Ást mín á íþróttum og silfurleysið í Peking Bjarni Fritzson skrifar 7. maí 2026 12:30 Ein fyrsta minningin mín er þegar ég var um það bil meter á hæð út á skólalóð Seljaskóla að reyna hitta ofan í körfu sem á þeim tíma virtist vera að minnsta kosti tíu metra há. Ég hef líklega ekki verið deginum eldri en fimm ára. Í minningunni tók þetta ætlunarverk mitt hálfan daginn sem var mögulega markmið foreldra minna þegar þau stungu upp á þessu krefjandi verkefni. Að lokum náði ég að kasta boltanum með nægjanlegum krafti og í svo háan boga að boltinn sveif beint ofan í körfuna og ég sveif á bleiku skýi heim. Einhverja hluta vegna þá hef ég alltaf elskað íþróttir. Sem krakki þá prófaði ég allar íþróttir sem hægt var að stunda í Breiðholtinu. Ef ég var ekki á skipulögðum æfingum þá voru mestar líkur að ég væri einhvers staðar að leika mér í þeim. Núna nokkrum áratugum síðar hefur ástríðan mín fyrir íþróttum ekkert dvínað þrátt fyrir að líkaminn eigi kannski aðeins erfiðara með að fylgja hjartanu. 15. maðurinn í Peking Ég á íþróttunum ótrúlega margt að þakka. Í gegnum þær hef ég eignast vini fyrir lífstíð, kynnst eiginkonu minni, styrkt fjölskylduböndin og upplifað margar af mínum bestu stundum. En þrátt fyrir að íþróttir geti verið uppspretta gleði og tengsla, geta þær líka verið ansi grimmar á köflum. Ég hef svo sannarlega fengið minn skerf af mótlæti, þekktasta dæmið er líklega að fá ekki silfurverðlaun á Ólympíuleikunum í Peking. En sem 15. maður liðsins á leikunum rann vegabréfsáritunin mín út fyrir 8 liða úrslitin og ég varð að fara heim. En ég er ekki síður þakklátur þessum erfiðu tímum. Því þeir hafa kennt mér svo mikið og í raun gert mig af þeim manni sem ég er í dag. Því hvar lærir maður að standa uppréttur í og eftir mótlæti ef ekki í íþróttum? Þar erum við í öruggu umhverfi í aðstæðum sem reyna á okkur. Eftir að hafa verið meira og minna í kringum íþróttir í fjóra áratugi þá hef ég séð frá fyrstu hendi öll þau jákvæðu áhrif sem íþróttirnar hafa á samfélagið okkar. Íþróttafélögin hafa líklega aldrei verið jafn mikilvæg fyrir okkur og einmitt í dag. Því íþróttirnar gefa krökkunum okkar frí frá skjánum, kenna þeim að vera í liði, takast á við erfiðleika, ýta undir heilsusamlegan lífsstíl, takast á við kvíðvænlegar aðstæður og hjálpa þeim sem eru með erlendan bakgrunn að komast betur inn í samfélagið svo eitthvað sé nefnt. En umfram allt þá eru íþróttir skemmtilegar og hvetja krakka til að gera það sem þau eiga að vera að gera. Sem er bara að leika sér og hafa gaman. Kraftaverk á hverjum degi Það skiptir sköpum að stuðningur og framkoma Reykjavíkurborgar gangi í takt við það mikilvæga og fórnfúsa starf sem íþróttafélögin eru að vinna vítt og breitt um borgina. Reykjavíkurborg þarf að verða öflugur liðsfélagi félaganna í borginni. Borgin þarf að vera heiðarleg, standa við gerða samninga og sýna stuðning í verki - ekki bara í orði rétt fyrir kosningar. Borgin þarf að bera virðingu fyrir tíma og vinnu starfsfólks og sjálfboðaliða og passa að eiga í góðum samskiptum við þau. Í raun á borgin að gera allt sem hún getur til þess að hjálpa félögunum að blómstra og halda áfram að vinna þetta kraftaverkastarf sem þau framkvæma hvern einasta dag. Höfundur skipar áttunda sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Bjarni Fritzson Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hvers vegna ég skipti um skoðun á aðild Íslands að Evrópusambandinu Gunnar Ármannsson Skoðun Meitlað í stein eða kannski, hugsanlega, ef til vill Sigurður Egilsson Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson Skoðun Sjö algengar ranghugmyndir um hvali og hvalveiðar Eyþór Eðvarðsson Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB II Bjarni Már Magnússon Skoðun Almyrkvi á sólu 12.ágúst 2026: Gagnlegar upplýsingar Runólfur Þórhallsson Skoðun Að hafa rétt eftir Ingólfur Sverrisson Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB Bjarni Már Magnússon Skoðun Af hverju „Nei“ 29. ágúst? Alfreð Sturla Böðvarsson Skoðun Ný greining: Hvað myndu húsnæðisvextir lækka með ESB og evru? Dagur B. Eggertsson Skoðun Skoðun Skoðun Stafrænt fullveldi er ekki frönsk sérviska Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun Gervigreind á ekki að hugsa fyrir okkur Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Hvers vegna ég skipti um skoðun á aðild Íslands að Evrópusambandinu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki skrifstofa heldur framkvæmd Auður Axelsdóttir skrifar Skoðun Af hverju „Nei“ 29. ágúst? Alfreð Sturla Böðvarsson skrifar Skoðun Að hafa rétt eftir Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Hvaða áhættu tekur Ísland ef við breytum engu? – Framtíðarsýn til ársins 2050 Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Almyrkvi á sólu 12.ágúst 2026: Gagnlegar upplýsingar Runólfur Þórhallsson skrifar Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB II Bjarni Már Magnússon skrifar Skoðun Meitlað í stein eða kannski, hugsanlega, ef til vill Sigurður Egilsson skrifar Skoðun Krónuhagkerfið og kostnaður heimilanna Sigurður Kristinn Pálsson skrifar Skoðun Litir, form og staðarandi Þórður Már Sigfússon skrifar Skoðun Brexit ekki orsök efnahagsáskorana Breta Kristinn Sv. Helgason skrifar Skoðun Jörðin er dómkirkjan okkar. Geimurinn er verkstæðið okkar. Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson skrifar Skoðun Hvenær hættir maður að vera útlendingur? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðvörunarljós um farsæld barna má ekki hunsa Steinunn Bergmann skrifar Skoðun Sjö algengar ranghugmyndir um hvali og hvalveiðar Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB Bjarni Már Magnússon skrifar Skoðun Ný greining: Hvað myndu húsnæðisvextir lækka með ESB og evru? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson skrifar Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller skrifar Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Sjá meira
Skoðun Hvers vegna ég skipti um skoðun á aðild Íslands að Evrópusambandinu Gunnar Ármannsson skrifar
Skoðun Hvaða áhættu tekur Ísland ef við breytum engu? – Framtíðarsýn til ársins 2050 Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson skrifar
Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson skrifar