„Við segjum stundum: Víkingur fékk okkur í afmælisgjöf“ Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 7. maí 2026 20:33 Skúli Helgason segir að Víkingur fái tíu þúsund fermetra lóð frá Gróðrastöðinni Mörk samkvæmt samningi Ólafs F. Magnússonar þáverandi borgarstjóra frá 2008. Guðmundur Vernharðsson er feginn að það sé kominn niðurstaða í málið en er ósáttur við að svo stór hluti ræktunarlands fari í steypu. Þá muni borgin ekki greiða fyrir tjón sem fyrirtækið verði fyrir. Vísir/Anton Borgarráð samþykkti í dag að afhenda íþróttafélaginu Víkingi tíu þúsund fermetra lóð í Fossvogsdalnum sem Gróðrastöðin Mörk leigði af borginni. Eigandi gróðrastöðvarinnar segir sorglegt að gróður og ræktun víki fyrir steypu en er fegin að það verði að minnsta kosti hægt verði að reka hluta stöðvarinnar á svæðinu til ársins 2050.
Borgarráð samþykkti á síðasta fundi sínum fyrir kosningar í dag að stækka athafnasvæði Víkings í Fossvogsdal um tíu þúsund fermetra og taka svæðið af Gróðrarstöðinni Mörk sem hefur leigt það af borginni fyrir ræktun og rekstur síðan árið 1967. „Það var Ólafur F. Magnússon þáverandi borgarstjóri sem lofaði íþróttafélaginu lóðinni á hundrað ára afmæli Víkings árið 2008. Við segjum stundum: Víkingur fékk okkur í afmælisgjöf. Við fengum engan aðdraganda að því. Það var hringt í okkur kvöldið áður og sagt að það yrði tillaga lögð fyrir sem snerti hagsmuni okkar í framtíðinni. Síðan þá hefur málið legið þungt á okkur,“ segir Guðmundur Vernharðsson eigandi Gróðrarstöðvarinnar Markar. 18 ára loforð efnt í dag Borgarráð fylgdi þessari ákvörðun Ólafs F. Magnússonar eftir í dag en hann gegndi embætti borgarstjóra í 210 daga árið 2008. Á sínum tíma átti tillagan að fara í gegn þegar gildandi lóðarleigusamningur við Gróðrarstöðina Mörk rynni út árið 2016. Skúli Helgason formaður menningar- og íþróttaráðs borgarinnar segir að nú tíu árum síðar hafi borgarráð ákveðið að efna loforðið við Víking. „Víkingur fær þá um tíu þúsund fermetra samanlagt af þessu svæði Gróðrarstöðvarinnar Markar til uppbyggingar á sinni íþróttaaðstöðu sem er í samræmi við væntingar og þarfir. Þetta er skuldbindandi samkomulag sem var gert 2008. Gróðrarstöðin Mörk fær svo afnotasamning af verulegum hluta af því svæði sem þau hafa haft afnot af,“ segir Skúli. Gróðrastöðin Mörk hefur verið í Fossvogsdal síðan 1967. Hér má sjá hluta ræktunarlands stöðvarinnar en hluti A verður afhentur um næstu áramót og verður að stórum hluta bílastæði. Hluti B verður afhentur Víkingi 2032 og hltui C árið 2050. Vísir Skúli segir að Víkingur fái strax á þessu ári hluta af svæðinu. „Fyrsta svæðið er aðallega til að bæta aðgengi og aðstöðu. Gert er ráð fyrir að þrjú þúsund fermetrar af tíu þúsund fari þar í bílastæði. Eftir sex ár fá þeir svo næsta reit þar sem stendur til að byggja íþróttaaðstöðu. Jafnframt færist eignarhald núverandi íþróttamannvirkja Víkings við Traðarland 1 til Reykjavíkurborgar sem tekur þar með að sér viðhald og frekari uppbyggingu. Hluti af samningnum við Víking tengist líka Safamýrinni og aðstöðu og uppbyggingu þar,“ segir Skúli. Of sterk öfl Guðmundur Vernharðsson segist feginn að hægt verði að reka hluta af gróðrarstöðinni á svæðinu til 2050 en er svekktur yfir að missa svo stóran hluta af ræktarlandi sínu. „Við fögnum því að loks hafi náðst niðurstaða í málinu og að aukinn fyrirsjáanleiki sé nú kominn í stöðuna. Þó að niðurstaðan sé ekki sú sem við vonuðumst eftir, teljum við mikilvægt að þessu langvarandi ferli sé lokið,“ segir hann. Hann segir baráttuna hafa verið afar erfiða. „Það sem við höfum rekið okkur aftur og aftur á í þessu máli er að við erum að fást við svo sterk öfl að við fáum engu breytt. Þessi öfl felast í þrýstingi frá íþróttafélaginu Víkingi og svo frá borginni sem ætlar ekki að greiða okkur neitt fyrir þann skaða sem við verðum fyrir. Ljóst er að um er að ræða verulega blóðtöku fyrir fyrirtækið. Skerðing verður á framleiðslugetu og húsnæði, auk þess sem umtalsverður kostnaður fellur til. Þar má meðal annars nefna þann kostnað sem fylgir því að færa um 200 fermetra húsnæði innan þeirrar lóðar sem við höldum eftir,“ segir hann að lokum.
Reykjavík Víkingur Reykjavík Fasteignamarkaður Skipulag Blóm Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fleiri fréttir „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Runólfur verður áfram forstjóri Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Deila um sóttkví fer alla leið „Við getum ekki öll búið í Reykjavík“ Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku og svarar gagnrýni Jóns Gnarr Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Enn enginn grunaður um innbrotið Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Tóku á móti barni í sjúkrabíl Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Sjá meira