Menning gerir bæi að spennandi stöðum til að búa á Sunnefa Elfarsdóttir skrifar 7. maí 2026 08:21 „Menning er límið í hverju samfélagi og við vitum að hún skiptir miklu máli þegar fólk ákveður hvar það vill búa.“ Þessi orð lét Logi Einarsson menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra nýlega falla. Það er nefnilega svo að þegar fólk velur sér stað til að búa á eru það ekki eingöngu atvinna og húsnæði sem skipta sköpum, fólk vill upp til hópa búa í lifandi samfélagi. Samfélagi sem býr yfir og styður við afþreyingu og viðburði af fjölbreyttum toga fyrir öll sem þar búa. Áratugum saman hefur Ísafjarðarbær byggt upp öflugt menningarlíf með þrautsegju skapandi einstaklinga í samvinnu við samfélag okkar og sveitarfélagið, sem nú stendur að fjölbreyttu menningarlífi miðað við stærð. Sveitarfélagið getur státað sig af sex fjölbreyttum listahátíðum, sem hlýtur að kallast einhvers konar met, auk fjölda annara menningarviðburða sem lífga upp á samfélag okkar allt árið um kring auk þess að draga að gesti víðs vegar af landinu. Það liggur því í augum uppi að Ísafjarðarbær hefur alla burði til að marka sér enn sterkari sérstöðu sem samfélag skapandi greina, enda getur Ísafjarðarbær með stolti kallað sig menningarbæ. Við í Samfylkingunni viljum efla þessa uppbyggingu enn frekar með fjölbreyttum leiðum. Endurskoða þarf menningarstyrki Ísafjarðarbæjar sem nema í dag aðeins 3,5 milljónum króna á ári og hámarksstyrkur til hvers verkefnis er aðeins 250 þúsund krónur. Allir styrkir skipta máli en ljóst er að þessar fjárhæðir hafa ekki fylgt þróun samfélagsins og almenns verðlags. Mikilvægt er að aðgengi að menningu sé jafnt á alla byggðarkjarna. Nú á síðasta Aldrei fór ég suður voru settar upp skipulagðar rútuferðir til og frá byggðarkjörnum í samstarfi við sveitarfélagið og voru þær ferðir vel nýttar. Einföld lausn líkt og þessi á ekki að vera einsdæmi heldur hluti af markvissri stefnu til að auka jöfnuð þegar kemur að aðgengi að menningarviðburðum, sem einnig má nýta sem fordæmi fyrir íþróttaviðburði og aðra afþreyingu. Til að þessi uppbygging geti orðið að veruleika þarf að þrýsta á ríkið að mæta Ísafjarðarbæ af sama metnaði og gert hefur verið fyrir Akureyri þar sem sérstakur menningarsamningur við ríkið var endurnýjaður nú í apríl. Það er eðlilegt að ríkið taki frekari þátt í fjármögnun og stuðningi við menningarverkefni víðsvegar um landið, hvað þá á svæði líkt og Ísafjarðarbæ sem hefur margsannað gildi sitt í skapandi greinum og viðburðahaldi. Enda er það eitt af árherslumálum núverandi ríkisstjórnar að jafna aðgengi landsmanna að listum um land allt. Menning er ekki lúxus.Menning er forsenda þess að samfélög dafni.Menning laðar að sér skapandi fólk.Menning ýtir undir nýsköpun og styrkir atvinnulíf.Menning gerir bæi að spennandi stöðum til að búa á. Við sem sveitarfélag höfum einstakt tækifæri til að byggja á þeim grunni sem lagður hefur verið og vera leiðandi samfélag skapandi greina á landsbyggðinni. Höfundur er fatahönnuður og situr í 15. sæti á lista Samfylkingarinnar í Ísafjarðarbæ. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Menning Mest lesið Halldór 26.09.2026 Halldór Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson Skoðun Skoðun Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Að vaxa út úr vandanum Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Árni Sigfússon skrifar Sjá meira
„
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar