutaayacht Skoðun Erlendi ferðamaðurinn - einn besti skattgreiðandi landsins? Þórir Garðarsson Skoðun Af hverju talarðu ensku við mig þegar ég tala íslensku? Valerio Gargiulo Skoðun Bókin er betri! Sigþrúður Gunnarsdóttir Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer Skoðun Betri borg fyrir börn Bára Birgisdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvað hefur presturinn að segja yfir gröfinni? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Erum við í hættu? Ólgan kringum gervigreind Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Það sem ég vildi að foreldrar mínir vissu… Aðalheiður Ásdís Boutaayacht skrifar Skoðun Í sporum kindarinnar Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Þurfum við að óttast gervigreind? Óttar G. Birgisson skrifar Skoðun Skattgreiðendur á TikTok Jens Garðar Helgason skrifar Skoðun Betri borg fyrir börn Bára Birgisdóttir skrifar Skoðun Bókin er betri! Sigþrúður Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Tvær þjóðir í sama landi? Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson skrifar Skoðun Börnin eru þrautseig. Kerfið hefur brugðist grunnfærninni Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hafrannsóknarstofnun á villigötum Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Af hverju talarðu ensku við mig þegar ég tala íslensku? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Þegar smiðirnir sjálfir biðja um að hægja á vélinni Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Viltu vita hvað virkar? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Erlendi ferðamaðurinn - einn besti skattgreiðandi landsins? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hvaða lærdóm má draga af ferðavenjukönnun 2025? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Þversögn íslenskra varna Arnór SIgurjónsson skrifar Skoðun Stjórnarformaður RÚV bregður sér í gervi Ragnars Reykás Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun PISA: Þegar allir þurfa létti, hver heldur þá utan um barnið? Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Hver ver æru hins látna? Theódór Skúli Halldórsson skrifar Skoðun DARVO: Sálfélagslegur glundroði Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun Menntakerfið pólitískur leikvöllur? Anna Kristín Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvað er til ráða? Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað þarf að laga á Íslandi – hver ber ábyrgð? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar andstæðingum eru eignuð orð Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Foreldrar, hjálpum börnum að verða lesendur Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks Rósa Líf Darradóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar
Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar