Þegar loforð duga ekki: Leikskólakerfið í Kópavogsbæ Nína Berglind Sigurgeirsdóttir skrifar 7. maí 2026 11:46 Kosningaloforð Sjálfstæðisflokksins um leikskólapláss við 12 mánaða aldur mun ekki standast raunveruleikann. Börn sem fæðast seinni hluta árs þurfa enn að bíða í 20 til 24 mánuði eftir plássi, líkt og staðan er í dag. Loforð duga skammt þegar veruleikinn segir annað. Fjöldi foreldra lýsa auknu álagi, streitu og verulegum erfiðleikum við að samræma vinnu og fjölskyldulíf eftir innleiðingu svokallaðs Kópavogsmódels. Á sama tíma og þau sem innleiddu Kópavogsmódelið hafa lýst ánægju með kerfið hafa foreldrar aðra sögu að segja. Kerfið hentar þeim sem hafa sveigjanlegan vinnutíma, sterkt bakland eða möguleika á að stytta vinnutíma. Kópavogur er eitt hraðast vaxandi sveitarfélag landsins. Fjölskyldum fjölgar ört og þar með börnum sem þurfa leikskólapláss. Þetta er jákvæð þróun sem sýnir að bæjarfélagið er eftirsóttur staður til að búa á. Þessi vöxtur kallar hins vegar á skýra forgangsröðun. Núverandi staða, þar sem foreldrar bíða mánuðum, jafnvel árum saman eftir leikskólaplássi, er einfaldlega ekki ásættanleg. Kerfið sem átti að styðja fjölskyldur er í reynd að auka álag þeirra. Staðreyndin er sú að sveitarfélagið mun ekki eitt og sér geta byggt upp nægjanlega mörg leikskólapláss á næstu árum. Uppbygging tekur tíma og krefst mikillar fjárfestingar. Á meðan bíða fjölskyldur og börn missa af mikilvægum fyrstu árum í skipulögðu leik- og námsumhverfi. Það er ekki boðlegt. Ef við ætlum að mæta raunverulegum þörfum verðum við að horfa til fleiri lausna. Miðflokkurinn telur að ein skynsamlegasta leiðin sé að styðja við uppbyggingu leikskóla í einkarekstri, samhliða öflugu opinberu kerfi. Þetta snýst ekki um að veikja hið opinbera heldur að styrkja heildina og tryggja að þjónustan sé til staðar þegar þörfin er raunveruleg. Með skýrum gæðakröfum og virku eftirliti er vel hægt að tryggja að einkareknir leikskólar standist sömu kröfur og þeir opinberu. Ávinningurinn er hraðari uppbygging, meira framboð og styttri biðlistar. Þetta er einföld nálgun sem virkar víða og getur virkað hér. En málið snýst ekki bara um fjölda plássa. Það snýst um val. Foreldrar í Kópavogi eiga að hafa raunverulegt val um það leikskólaumhverfi sem hentar þeirra börnum best. Í dag er það val takmarkað. Börn eru ólík og þarfir þeirra mismunandi. Fjölbreyttari rekstrarform geta mætt þessum ólíku þörfum betur. Minni leikskólaeiningar skipta líka máli. Þar er auðveldara að skapa hlýlegt og öruggt umhverfi, byggja upp sterk tengsl milli starfsfólks og barna og efla samstarf við foreldra. Einkareknir leikskólar hafa oft meiri sveigjanleika til að þróa slíkt umhverfi og bjóða upp á fjölbreyttari áherslur í starfi. Það er kominn tími til að hætta að festast í hugmyndafræðilegum deilum. Spurningin sem skiptir máli er einföld: Hvað er best fyrir börnin og fjölskyldurnar? Ef svarið er fleiri úrræði, hraðari uppbygging og meira val, þá eigum við að nýta allar skynsamlegar leiðir til að ná því markmiði. Öll börn ættu að eiga sama rétt óháð því hvenær á árinu þau fæðast. Það krefst raunverulegra aðgerða, ekki fleiri viljayfirlýsingar. Við þurfum fleiri leikskóla, hraðari uppbyggingu og meiri fjölbreytni í rekstri. Miðflokkurinn vill sjá Kópavogsbæ bregðast við af festu og skynsemi. Við þurfum lausnir sem virka, eins og foreldrar í Kópavogi hafa þegar bent skýrt á. Með því að styðja við aukinn einkarekstur undir skýrum reglum er hægt að tryggja að engin fjölskylda þurfi að bíða eftir þeirri grunnþjónustu sem leikskólinn er. Fleiri leikskólar. Meira val. Betri framtíð fyrir börnin í Kópavogi. Höfundur er leikskólastjóri og í 2. sæti á lista Miðflokksins í Kópavogi í komandi sveitarstjórnarkosningum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Gráðugir hótelgestir sem borða rafmagn Björg Eva Erlendsdóttir Skoðun Halldór 17.10.2026 Halldór Það er líka dýrt að bíða Guðmundur Haukur Jakobsson Skoðun Múlaþing ber ábyrgð Magnús Guðmundsson Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir Skoðun Stækkum og styrkjum sérsveitina Sólrún H. Guðmundsdóttir Proppé Skoðun Hver á að ákveða hvaða áhættu við megum taka? Steinar Thors Skoðun Gervigreind skýrsla gervigreindrar ríkisstjórnar Kristján Logason Skoðun Þegar netöryggi verður samfélagsöryggi Margrét V. Helgadóttir Skoðun EES-samningurinn: Tími til kominn að endurmeta stöðu Íslands? Eggert Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Upprætum fátækt á Íslandi! Anna Margrét Bjarnadóttir,Steinunn Þóra Árnadóttir skrifar Skoðun Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar Skoðun Bætur fyrir lögregluaðgerðir lítið kynntar Bjarni Þór Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Verjum það sem við höfum – byggjum upp það sem þarf Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar Skoðun EES-samningurinn: Tími til kominn að endurmeta stöðu Íslands? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn Gerður Aagot Árnadóttir skrifar Skoðun Gervigreind skýrsla gervigreindrar ríkisstjórnar Kristján Logason skrifar Skoðun Gráðugir hótelgestir sem borða rafmagn Björg Eva Erlendsdóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvað myndi ég ráðleggja átján ára ungmenni í dag? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Þegar netöryggi verður samfélagsöryggi Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Skráum hjartastuðtækin því hver mínúta skiptir máli! Alma D. Möller skrifar Skoðun Er gervigreind til góðs eða bara á blaði? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Hver á að halda í hönd þeirra sem greinast með Alzheimer ? Ásta Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Múlaþing ber ábyrgð Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Aldrei fullmótaður Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Hver ákveður hvort heyrnarlaus sjúklingur þarf túlk? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir skrifar Skoðun Hver á að fá tímann sem gervigreindin sparar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Hver á að ákveða hvaða áhættu við megum taka? Steinar Thors skrifar Skoðun Margt getur gerst á 18 mánuðum Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Það er líka dýrt að bíða Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar Skoðun Mennskan í umróti felst í vönduðum vinnubrögðum Berglind Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin þarf að leggjast alfarið gegn olíuleit á Drekasvæðinu Rósa Björk Brynjólfsdóttir skrifar Skoðun Stækkum og styrkjum sérsveitina Sólrún H. Guðmundsdóttir Proppé skrifar Skoðun Í Singapúr dugði eitt orð Margrét Reynisdóttir skrifar Skoðun Drónar: vinur eða óvinur? Sunna Gunnars Marteinsdóttir skrifar Skoðun ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar Skoðun Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson skrifar Sjá meira
Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir Skoðun
Skoðun Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Hver ákveður hvort heyrnarlaus sjúklingur þarf túlk? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir skrifar
Skoðun Ríkisstjórnin þarf að leggjast alfarið gegn olíuleit á Drekasvæðinu Rósa Björk Brynjólfsdóttir skrifar
Skoðun ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar
Skoðun Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson skrifar
Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir Skoðun